Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017 Sigurður Gylfi Magn-ússon, prófessor viðsagnfræði- og heim- spekideild Háskóla Íslands, á 60 ára afmæli í dag. Hann er þekktastur fyrir ein- sögurannsóknir sínar en í þeim er lögð áhersla að rannsaka smá samfélög, einstaka atburði eða ein- staklinga, og þá oftast of- urvenjulegt fólk eða ofur- óvenjulegt fólk. Það má segja að námskeiðin tvö sem Sigurður Gylfi verður með í HÍ í haust tengist ein- sögunni og fræðilegum áherslum hans á umliðnum árum: „Annað námskeiðið heitir því óvenjulega nafni „Fríkfræði; af- brigðilegir, úrhrök og jaðarhópar – rannsóknir á hinu óvenjulega.“ Það fjallar eins og nafnið bendir til um fólk sem hefur átt við einhvers konar fötlun að stríða eða hefur kosið að binda bagga sína öðrum hnútum en samferðamennirnir. Horft er sérstaklega til 19. aldar og fram á þá 20. Á því tímabili í sögunni var víða að finna í Evrópu og í Bandaríkjunum það sem var nefnt „Freak shows“ þar sem fólk sem var á einhvern hátt óvenjulegt var hreinlega haft til sýnis, öðrum til skemmtunar en vísindin fengu einnig mikinn áhuga á fólki sem var of stórt eða of lítið, samvaxið eða hvernig sem það nú var. Við höldum oft að samtíminn standi mikið sterkar siðferðilega en fortíðin en í dag höldum við enn sýningar á fólki eins og vinsælir sjónvarpsþættir sanna. Hitt námskeiðið heitir „Menning og blekking – vald, samfélag, fólk.“ Það fjallar um átök um menninguna, um hvað er deilt í því sam- bandi og hvaða hagsmunir eru í húfi. Það er alltaf verið að blekkja með frásögnum um fortíðina og sagnfræðingar hafa vissulega tekið þátt í slíkum blekkingarleik.“ Sigurður Gylfi er á leiðinni til Helsinki með fjölskyldunni, eigin- konu sinni, Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur, prófessor í hagfræði við HÍ, og fóstursyni sínum Pétri Bjarna, 15 ára, til að fylgjast með ís- lenska karlalandsliðinu, bæði í fótbolta og körfubolta. „Pétur Bjarni spilar körfubolta með KR og við erum báðir miklir KR-ingar. Ég hélt afmælisveislu um síðustu helgi og fékk frá þeim mæðginum hand- prjónaða lopapeysu sem lítur út eins og KR-búningur með KR- merkinu framan á. Þetta er algjör kjörgripur og listaverk sem Sonía Egilsdóttir, formaður Kvenfélags Hringsins, prjónaði. Ég hlakka til að fara á KR-völlinn í henni, á næsta heimaleik.“ KR-ingur Sigurður Gylfi í KR-peysunni. Heldur áhugaverð námskeið í haust Sigurður Gylfi Magnússon er sextugur í dag V algarður Hilmarsson fæddist á Fremstagili í Langadal 29.8. 1947 og ólst þar upp við öll al- menn sveitastörf. Hann gekk í farskóla Engihlíðarhrepps en að öðru leyti í skóla lífsins, hefur sótt nokkur námskeið og stjórnunarnám í Háskólanum á Akureyri. Valgarður var bóndi á Fremstagili á árunum 1970-2004 en þá fluttu þau hjónin til Blönduóss og hafa búið þar síðan. Valgarður fékk ungur áhuga á fé- lagsmálum. Hann var formaður ung- mennafélagsins Vorboðans og Bún- aðarfélags Engihlíðarhrepps, gegndi síðan formennsku í Ung- mennasambandi Austur-Húnvetn- inga og í stjórn Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu. Þá stjórn- aði hann slátrun í sláturhúsi SAH á Blönduósi í nokkur ár. Valgarður varð oddviti Engihlíð- arhrepps 1974 og þar til sveitarfé- lagið sameinaðist Blönduósbæ árið 2002, en eftir sameininguna varð hann forseti bæjarstjórnar í hinu sameinaða sveitarfélagi og hefur verið það síðan, með fjögurra ára hléi. Hann hyggst því ljúka 40 ára sveitarstjórnarstarfi næsta vor. Valgarður var oddviti og fram- kvæmdastjóri Héraðsnefndar Aust- ur-Húnvetninga um langt árabil og sat í sýslunefnd þar á undan. Hann var formaður rekstrarnefndar Húnavallaskóla um nokkurn tíma, skólanefndarformaður Tónlistar- skóla Austur-Húnvetninga í mörg ár, formaður sjúkrahússtjórnar í nokkur ár, starfaði lengi að mál- efnum fatlaðra, var formaður svæð- isstjórnar málaflokksins á Norður- landi vestra og formaður byggða- samlagsins Róta. Auk þess hefur Valgarður starfað í ýmsum nefndum innan héraðs. Valgarður sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga í 12 ár og í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveit- arfélaga í 20 ár en því fylgdu störf í Valgarður Hilmarsson, forseti sveitarstj. Blönduósbæjar – 70 ára Hjónin Hér eru þau Valgarður og Vilborg í stóðsmölun á Laxárdal. Syngjandi bóndi, gæfu- og félagsmálamaður Fjölskyldan Valgarður og Vilborg með börnum, tengda- og barnabörnum. Mosfellsbær Elsa María Björnsdóttir fæddist á Landspítalanum 16. febr- úar 2017 kl. 20.48. Hún vó 3.750 grömm og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Sólbjört Ósk Jensdóttir og Björn Gunnar Rafnsson. Á myndinni er Elsa María með stóru systur sinni, Emelíu Ósk. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.iswww.gilbert.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.