Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Kammerkórinn Schola cantorum hefur haldið vikulega mið- vikudagstónleika í Hallgríms- kirkju í sumar undir stjórn Harðar Áskels- sonar. Í hádeg- inu á morgun kl. 12 er komið að lokatónleikum sumarsins. Á efnis- skránni eru íslenskar kórperlur í bland við uppáhaldsverk af verk- efnaskrá kórsins. Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir syngur einsöng í Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns við undirleik Harðar og kórinn flytur Vökuró eftir Jórunni Viðar í nýrri útsetn- ingu eftir Hafstein Þórólfsson þar sem Guðmundur Vignir Karlsson tenór syngur einsöng. Að tónleikunum loknum er gest- um boðið upp á létta hressingu í suðursal Hallgrímskirkju. Lokatónleikar sumars á morgun Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Ráðstefnan snýst um fræðigrein sem á ensku kallast „Performance Science“ þar sem meginviðfangsefnið eru raunvísindarannsóknir á því fyr- irbæri sem við köllum „perform- ance“. Það er ekki auðvelt að færa orðið „performance“ yfir á íslensku en í þeim tilfellum sem það er notað um sviðslistir, þ.e. tónlist, leiklist og dans, mætti kannski nota orð- ið „listflutn- ingur“,“ segir Pétur Jónasson sem stendur að al- þjóðlegu ráðstefn- unni Inter- national Sym- posium on Performance Science sem fram fer í Hörpu dagana 30. ágúst til 2. sept- ember. Ráðstefnan hefur verið haldin á tveggja ára fresti frá árinu 2007 og aðalskipuleggjandi hennar er rann- sóknasetrið Centre for Performance Science í Royal College of Music í London, en það er starfrækt í sam- vinnu við Imperial College London og í ár verður Listaháskóli Íslands gestgjafi. Listir, íþróttir og læknisfræði „Performance Science“ spannar allt frá mjög nákvæmum og ítarleg- um rannsóknum á því hvernig heilinn starfar, taugalífeðlisfræði, og yfir í það að skoða hvaða áhrif listflutn- ingur hefur á samfélagið,“ útskýrir Pétur. „Mest er þetta skoðað út frá flytjendunum sjálfum og sérstök áhersla lögð á þá sem ná lengst, með það að markmiði að finna leiðir til að þeir geti bætt sig enn meira. Hluti af þessu snýr einnig að menntun og hvernig flytjendur þróast í gegnum ævina. Auk þess snúa þættir að heilsufari, bæði andlegri og líkam- legri heilsu, því fólk sem starfar við þessar listgreinar er oft undir miklu álagi.“ Pétur segir rannsóknirnar jafn- framt hafa á undanförnum árum færst yfir á önnur svið þar sem hlið- stæður eru t.d. fundnar milli list- greina og listflutnings, annars vegar og íþrótta og læknisfræði, hins vegar. Hvað fræðigreinina sjálfa varðar seg- ir hann ekki vera langt síðan hún hafi verið sérstaklega skilgreind. 90 fyrirlestrar á fjórum dögum „Mér sýnist þetta vera rannsakað í frekar litlum mæli ennþá hér heima en ég er sem stendur í doktorsnámi við Royal School of Music í London og þannig tengist ég þessu. Ég er líka sjálfur músíkant og kennari við Listaháskóla Íslands svo ég er með fæturna báðum megin. Prófessorinn minn, Aaron Williamon, er sá sem setti þessa ráðstefnu af stað fyrst árið 2007 og hún hefur síðan verið haldin á tveggja ára fresti. Við stjórnum þess- ari ráðstefnu hér saman,“ segir Pét- ur. Á ráðstefnunni verða haldnir 90 fyrirlestrar, 75 „poster“ kynningar, sjö vinnustofur og þrjú málþing og það allt á fjórum dögum. „Það hefur aldrei verið meiri þátt- taka, þarna verða 200 manns sem eiga aðild að rannsóknum og þeir koma frá 30 mismunandi löndum, alls staðar að úr heiminum. Við verðum