Morgunblaðið - 29.08.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Einn færasti umferðarsérfræð-ingur landsins, Þórarinn
Hjaltason umferðarverkfræðingur,
skrifar sláandi grein í Morg-
unblaðið í gær. Hún
hefst þannig:
Eins og flestumer kunnugt þá
stefna sveitar-
félögin á höfuð-
borgarsvæðinu að
uppbyggingu svo-
kallaðrar borgarlínu, annaðhvort í
formi léttlesta eða hágæðastræt-
isvagna.
Áætlaður stofnkostnaður er alltað 200 milljarðar fyrir létt-
lestakerfi og 70 milljarðar fyrir
kerfi með hágæðastrætisvögnum.
Það er með ólíkindum að sveit-arstjórnir á höfuðborgarsvæð-
inu hafi látið sér detta í hug, að til
greina komi að fjárfesta fyrir allt
að 200 milljarða í léttlestakerfi á
næstu árum. Þessi upphæð er út úr
öllu korti miðað við þær fjárveit-
ingar ríkis og sveitarfélaga sem
hafa verið til ráðstöfunar í upp-
byggingu samgangna á höfuðborg-
arsvæðinu á undanförnum árum og
áratugum.“ Þórarinn gerir ráð fyr-
ir, miðað við umræðuna, að end-
anleg tillaga sveitarfélaganna verði
eingöngu um strætó. En í loka-
orðum segir hann:
Að öllu samanlögðu tel ég að 70milljarða fjárfesting í borg-
arlínu verði óhagkvæm. Jafnvel þó
að fjárfestingin myndi reynast hag-
kvæm, þá eru fjárveitingar tak-
markaðar og álitlegustu kostirnir í
uppbyggingu samgöngumann-
virkja eiga að fara fremst í for-
gagnsröðina.“
Sveitarstjórnarmenn ættu aðkynna sér grein Þórarins í
heild. Því fyrr sem þeir koma mein-
lokunni úr höfðinu á sér, því betra.
Þórarinn
Hjaltason
Milljarða meinloka
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 súld
Bolungarvík 8 súld
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 5 þoka
Þórshöfn 12 léttskýjað
Ósló 16 súld
Kaupmannahöfn 19 léttskýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 15 léttskýjað
Lúxemborg 26 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 18 rigning
Glasgow 16 þoka
London 26 léttskýjað
París 29 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 11 skúrir
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 19 skúrir
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Róm 33 heiðskírt
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 25 léttskýjað
Montreal 19 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 21 skýjað
Orlando 28 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:03 20:55
ÍSAFJÖRÐUR 5:59 21:08
SIGLUFJÖRÐUR 5:42 20:52
DJÚPIVOGUR 5:30 20:27
Björgunarsveitarmenn á Suður-
landi fundu í eftirmiðdaginn í gær
göngumann, Ungverja á fimmtugs-
aldri, sem hafði villst á Fimmvörðu-
hálsi, sem liggur milli Skóga undir
Eyjafjöllum og Þórsmerkur. Útkall
barst laust fyrir hádegi og fóru
björgunarsveitir þá þegar á vett-
vang og um klukkan hálfþrjú var
maðurinn fundinn, heill á húfi en
blautur eftir að hafa verið á hrakn-
ingi næturlangt
Skv. upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg villtist
maðurinn út af gönguleið niður í
bratt gil, en þangað fóru björg-
unarmenn og náðu manninum, sem
svo var komið til byggða. Öllu mun-
aði að maðurinn var með síma og
gat látið vita af sér. sbs@mbl.is
Ungverja bjargað
á Fimmvörðuhálsi
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og
menningarmálaráðherra, hefur
skipað starfshóp sem skoða á ís-
lenska bókaútgáfu og aðstæður
hennar. Eins og
Morgunblaðið
hefur greint frá á
bókaútgáfa undir
högg að sækja og
á hópurinn að
skila tillögum um
hvernig stuðn-
ingskerfi rithöf-
unda og útgáfu
námsbóka sé best
háttað, um raf-
rænt lesefni og
hljóðbækur, útgáfu barnabóka auk
þess hvernig auka megi kaup safna
á bókakosti. Kristrún Lind Birg-
isdóttir er formaður en hún og Páll
Valsson eru skipuð án tilnefningar.
Auk þeirra eiga sæti Egill Örn Jó-
hannsson fyrir hönd bókaútgef-
enda, Kristín Helga Gunnarsdóttir
frá RSÍ, Salka Guðmundsdóttir frá
Miðstöð íslenskra bókmennta, Jón
Yngvi Jóhannsson frá Hagþenki og
Sigurður Guðmundsson sem til-
nefndur er af fjármála- og efna-
hagsráðuneyti. Starfshópurinn á að
ljúka störfum eigi síðar en 1. des-
ember. hdm@mbl.is
Skipar starfshóp um
bókaútgáfu á Íslandi
Kristján Þór
Júlíusson