Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Page 68
68 lífsstíll - ferðalög Helgarblað 15. desember 2017
Uppáhaldsborgin mín
Flest höfum við gaman af því að ferðast og fara ófáir Íslendingar
í borgarferðir á hverju ári. DV leitaði til nokkurra þekktra Ís-
lendinga og fékk þá til að segja frá uppáhaldsborginni sinni.
einar@dv.is
Stekkur bara
upp í næstu vél
Ellý Ármanns fjölmiðlakona
„Kaupmannahöfn
er uppáhalds
erlenda borgin
mín. Ég þarf enga
áætlun þegar ég
fer þangað. Stekk
bara upp í vél og
það klikkar ekki
að allt í borginni
gleður mig.
Danir eru yndislega
„ligeglad“ og þeir
sýna mér aðdá-
unarverða þolinmæði þegar ég tala við þá
á dönsku. Ég elska að ganga um borgina,
skoða mannlífið, byggingarnar, söfnin og
ég tala nú ekki um að fara í skoðunarferðir
um Íslendingaslóðir. Svo er fátt eins
rómantískt og að upplifa Tívolí í desember
með manneskju sem er manni kær. Ég
mæli með að fólk líti til himins þegar það
gengur um borgina og gefi sér tíma til að
skoða þökin á byggingunum í borginni.
Það er góð skemmtun. Strikið, Nýhöfn og
Kongens Nytorv eru æðislegir staðir. Svo er
kaffið þar himneskt og maturinn líka.
Notaleg stórborg
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingkona
„Uppáhaldsborgin mín er
Kaupmannahöfn. Hún nær
einhvern veginn að vera
afskaplega notaleg stór-
borg sem býr yfir einhverri
dásamlegri blöndu af
menningu, góðum mat
og verslunum. Þar er
auðvelt að njóta lífsins,
slaka á í bland við að
fara og kíkja á áhuga-
verða og sögulega
staði og að rölta
um á fjölmennu
Strikinu.“
Gleymir aldrei fyrstu heimsókninni
Helgi Ómarsson, ljósmyndari og fyrirsæta
„Uppáhaldsborgin mín hlýtur að vera Bangkok. Fyrst
kom París upp í hugann, mér finnst hún æðisleg, en í
hvert skipti sem ég lendi í Bangkok, þá fæ ég fiðrildi í
magann og ég hlakka til og veit ég mun fá helling til
baka frá borginni. Ég elska Taíland og ferðast þangað
mikið. Ég mun bara aldrei gleyma þegar ég fór fyrst
þangað. Ég fór þangað hálf brotinn í fyrsta skiptið í
janúar 2016 eftir frekar traumatískt ár og var í Bangkok
í nokkra daga áður en ég ferðaðist áfram á Taílandi.
Einhvern veginn gladdi mig allt þarna. Fólkið var
einlægt og brosandi, ég rölti bara um endalaust og
borðaði á hverju horni, svo kom ég heim sem glænýr
maður. Bangkok er kannski ekki sú fallegasta, en hún
er stútfull af kúltúr og menningu. Fólkið þar er einstakt
og maturinn er náttúrlega ótrúlegur. Ég mundi alltaf
mæla með að til dæmis bara taka metro og láta
borgina koma sér á óvart, það er alls konar þarna á
hverju horni. Ef maður leyfir sér, þá getur maður sogað í sig alveg magnaðan kúltúr og ég tel
mig hafa gert það í fyrsta skipti sem ég heimsótti Bangkok og það er kannski þess vegna
sem ég get ekki fengið nóg af borginni. En ég er að fara í fjórða skiptið á tveimur árum núna
í febrúar. Ég mæli með að borða, endalaust. Að versla hitt og þetta. Drekka kokteil á flottu
„rooftoppi“ og fyrst og fremst rölta um og taka á móti brosunum og brosa til baka.“
Fullkomin
blanda af
slökun og
borgarferð
Björn Bragi Arnarson,
uppistandari og
fjölmiðlamaður
„Barcelona er í sérstöku
uppáhaldi hjá mér. Þaðan á ég
frábærar minningar. Mér finnst
fullkomin blanda af borgarferð
og slökun að fara til Barcelona.
