Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is
Fagleg & persónuleg þjónusta
Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki
Hagkvæmara en þú heldur!
Dæmi:
AULIKA TOP
Frábær kaffivél fyrir
meðalstór fyrirtæki
Strætó bs hefur dregið til baka hluta
breytinga á aksturstíma bíla í B-
flokki sem sinna akstursþjónustu við
fatlað fólk. En akstursþjónustan
samanstendur af 80 bílum, þar af
eru 30 bílar í A-flokki sem sinna
reglubundnum akstri og 50 bílar í B-
flokki sem sinna öllum tilfallandi
akstri.
Í úrskurði kærunefndar útboðs-
mála frá því í júní í fyrra var sagt til
um að sérútbúnir hjólastólabílar
yrðu settir aftar í forgang, við það
færðist stór rekstraraðili, Prime To-
urs, aftar í forgang. Í kjölfar úr-
skurðarins var ráðist í hagræðingu
sem leiddi til breytingar á aksturs-
tíma og röðun farþega á bíla. Fram-
angreindur breytingar urðu til þess
að Prime Tours, tilkynnti Strætó bs
að fyrirtækið yrði nauðbeygt til þess
að hætta akstri vegna yfirvofandi
slæmrar afkomu. „Uppsögn Prime
Tours hefði haft slæm áhrif á akst-
ursþjónustuna á álagstímum. Sveit-
arfélögin sem standa að aksturs-
þjónustunni samþykktu því að draga
hluta breytinganna á aksturstíma í
B-flokki til baka. Í kjölfar þeirrar
samþykktar dró Prime Tours upp-
sagnir á bílstjórum sínum til baka og
þjónustustig akstursþjónustunnar
mun því haldast óbreytt,“ segir í
upplýsingum frá Strætó bs.
Akstursþjónustan helst óbreytt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strætó Hætti við breytingar á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Strætó hætti við
hluta breytinga
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Um 120 Íslendingar tóku þátt í al-
þjóðlegri rannsókn á lyfinu Canak-
inumab sem hefur verið lýst í fjöl-
miðlum sem
undralyfi gegn
hjartaáföllum og
krabbameini.
Niðurstaða rann-
sóknar á lyfinu
var kynnt um
helgina á lækna-
ráðstefnu sem
stendur nú yfir í
Barcelona en lyf-
ið á að draga úr
hættu á endurteknum hjartaáföllum
um fjórðung og líkum á andláti
vegna krabbameins um 50%, sam-
kvæmt grein í The Telegraph.
Landspítalinn og Hjartamiðstöðin
í Holtasmára komu að rannsókninni
hér á landi. Axel F. Sigurðsson,
hjartalæknir hjá Hjartamiðstöðinni,
telur lyfið ekki eins mikið undralyf
og haldið hefur verið fram. „Það er
stundum gert meira úr svona nið-
urstöðum en efni standa til. Það sem
er áhugavert við þessa rannsókn er
að verið er að fara nýja leið í með-
ferð hjarta- og æðasjúkdóma með
því að ráðast á bólguferlið. Hingað
til hefur verið einblínt á blóðfitu og
vægi kólesteróls en þarna er verið að
horfa á allt annað ferli í tilurð hjarta-
og æðarsjúkdóma,“ segir Axel.
Lyfjarannsóknin fór af stað árið
2011 og var rannsóknarlyfið gefið
sem stungulyf undir húð sjúklinga á
þriggja mánaða fresti. Um al-
þjóðlega rannsókn er að ræða sem
10.000 manns tóku þátt í, 1/3 hluti
fékk lyfleysu og 2/3 fengu virka lyfið.
Skilyrði fyrir þátttöku var að sjúk-
lingurinn væri búinn að fá krans-
æðastíflu og væri með hækkun á
bólguefninu hs-CRP í blóði. Axel
segir að það sem einkenni þá sem
eru með bólgur eftir kransæðastíflur
sé oft á tíðum ofþyngd, mikil kviðfita
og sykursýki. Þetta á þó alls ekki við
um alla sjúklingana sem tóku þátt í
rannsókninni.
„Lyfið hefur áhrif á bólgur og
bælir ákveðið ferli í ónæmiskerfinu.
Sjúklingar sem fá lyfið virðast að-
eins viðkvæmari fyrir alvarlegum
sýkingum en hins vegar dró lyfið
marktækt úr hættunni á endur-
teknum hjarta- og æðaáföllum. Þá
var líka lækkun í tíðni ákveðinna
krabbameina, sérstaklega lungna-
krabbameins, sem kom nokkuð á
óvart. Ónæmiskerfið á heilmikinn
þátt í tilurð krabbameina og þróun
þeirra. Hugsanlega hefur lyfið já-
kvæð áhrif á ónæmiskerfið sem gæti
aukið hæfni þess í baráttunni við
krabbamein,“ segir Axel.
Hreyfing skilað betri árangri
Lyfið Canakinumab er ekki nýtt á
markaði, það er þegar skráð og not-
að m.a. hér á landi við liðagigt í börn-
um og við erfiðum húðsjúkdómum.
