Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 70
70 fólk Helgarblað 15. desember 2017
Óþekkt
ættar-
tengsl
hin hliðin
Þekkir hugarheim kvenna betur en nokkur annar
Sparkspekingurinn geðþekki Hjörvar Hafliðason
hefur síðustu misserin haslað sér völl sem
útvarpsmaður en hann ásamt Kjartani Atla
Kjartanssyni stýrir morgunþættinum „Brennslan“ á
FM 957 við miklar vinsældir. Hjörvar samþykkti að
sýna lesendum DV á sér hina hliðina.
Ef þú þyrftir að breyta, hvað mynd-
irðu vilja heita eða vera annað en
þú ert? Ég myndi helst vilja vera Kani af
suður-amerískum ættum og vera kallaður
Tony Rodriguez.
Hverjum líkist þú mest? Hef heyrt
marga segja að ég og Brad Pitt séum
óþægilega líkir.
Hvað halda margir um þig sem
er alls ekki satt? Að mér sé illa við
Færeyinga. Það er fjarri sannleikanum,
margir af mínum bestu vinum eiga skyldfólk
í Færeyjum.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í
skólum sem er ekki kennt þar núna?
Mannasiði.
Hvað viltu að standi skrifað á leg-
steininum þínum? Hér hvílir Vörðvar,
maður þjóðarinnar, síðasti vinur Suðurnesj-
anna, vinur litla mannsins, Dr. Football og
The Hardest Working man in Showbiz.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði
alltaf spilað um leið og þú gengir
inn í herbergi allt þitt líf, hvaða lag
myndirðu velja? „Return of the Mack“
með Mark Morrison. Lag frá 96.
Hvað ætti ævisagan þín að heita?
Númer eitt.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
„The Last Boy Scout“ frá árinu 1991.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Rendur á gallabuxum.
Hverjum geturðu best hermt eftir?
Ég er frábær sem Dr. Phil, Lars Lagerback og
Ólafur Ragnar. En mín besta er Guðmundur
Þ. Harðarson sundlýsir.
Hverjum geturðu ekki hermt eftir?
Bubba Morthens. Alveg glatað.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á
þér? Rússi að tala ensku.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið?
Syni mínum að tala ensku við ömmu sína.
Hvað í hegðun hins kynsins ruglar
þig mest? Ekkert. Ég þekki hugarheim
kvenna betur en nokkur annar. Les þær eins
og opna bók.
Hvað er það merkilegasta sem hefur
gerst í heiminum á þínum líftíma?
Þegar fótboltamarkmönnum var bannað
að taka boltann upp með höndum eftir
sendingu frá samherja.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að
hafa misst af? Roxette í Kaupmanna-
höfn fyrir nokkrum árum. Þá hafði Marie
heilsu. En ekki lengur. Þetta tækifæri er
farið.
Hver er lélegasti fimmaur sem þú
hefur heyrt? Ekki er jakki frakki nema
síður sé. Aldrei fundist þetta fyndið.
Hver eru þín helstu afrek í útvarpi? Ég
er mjög stoltur af þeim Kittí Magg, Brjáni Breka
og Auðunni Guðrúnarsyni. Fyndnast finnst mér
þó þegar ég tók fyrir sögu Buttercup.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik? Starship
Troopers.
Í hverju ertu góður sem þú vilt
kannski ekki monta þig af? Ég get
drukkið marga Guinness á stuttum tíma. Hef
ekki heyrt að neinum finnist það frábært.
sigurvin@dv.is
A
lþingi Íslendinga var sett
með pomp og prakt í vik-
unni. Alls taka nítján nýir
þingmenn sæti á löggjaf-
arþinginu en þrettán þeirra hafa
aldrei gegnt þingmennsku áður.
Einn hinna splunkunýju þing-
manna er Bolvíkingurinn Halla
Signý Kristjánsdóttir. Halla Signý
er fædd á Fla-
teyri en hefur
frá árinu 2005
gegnt stöðu
fjármálastjóra
Bolungarvík-
ur. Hún skaust
óvænt inn á
þing á loka-
metrum alþing-
iskosninganna
og óskaði eftir
ársleyfi frá störfum sínum í fram-
haldi af því. Sögðu gárungar að í
ljósi tíðra þingkosninga undan-
farið þá hafi Halla Signý ákveðið
að fara öllu með gát.
Það sem færri vita er að Halla
Signý er systir Jóhannesar Krist-
jánssonar, dáðustu eftirhermu
landsins, en systkinin eru frá
bænum Brekku á Ingjaldssandi.
Jóhannes hefur gert mörgum
þjóðþekktum einstaklingum
skil en ein frægasta túlkun hans
er eflaust dáðasti sonur Fram-
sóknarflokksins, Guðni Ágústs-
son. Það kom því skemmtilega á
óvart þegar Jóhannes og Guðni
tóku höndum saman og fóru að
bjóða upp á skemmtidagskrá
undir yfirskriftinni „Orginalinn
og eftirherman“. Sýningar tví-
menninganna hafa notið mik-
illa vinsælda um allt land og
virðist ekkert lát vera á.