Hún býður upp á svo ótrúlega
margt – þar eru góðir veitinga-
staðir, litríkt mannlíf og enda-
laust af skemmtilegum hlutum
sem hægt er að gera. Svo er
geggjað að fara bara á ströndina
að gera ekki neitt. Ég á reyndar
ennþá eftir að fara á Nou Camp
að sjá Barcelona spila. Það
er á dagskrá næst þegar ég
heimsæki borgina. Ég gæti vel
hugsað mér að búa í Barcelona
í einhvern tíma í náinni framtíð.
Mæli klárlega með henni sem
áfangastað fyrir þá sem eiga
eftir að fara þangað.“
Gæti vel hugsað sér að búa í Boston
Egill Helgason fjölmiðlamaður
„Það er breytingum undirorpið hvaða borgum maður er
hrifinn af, bæði breytist maður sjálfur og borgirnar breytast
– og svo fer þetta líka eftir því hvað er efst í minningunni.
Einu sinni hefði ég sagt París, en svo fór mér að finnast
Berlín skemmtilegri og þá borgir í Bandaríkjunum og líka
Istanbul. Núna er mér Boston efst í huga, fjölskyldan dvaldi
þar síðasta sumar, við leigðum íbúð í Back Bay-hverfinu og
leið afar vel. Boston er ekki sérlega stór borg, maður getur
hæglega gengið um miðbæinn þveran og endilangan. Hún
er þægileg, góðar almenningssamgöngur, það er engin þörf
á að vera á bíl. Þetta er ein mesta háskólaborg í heiminum,
það er mikið af ungu fólki sem færir borginni líf og kraft.
Það þýðir ekki lengur að spyrja mig um næturlíf í borgum og hvað varðar veitingahús þá hef ég ekki mikinn
áhuga á dýrum eða snobbuðum stöðum. Í Boston er hins vegar mikið tónlistarlíf – á því hef ég áhuga og þar
lifa enn góðar bókabúðir þar sem er gaman að gramsa. Þetta er borg sem ég gæti vel hugsað mér að búa í.“
Ástfangin af London og San Diego
Edda Björgvinsdóttir leikkona
„Uppáhaldsborgin mín er London. Þar bjó ég með fjölskyldunni minni og kynntist allt
annarri hlið á dásemdinni en til dæmis blasir við túristum. Uppáhaldsstaðirnir mínir eru
Hampstead Heath sem er undurfallegt hverfi sem minnir helst á lítið sveitaþorp með
gömlum tignarlegu húsunum og ósnertum gróðursælum svæðum. Þar eru pínulitlar búðir
og yndisleg veitingahús að ógleymdum pönnukökuvagninum sem selur bestu pönnukökur
í heimi! Ég elska líka Camden-markaðinn, Covent Garden-markaðinn, Portobello-mark-
aðinn og Old Spitalfields-markaðinn. Uppáhalds veitingastaðurinn minn í London
er May Flower, kínverskur staður á Shaftsbury Avenue. Hann er ekkert sérlega
fallegur og smá hlandlykt alltaf í forstofunni – en ég fæ aldrei nóg af „Aromatic
Crispy Duck“ sem er sú besta sem ég hef smakkað – og hef ég þó prófað þennan
rétt víða. Það er allt á sig leggjandi fyrir þessa útgáfu af brabra, jafnvel að
þjónarnir hreyti í mann og fleygi hnífapörunum í fangið á manni!
Ég er líka ástfangin af San Diego í Kaliforníu. Þar bjó ég um tíma og fékk
aldrei nóg af fallegu ströndinni, La Jolla Cove-hverfinu sem ég sakna
óendanlega mikið. Dásamlega fallegt gamalt aristókratahverfi og eitt
besta köfunarsvæði í Bandaríkjunum. Gaslamp Quarter og Seaport
Village eru líka staðir sem ég verð að fá að heimsækja aftur og Old
Town San Diego er heimur sem hægt er að drekka í sig endalaust.“