Morgunblaðið - 29.08.2017, Qupperneq 1
Yfirvöld í Bandaríkjunum búast við
að um hálf milljón manna muni
þarfnast aðstoðar vegna flóðanna í
Texas og að 30 þúsund manns þurfi
að gista í neyðarskýlum vegna
hamfaraflóðanna sem hófust á
föstudaginn í kjölfar hitabeltis-
stormsins Harvey. Talið er að um
300 þúsund manns séu án rafmagns
á svæðinu. Forseti Bandaríkjanna,
Donald Trump, lýsti í gær yfir
neyðarástandi í nágrannaríkinu
Louisiana og sagði hamfarirnar
ekki eiga sér sögulega hliðstæðu.
Veðurfræðingar búast við enn
meira vatnsveðri og flóðum í fram-
haldinu. Allt að tvö þúsund manns
hefur verið bjargað í og umhverfis
Houston, sem er fjórða fjölmenn-
asta borg Bandaríkjanna, þar sem
búa um 6,6 milljónir manna.
Um tólf þúsund þjóðvarðliðar
hafa verið ræstir út til að aðstoða
fólk í neyð. Örvæntingarfullir íbúar
hafa leitað til samfélagsmiðla til að
biðja um hjálp með myndum af fjöl-
skyldum sínum þar sem þau eru
strandaglópar á heimilum sínum
þar sem að vatnavextir eru miklir.
Þyrlur eru að tína fólk upp af hús-
þökum til að bjarga því. Að minnsta
kosti átta eru látnir.
Búa sig undir meiri hamfaraflóð
AFP
Vatnavextir Íbúar á hrakhólum.
Um 30 þúsund
manns á vergangi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ráðgjafarfyrirtækið Analytica hefur
niðurfært hagvaxtarspá í ár úr 6%
niður í 4,5-5,2%. Ástæðan er minni
vöxtur ferðaþjónustu en spáð var.
Með því fylgir Analytica í kjölfar
Seðlabankans sem niðurfærði hag-
vaxtarspá sína í síðustu viku.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir vísbendingar um að toppur
hagsveiflunnar verði fyrr en talið
var. Hagvöxtur næsta árs geti farið
niður í 2,5%. Það yrði kólnun.
Ingólfur Bender, hagfræðingur
Samtaka iðnaðarins, segir útlit fyrir
minni hagvöxt í ár og næstu ár en
spáð var. „Greiningaraðilar eru að
færa niður spár um hagvöxtinn.
Vöxtur ferðaþjónustu í ár hefur ekki
verið jafn mikill og spáð var.“
Gústaf Steingrímsson, hagfræð-
ingur hjá Landsbankanum, segir
áhrif gengisstyrkingarinnar á ferða-
þjónustuna hafa verið vanmetin.
Samdráttur hafi verið í vissum grein-
um ferðaþjónustunnar. Það sé lítið
svigrúm til launahækkana hjá út-
flutningsfyrirtækjum.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir greinilegt
að þeir kraftar sem drifið hafa áfram
útflutning og hagvöxt síðustu fimm
ár séu að gefa eftir. Þ.e. ferðaþjón-
usta og fjárfestingar tengdar henni.
Drifkraftar gefa eftir
Analytica og Samtök iðnaðarins telja spár hafa ofmetið hagvöxt í ár og næsta ár
Sérfræðingur hjá Landsbankanum telur áhrif gengisstyrkingarinnar vanmetin
MSpá nú minni hagvexti »10
Standa við áætlunina
» Hlynur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri viðskipasviðs
Keflavíkurflugvallar, segir
Isavia standa við spá um að
hingað komi 2,2-2,3 milljónir
erlendra ferðamanna í ár.
» Spá ársins sé á áætlun.
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 1 7
Stofnað 1913 207. tölublað 105. árgangur
STJARNAN Í 32-LIÐA
ÚRSLIT MEISTARA-
DEILDAR EVRÓPU MEÐ HNÚÐ TIL AÐ
AUKA Á KYNÞOKKANN
NEI, HÆTTU NÚ
ALVEG, EFTIR
VILLA NAGLBÍT
DAGLEGT LÍF 12-13 MENNING 31ÍÞRÓTTIR 2
Viðmiðunarreglur dóms-
málaráðuneytisins um fasteigna-
kaup útlendinga hér á landi
gera það ólíklegt að kínverskir
fjárfestar geti keypt jörðina
Neðri-Dal í Biskupstungum til
að reka þar ferðaþjónustu eins
og hugur þeirra er sagður
standa til.
Ráðuneytið miðar við að land-
svæði utan skipulagðs þéttbýlis
sem leigt eða selt er til atvinnu-
starfsemi útlendinga utan EES-
svæðisins sé að hámarki 25
hektarar en Neðri-Dalur er
1.200 hektarar.
Jóhannes Tómasson, upplýs-
ingafulltrúi ráðuneytisins, segir
að við þessar reglur hafi verið
stuðst frá árinu 2014. » 18
Jarðakaupin ekki
umfram 25 hektara
Tveimur Þristum, Páli Sveinssyni sem er af gerðinni Douglas
C-47A, og Breitling Douglas DC-3, sem nú er hér á landi í
hnattflugi, var í gærkvöldi flogið saman vestur að Mýrum og
Snæfellsnesi og úr varð einstakt myndefni í fallegri kvöld-
birtu. Breitling-vélin var smíðuð árið 1940 en hin íslenska,
sem lengi var í eigu Flugfélags Íslands og seinna Landgræðsl-
unnar, er þremur árum yngri. Eldri flugvélar sjást varla leng-
ur og því var flugferðin merkur viðburður og verður vænt-
anlega lengi í minnum hafður meðal flugáhugamanna.
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
Öldungar á flugi út af Mýrum
Norðurkóresk yfirvöld skutu flug-
skeyti yfir norðurhluta Japans í
gærkvöldi. Viðvörunarkerfi í Japan
varaði íbúa á svæðinu við en skeytið
olli þó engu tjóni.
Japanski herinn reyndi ekki að
skjóta niður flugskeytið sem fór í
gegnum japanska lofthelgi um
klukkan sex að morgni að jap-
önskum staðartíma, en laust upp úr
klukkan níu í gærkvöldi að íslensk-
um tíma.
Shinzo Abe, forsætisráðherra
Japan, kveðst munu gera allt sem í
sínu valdi standi til að vernda jap-
anskan almenning. Yfirvöld í Suð-
ur-Kóreu sögðu N-Kóreu hafa skot-
ið upp flauginni nærri höfuðborg
Norður-Kóreu, Pyongyang.
N-Kórea sendi skeyti
AFP
Leiðtoginn Kim Jong-Un.
Flaug yfir norð-
urhluta Japans