Morgunblaðið - 29.08.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Fallegur blámi lá í loftinu þegar horft var yfir
Reykjavík í gær. Svipur borgarinnar er sífellt að
breytast, háhýsi byggð á síðustu árum gnæfa yf-
ir rétt eins og byggingakranarnir sem nú sjást
svo víða og vitna um ágætan gang í efnahagslífi
þjóðarinnar. Á svona dögum verður góða veðrið
líka til þess að auka fólki bjartsýni, en veður-
spáin fyrir daginn í dag og á morgun gerir ráð
fyrir sól og blíðu með 10 til 14 stiga hita um
sunnanvert landið, sem raunar mun ná til fleiri
landshluta ef að líkum lætur. Fólk getur því enn
um sinn notið íslenska sumarsins, en þegar kom-
ið er fram undir ágústlok getur veður snúist
fljótt og gefið byggðum, mannlífi og landi nýtt
svipmót eins og hendi sé veifað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blámi yfir borginni sem breytist stöðugt
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
iGreen V5.06.02M
umgjörð
kr. 11.900,-
Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið
þá litasamsetningu sem þú vilt.
Líflegir litir!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Lögreglan hefur lengi talað um að
það sé nokkuð knappt í útkallsliði
hennar og við höfum oft rætt um að
við myndum þiggja aukinn sýnileika
lögreglu,“ segir S. Björn Blöndal,
formaður borgarráðs.
Á síðasta fundi borgarráðs
Reykjavíkur var samþykkt að senda
áskorun til dómsmálaráðherra um
að fjölgað verði í útkallsliði lögregl-
unnar innan höfuðborgarinnar.
Verði það í samræmi við það sem
fram kom í bréfi lögreglustjóra sem
móttekið var 14. ágúst síðastliðinn.
Áskorun þessi er til komin eftir
að Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir lagði fram tillögu um fjölgun
lögregluembætta á höfuðborgar-
svæðinu. Hún dró þá tillögu til baka
og borgarráð samþykkti í kjölfarið
þessa áskorun.
Sigurður Björn segir að á
ákveðnum álagstímum hafi lögregla
stundum mátt vera sýnilegri. „Við
viljum endilega að okkar velviljaða
og óvopnaða lögregla sé sýnilegri.
Þetta er stuðningsyfirlýsing við
réttmætar kröfur þar um,“ segir
hann.
„Við erum ekki að biðja um aukið
fé en það eru hins vegar ýmsar af-
leiðingar af þessari auknu umferð
ferðamanna sem þarf að skoða frek-
ar. Það bætast við ýmis verkefni
vegna bílaleiga, Airbnb og slíkra
þátta. Þetta er spurning um það
hversu sýnileg lögreglan á að vera,“
segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð-
inu.
Vilja fá fleiri löggur
Borgarráð skorar á dómsmálaráð-
herra að fjölga í útkallsliði lögreglu
Morgunblaðið/Hanna
Lögregla Borgarráð telur að sýni-
leiki lögreglu ætti að vera meiri.
Sex F-15 orrustuþotur, KC-135
eldsneytisbirgðaflugvél og um 200
liðsmenn bandaríska flughersins
eru komnir til landsins vegna loft-
rýmisgæslu við Ísland samkvæmt
gildandi áætlun Atlantshafs-
bandalagsins.
Verkefnið fer formlega af stað
um miðja vikuna, en frá og með
deginum í dag mun flugsveitin
kanna aðflug inn á varaflugvellina
á Akureyri og Egilsstöðum.