„Það er hins vegar á þessu stigi
mjög dýrt og ólíklegt að það fari út í
almenna notkun fyrir hjarta- og
æðasjúklinga á þeim forsendum sem
liggja fyrir í dag. Þó að það sé töl-
fræðilega marktækur munur á hóp-
unum rannsókninni telst hann ekki
mikill. Það eru 10-15% minni líkur á
að þú fáir nýtt hjartaáfall ef þú ert í
lyfjahópnum borið saman við lyf-
leysuna. Þetta fer eftir því hvaða
lyfjaskammtur er notaður. Til að lyf-
ið fari í almenna notkun þarf það að
lækka í verði, það þurfa að koma
frekari sannanir um að það virki og
það þarf að skilgreina betur þá hópa
sem á að meðhöndla. Líklega beinist
notkun þess til að byrja með að
ákveðnum undirhópum sem eru í
mikilli áhættu og eru því taldir hafa
hvað mest gagn af meðferð.
Þegar verið er að velta fyrir sér
dýrri lyfjameðferð er mikilvægt að
benda sjúklingunum á hvað hann
getur gert sjálfur varðandi mat-
aræði, hreyfingu, reykingar og lífs-
stíl almennt. Þetta eru algjör lykil-
atriði og skipta oft á tíðum miklu
meira máli heldur en dýr lyf enda
hætta á aukaverkunum ekki til stað-
ar þar,“ segir Axel.
Ný leið í með-
ferð hjarta- og
æðasjúkdóma
Íslendingar tóku þátt í rannsókn á
lyfi sem á að draga úr hjartaáföllum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kransæðavíkkun Lyfið getur kom-
ið í veg fyrir endurtekin hjartaáföll.
Axel F. Sigurðsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Skilaboðin eru þau að við þurfum að
horfa á miðstigið og halda vel á spil-
unum þar. Þetta eru ekki ný sann-
indi en nú erum við með nákvæma og
góða mælingu á stöðunni,“ segir
Arnór Guðmundsson, forstjóri
Menntamálastofnunar.
Fyrstu niðurstöður lesfimiprófa
voru kynntar á fundi í menntamála-
ráðuneytinu í gær. Lesfimiprófin eru
afrakstur Þjóðarsáttmála um læsi
sem undirritaður var fyrir tveimur
árum af mennta- og menningarmála-
ráðherra, fulltrúum sveitarfélaga og
Heimilis og skóla.
Síðasta vetur var prófað í lesfimi
þrisvar sinum og fyrstu niðurstöður
benda til góðrar stöðu í yngstu ár-
göngunum. Þegar komið er upp að
tíu ára aldri er staðan hins vegar
ekki jafn góð og margir ná ekki við-
miðum sem sett hafa verið um les-
hraða. Viðmið yfirvalda eru um
fjölda rétt lesinna orða á mínútu.
Lesfimi krakka á miðstigi, í 5.-7.
bekk, kallar á úrbætur en svo taka
nemendur aftur við sér á unglinga-
stigi. Þessar niðurstöður eru frá-
brugðnar því sem sést í samanburð-
arlöndum. Fjölmargar erlendar
rannsóknir leiða í ljós stöðugar
framfarir upp í sjötta til sjöunda
bekk en svo dregur úr þeim eftir það.
Á Íslandi hægir hins vegar á þegar
miðstigi er náð en svo batnar lesfimi
aftur á unglingastigi.
Þegar nánar er rýnt í niðurstöð-
urnar kemur í ljós að nemendur í
fyrsta bekk eru þeir einu sem eru ná-
lægt því að ná lesviðmiði 1, en 89%
ná því. Aðeins 67% nemenda í sjötta
bekk og 68% nemenda í tíunda bekk
ná þessum lægstu viðmiðum. Ekki er
greint frá niðurstöðum í einstaka
skólum og sveitarfélögum.
Þátttaka í lesfimiprófum þetta
fyrsta ár þykir góð en 75% nemenda
í 1.-10. bekk tók þátt í prófunum í
maí. Alls lögðu 93% skóla
prófin fyrir á síðasta
skólaári. Mest þátt-
taka var í 3. bekk eða
83% en minnst í 10.
bekk, 54%
„Það er áskorun að
þróa kennsluaðferð
sem nýtist best við að
bæta lestur. Nú
höfum við
gögn til að
meta stöð-
una,“ segir
Arnór.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nám Niðurstöður lesfimiprófa síðasta árs gefa góð fyrirheit. Þessar stúlkur voru einbeittar í Norðlingaskóla í gær.
Þurfum að bæta les-
fimi 10-13 ára barna
Fyrstu niðurstöður lesfimiprófa þykja gefa góð fyrirheit
Þessar fyrstu niðurstöður les-
fimiprófa þykja gefa góð fyr-
irheit um framhaldið.
Um 80 prósent sveitarfélaga
hafa sett sér lestrarstefnu eða
eru með hana í vinnslu.
Halldór Halldórsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segist bjartsýnn á þróun
mála.
„Það er fagnaðarefni að við
erum komin vel af stað og það
er almenn þátttaka meðal sveit-
arfélaga,“ segir Halldór.
„Kennslan fer fram í skólum
en þjálfunin heima. Ef allir
leggjast á eitt er líklegra að for-
eldrar fylgi markmiðunum eft-
ir,“ segir
Hrefna Sigurjóns-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Heimilis og skóla.
Þjálfunin fer
fram heima
HLUTVERK FORELDRA
Halldór Halldórsson