með marga sali Hörpu í gangi - Silfurberg A og B og Kaldalón, Rímu, Stemmu og Vísu og þetta mun virka þannig að það verða þrír fyrirlestrar í gangi samhliða, nema þegar aðalfyr- irlestrarnir fjórir eru í gangi, þá sam- einast allir til þess að hlýða á þá,“ segir Pétur. Keppnisróður og sjónrænn þátt- ur tónlistarflutnings Fyrsti aðalfyrirlesarinn er Íslend- ingurinn Hilmar Bragi Janusson, fyrrverandi forseti Verkfræði- og raunvísindadeildar Háskóla Íslands, og nefnist fyrirlestur hans „Assymm- etry and symmetry of arts and science“. „Hann ætlar að fjalla um hliðstæðurnar í því hvernig listamenn og vísindamenn hugsa, sem er afar gott innlegg þarna alveg í byrjun. Hann setur tóninn því þetta er í raun vettvangur þar sem listir og vísindi mætast,“ segir Pétur. „Næsta dag er það Alison McGreg- or, prófessor í lífaflfræði stoðkerf- isins, frá Imperial College of London sem ætlar að kynna 15 ára rannsókn sem hún hefur gert á afreksfólki í keppnisróðri. Rannsóknarteymið hefur m.a. unnið með kvennaliðinu breska sem vann gull á Ólympíu- leikunum í Ríó og reynt að finna leiðir til að hámarka árangur þess. Þau skoða hvernig þetta afreksfólk fúnke- rar bæði andlega og sérstaklega lík- amlega og finna leiðir til að bæta ár- angurinn og forðast meiðsli. Þriðji fyrirlesarinn heitir Reinhard Kopiez og er frá Hannover í Þýska- landi. Hann fer inn á það hvernig við metum tónlistarflutning og hvaða áhrif sjónræni þátturinn hefur, hvernig hægt er að mæla hvernig fólk metur þegar það hlýðir á list- viðburð,“ segir Pétur. Prufuhljóðfærið er fiðlan „Lokafyrirlesturinn er frá prófess- or í Harvard sem heitir Steven Schlozman. Hann líkir saman lækna- vísindum og sviðslistum. Hann spyr m.a: „Ef læknavísindi eru flutningur (performance), hver er þá áhorfand- inn?“ og stóra spurningin er hvernig læknavísindin geta lært af listflytj- endum.“ Pétur bendir á að enn hægt að skrá sig á ráðstefnuna, bæði sé hægt að skrá sig á hana alla eða einn og einn dag. „Og meðan á þessu stendur verður opin tilraunastofa fyrir al- menning á fimmtudag og föstudag. Þetta er mjög stórt þriggja ára al- þjóðlegt rannsóknarverkefni um nýj- ustu tækni við hljóðfærakennslu með hljóð-, mynd-, vídeó- og hreyfitækni. Prufuhljóðfærið er fiðlan og það á að prufukeyra þetta allt þarna í Hörpu. Fólki er velkomið að koma og þótt það hafi aldrei spilað nótu á fiðlu má taka upp eina slíka og prófa, þá sér fólk strax hvernig það stendur sig,“ segir Pétur og hlær. „Þarna verða tveir mjög frægir fiðluleikarar frá London sem munu sýna þetta, auk nokkurra fremstu fiðluleikara okkar Íslendinga sem ætla að koma og prófa.“ „Þar sem listir og vísindi mætast“  Ráðstefnan International Symposium on Performance Science hefst í Hörpu á morgun  90 fyrirlestrar, 75 kynningar, sjö vinnustofur og þrjú málþing á fjórum dögum Sýndarveruleiki Fiðlunemi við Royal College of Music í London leikur fyrir „sýndar-áheyrendahóp“ í sérstökum hermi sem hefur verið útbúinn af vís- indamönnum við Centre for Performance Science. Í honum geta nemendur æft sig ýmist í að leika á tónleikum eða fyrir sýndar-nefnd í áheyrnarprufu. Tækin eru gagnvirk og öll umgjörð mjög raunveruleg, að sögn Péturs. Hann segir Imperial College Business School nýta sér þetta umhverfi til að þjálfa nemendur í að koma fram á blaðamannafundum, kynningum, sjónvarpsviðtölum o.þ.h. Hermirinn nefnist á ensku Performance Simulator. Pétur Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.