Morgunblaðið - 09.08.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.08.2017, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2017 Ronnie Wood, gítarleikari hljóm- sveitarinnar Rolling Stones, greindist með lungnakrabbamein fyrr á árinu. Frá þessu er greint á vefsíðu The Guardian. Í læknis- skoðun lýsti Wood fyrir lækni sín- um verkjum sem hann líkti við „brennandi sprengistjörnu í vinstra lunganu“. Eftir fimm klukkustunda aðgerð var lungað fjarlægt úr Wood og þar sem æxl- ið hafði ekki breiðst meira út er hann nú talinn heilbrigður. Wood segist aldrei hafa tekið til greina að fara í efnameðferð gegn krabbameininu, ekki þó vegna þess að hann teldi það ekki geta virkað heldur því hann gat ekki hugsað sér að missa hárið. „Þetta hár var aldrei að fara neitt,“ sagði Wood við blaðamann Daily Mail. „Kemur ekki til greina. Ég treysti því bara að allt yrði í lagi.“ Wood segist hafa þurft að bíða í viku eftir niður- stöðum úr læknisskoðuninni og að mikil spenna hafi ríkt á meðan hann beið. „Í heila viku hékk allt á bláþræði og öllu hefði getað verið lokið; tími kominn til að segja bless.“ Jafnframt brýnir Wood fyrir fólki að nauðsynlegt sé að fara reglulega í lækn- isskoðun til að fyrirbyggja upp- byggingu krabbameins. „Fólk verður að fara í skoðun. Virkilega verður að fara í skoðun. Ég var helvíti heppinn en ég hef líka allt- af átt magnaðan verndarengil sem vakir yfir mér. Í raun ætti ég ekki einu sinni að vera hér lengur.“ Gítarleikarinn hafði ver- ið reykingamaður í um fimmtíu ár en hafði hætt reykingum þegar hann varð faðir tvíbura. Wood skrifaði á Twitter að sér liði vel og væri tilbúinn að hitta aðdá- endur sína á tónleikaferðalagi í næsta mánuði. Rolling Stones fer á stúfana um Evrópu í september og mun halda 14 tónleika. Engir tónleikar verða þó haldnir í Bret- landi vegna skorts á hentugum tónleikastöðum því hinir ákjósan- legustu hafa verið teknir frá í tengslum við íþróttaviðburði. Krabbinn úr Wood AFP Hárfagur Ronnie Wood gat ekki hugsað sér að missa hárið. Jazzhátíð Reykjavíkur 2017 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hið kunna og margverðlaunaða tríó bandaríska djasspíanistans Freds Hersch kemur fram á tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur í Eldborgar- sal Hörpu á laugardagskvöldið kem- ur, klukkan 20.30. Fred Hersch er einn virtasti djasspíanisti samtímans, fjölhæfur og afar persónulegur túlkandi tón- smíða annarra auk þess að vera sjálfur mikilvirkur lagasmiður. Á dögunum völdu gagnrýnendur Downbeat-tímaritsins hann næst- besta djasspíanista ársins, plötu tríósins Sunday Night at the Van- guard völdu þeir þriðju bestu djass- plötu ársins og þá var tríóið sjálft valið fjórða besta djasshljómsveitin. Og til marks um aðrar viðurkenn- ingar sem Hersch hefur hlotið á síð- ustu misserum valdi Jazz Magazine í Frakklandi hann „erlenda lista- mann ársins“ og í fyrra hlaut hann merk verðlaun, Doris Duke Artist Award og 30 milljón króna verð- launafé. Hersch hefur verið í framvarðar- sveit djassleikara í New York-borg undanfarna áratugi en hann er ekki bara þekktur fyrir hæfileika við slaghörpuna heldur einnig fyrir bar- áttu fyrir réttindum samkyn- hneigðra. Hann er fyrsta djass- stjarnan sem kemur út úr skápnum, hann er HIV-smitaður og hefur haldið fjölda fyrirlestra í skólum og á öðrum vettvangi um þau mál. Eft- ir mánuð gefur hið virta forlag Ran- dom House út sjálfsævisögu hans, Good Things Happen Slowly – A Life In and Out of Jazz. Þar fjallar Hersch auk tónlistarinnar um veik- indi sín, en árið 2007 var hann í dái í tvo mánuði af þeim sökum. Lesum hugsanir hver annars Þegar Hersch er spurður í símtali hvað gestir muni upplifa á tónleik- unum í Hörpu segir hann að þeir fé- lagarnir, bassaleikarinn John Hébert og trymbillinn Eric Mc- Pherson, hafi nú leikið saman í átta ár og þróað afar sterkt samband skilnings og þekkingar á mögu- leikum í samleik og á leik hver ann- ars. „Við lesum hugsanir hver annars. Félagar mínir hafa báðir hæfileika til að leika það sem mætti kalla „beinlínu-djass“ yfir í meira ab- strakt verk sem og fallegar ball- öður. Í raun leikum við í tríóinu býsna fjölbreytilega tónlist. Og ég sem líka fjölbreytileg verk. Á tón- leikunum verður góð blanda af mín- um eigin lagasmíðum, við leikum alltaf eitt lag eftir Monk, alltaf ein- hverja ballöðu, stundum einhverja standarda úr amerísku söngvabók- inni og enn fremur stundum verk eftir aðra mikilvæga djassleikara, eins og Ornette Coleman eða Wayne Shorter. Ég ákveð ekki lagalistann fyrr en við erum komnir á svið og byrjaðir að spila – við vitum á hvaða lagi við byrjum og annað ekki. Tónleikarnir þróast þaðan, út frá stemningunni og því hvað okkur langar að gera.“ – Meirihluti verkanna sem þið flytjið venjulega er þínar eigin tón- smíðar; ertu sífellt að semja? „Já, það má segja það. Ég er nýbúinn að semja nýjan skammt fyrir tríóið, tólf eða þrettán lög, og við prufuðum þau á tónleikum í síð- ustu viku í Village Vanguard- klúbbnum. Ég held þau hafi öll tek- ist nokkuð vel. Og býst við því að við munum leika einhver þeirra á Ís- landi.“ Gæti leikið þau með byssu við höfuðið – Þú minntist á ameríska söngva- safnið, „The American Songbook“- svokallaða. Er það náma sem enda- laust er hægt að sækja í? „Ég leik ekki á neinum aula- tónleikum“  Tríó eins þekktasta djasspíanista Bandaríkjanna, Freds Hersch, kemur fram í Eldborgarsal Hörpu á laugardag  Hersch er þekktur baráttumaður fyrir réttindum samkynhneigðra Djassmaðurinn „Á tónleikunum verður góð blanda af mínum eigin lagasmíðum, við leikum alltaf eitt lag eftir Monk, alltaf einhverja ballöðu, stundum einhverja standarda úr amerísku söngvabókinni,“ segir Fred Hersch um tónleikana í Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.