Eftirherman og
þingmaðurinn
Halla Signý
Kristjánsdóttir
Hundar Jóhönnu fastráðnir starfsmenn
n Íbúar á Sóltúni hæstánægðir n Hundarnir sinna mikilvægu starfi
J
óhanna Bjarndís Arapinowicz
hefur starfað sem sjúkraliði á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni
í tæp fjórtán ár. Undanfar-
in misseri hafa hundarnir hennar
tekið virkan þátt í starfinu og eru
tveir þeirra orðnir fastráðnir starfs-
menn á Sóltúni.
„Það var íslensk tík í iðjuþjálfun-
inni áður en hún starfaði bara á
þeirri deild. Svo vildi það til að ég
tók að mér Chihuahua-tík sem
hét Móna en hún kom af hræði-
legu heimili og fékk ég leyfi hjá yf-
irmanni mínum til þess að taka
hana með mér í vinnuna til þess að
kenna henni að vinna upp traust.
Sýna henni að það væru ekki allir
vondir í heiminum,“ segir Jóhanna
Bjarndís í viðtali við DV.
Jóhanna segir að
íbúar Sóltúns hafi fallið
kylliflatir fyrir Mónu og
andrúmsloftið á vinnu-
staðnum lifnað við.
„Þetta var því ekki
bara endurhæfing fyr-
ir Mónu heldur einnig
íbúana. Margir sem
búa á Sóltúni eru með
Alzheimer og hafa
ekki verið í beinum
samskiptum lengi og
eru því orðnir fjarrænir, en þegar
Móna kom fóru þeir allt í einu að
horfa á hundinn, klappa henni,
snerta og strjúka.“
Stuttu síðar drapst tíkin sem
hafði verið í iðjuþjálfuninni og
fékk Jóhanna þá leyfi til þess að
mæta reglulega með Mónu með
sér í vinnuna og fékk hún í kjölfarið
starfshundaskírteini og varð ein af
mikilvægu starfsteymi Sóltúns.
„Hún fékk svona hundakerru
og á morgnana svaf hún á með-
an við vorum í „rapporti“ og kom
svo með mér inn á ganginn og
þegar hún vildi og ef íbúarnir voru
þannig stemmdir þá fór hún mjög
oft upp í rúm til þeirra á morgnana
og vakti þá með kossum og knúsi.
Það var yndislegt.“
Móna fann vel á sér ef íbúarnir
voru veikir og sóttist þá mikið í að
vera hjá þeim.
„Ég græjaði svona koll svo hún
gæti hoppað sjálf upp í rúm og það
veitti svo mikla hugarró fyrir íbú-
ana þegar hún lá hjá þeim, yfirleitt
með snertingu þannig að íbúinn
gat sett höndina á hana og fundið
fyrir henni.“
Huggun fyrir
aðstandendur
„Eitt skipti voru
aðstandend-
ur sem sátu á
dánarbeði sem
spurðu hvort
þau mættu fá
Mónu lánaða
og fann hún það strax á sér að eitt-
hvað væri að. Hún fór bara til þeirra
og var hjá þeim í góðan klukku-
tíma, bara sem huggun fyrir þau.
Þannig að viðvera hundanna hefur
einnig veitt aðstandendum mikið.“
Því miður veiktist Móna af floga-
veiki og neyddist Jóhanna til þess
að láta svæfa hana og fylgdi því
mikill söknuður af starfsfólki og
íbúum Sóltúns.
Jóhanna tók svo við annarri
Chihuahua-tík sem heitir Sunna
en hún hafði einnig búið við erfið-
ar aðstæður. Gekk Sunnu svo vel í
starfi að haldin var afmælisveisla
fyrir hana á Sóltúni þar sem öllum
íbúum var boðið.
„Það var útbúið boðskort handa
íbúunum og þá sagði nú ein kon-
an: „Jæja, nú hef ég upplifað allt, ég
er að fara í hundaafmæli.“ Ég bak-
aði kökur sem litu út eins og hund-
ar, allt var skreytt og hundurinn var
í kjól. Þetta var mikil hátíð. Því mið-
ur er Sunna með bæklaða fætur og
hefur því ekki úthald í allt labbið
sem vinnan krefst svo þá bættist við
sú þriðja, hún Emma litla.“
Emma litla er tveggja ára Chihu-
ahua-tík og verður hún framtíðar-
starfsmaður Sóltúns.
Jóhanna segist í samtali við DV
vinna fjóra daga í viku og mæt-
ir Emma á aðra hverja vakt með-
an verið er að venja hana við. Svo
muni hún mæta á hverja vakt þegar
aðlöguninni verður lokið. Hún seg-
ir að allir íbúar hafi tekið vel í þetta
fyrirkomulag enda veiti hundarnir
annars konar félagsskap. „Ég vona
að þetta verði miklu algengara og
ég held það muni verða það. Mér
finnst Sóltún vera magnað heim-
ili að taka svona vel á móti dýrum.
Á svona sambýlum verður fólk oft
mjög innilokað og er starf hunds-
ins svo mikilvægt. Hann lækkar
blóðþrýsting, veitir íbúum gleði og
hlátur, skapar endurminningar og
örvar hug og líkama.“ n
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is