Loftrýmisgæslan er í samræmi
við áætlanir fyrir Ísland og stendur
fram í september. Af hálfu Íslend-
inga kemur Landhelgisgæslan að
verkefninu, það er starfsstöðin á
öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli í samvinnu við Isavia.
sbs@mbl.is
Bandaríkja-
menn í loft-
rýmisgæslu
200 liðsmenn flug-
hersins eru komnir
Morgunblaðið/Þórður
Flugtak Orrustuþota fer í loftið.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Engin alvarleg slys hafa orðið við
köfun í Silfru í þjóðgarðinum á
Þingvöllum frá því að reglur voru
hertar þar í marsmánuði síðasta
vetur. Eftirlit hefur verið aukið á
svæðinu og hefur sérsveit
ríkislögreglustjóra meðal annars
komið að því verkefni, að sögn Ein-
ars Á.E. Sæmundsen, fræðslu-
fulltrúi á Þingvöllum.
Átta fyrirtæki gera út á köfun og
„snorkl“ í Silfru og eru þrjú áber-
andi stærst. Í kjölfar tveggja bana-
slysa við köfun í febrúar og mars
síðasta vetur var gjáin tímabundið
lokuð, en fleiri alvarleg slys hafa
orðið þar á síðustu misserum.
Öryggiskröfur auknar
Þegar köfun var á ný heimiluð í
þjóðgarðinum höfðu fyrirmæli um
vinnubrögð verið hert og öryggis-
kröfur auknar. Meginefni breyttra
fyrirmæla var fækkun farþega á
hvern leiðsögumann og auknar kröf-
ur til þeirra sem hyggjast kafa og
yfirborðskafa í Silfru. Auknar kröf-
ur beindust m.a. að þurrbúninga-
réttindum kafara, staðfestingu á
hæfni og getu kafara, heilbrigð-
iskröfum gesta, aukinni ábyrgð
ferðaþjónustufyrirtækja, auk þess
sem köfun í blautbúningum er nú
óheimil.
„Í sumar höfum við verið með ít-
arlegt eftirlit með fyrirtækjunum,
sem skipuleggja köfun í Silfru,“ seg-
ir Einar. „Vinnuhópur var settur á
laggirnar til að fylgja eftir reglum
við Silfru og við fengum til að að-
stoða okkur sérfræðinga á sviði köf-
unar. Köfunarteymi frá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins, Landhelgis-
gæslunni og sérsveit Ríkislögreglu-
stjóra hafa lagt okkur lið, en sér-
sveitin kemur að þessu verkefni
sem stoðdeild fyrir lögregluemb-
ættið á Suðurlandi.
Þessir sérfræðingar hafa komið í
fjórar eftirlitsferðir og hefur meðal
annars verið farið yfir sérstakan
gátlista með ferðaþjónustufyrir-
tækjunum og kannað nákvæmlega
hvernig þau framfylgja reglum og
fyrirmælum. Fyrirtækin hafa í raun
tekið auknu aðhaldi á jákvæðan hátt
og nánast öll verið með allt sitt á
hreinu. Í tveimur tilvikum reyndust
leiðsögumenn þó ekki hafa uppá-
skrifaða pappíra frá Samgöngustofu
þó svo að þeir hefðu haft erlend skil-
ríki.
Það er aldrei hægt að tryggja
endanlega að ekki verði slys, en við
Silfru hafa ekki orðið alvarleg slys
frá því að nýjar reglur tóku gildi í
mars,“ segir Einar.
Samhliða hefur verið unnið að því
í sumar að móta reglur til framtíðar.
Færri kafa, fleiri „snorkla“
Heildarfjöldi gesta í Silfru hefur
lítið breyst á milli ára, að sögn Ein-
ars. Frá áramótum til 1. ágúst komu
um 32 þúsund manns, sem var svip-
að og á sama tímabili í fyrra. Hins-
vegar sé áberandi að nú komi fleiri
til að „snorkla“ og færri í köfun.
Hertar reglur eigi eflaust þátt í því,
en mögulega hafi verðlagið og meiri
kostnaður við köfun einnig áhrif í
þeim efnum.
Sérsveitin tekur þátt í eftirliti við Silfru
Engin alvarleg slys frá því að reglur voru hertar síðasta vetur Átta fyrirtæki skipuleggja köfun
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Köfun í yfirborði Eftirlit var aukið
við Silfru í kjölfar alvarlegra slysa.