Morgunblaðið - 29.08.2017, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
✝ Jón HilmarRunólfsson,
endurskoðandi í
Reykjavík, fæddist
í Reykjavík 13.
október 1933.
Hann lést 19.
ágúst 2017.
Foreldrar hans
voru Þórdís Magn-
úsdóttir Steph-
ensen, húsmóðir,
f. 6. september
1905, d. 28. desember 1987, og
Runólfur Jónsson, pípulagn-
ingameistari, f. 17. nóvember
1900, d. 23. nóvember 1985.
Systkini Jóns Hilmars eru
Gunnar, rafvirkjameistari í
Reykjavík, f. 1927, d. 2015, og
Brynja Dís, f. 1948.
Jón Hilmar var tvíkvæntur.
Fyrri kona Jóns, sem hann
kvæntist 1955, var Eygló Mar-
grét Thorarensen, f. 11. júní
1935, d. 5. desember 1994. Þau
ar, f. 2003, og Eygló Margrét,
f. 2004. Síðari kona Jóns
Hilmars var Ragnheiður G.
Haraldsdóttir, f. 25. apríl,
1937, d. 31. maí 2009.
Jón lauk verslunarprófi frá
Verslunarskóla Íslands árið
1954 og fór skömmu eftir það
til starfa hjá Endurskoð-
unarskrifstofu Björns Steffen-
sen og Ara Thorlacius. Hann
fékk löggildingu sem endur-
skoðandi árið 1966. Eftir að
hann lét af störfum hjá End-
urskoðunarskrifstofunni hóf
hann sjálfstæðan rekstur und-
ir eigin nafni og um tíma
voru tveir af fyrri vinnu-
félögum hans í nánu sam-
starfi, þeir Eyjólfur Guð-
mundsson og Ólafur Nilsson.
Umsvif Jóns voru um langt
árabil mjög mikil og var hann
með verkefni, stór og smá,
um allt land. Frá árinu 1998
rak hann svo fyrirtækið ABC
ehf., bókhald og reikningsskil
– hin síðustu ár með systur
sinni.
Útför Jóns Hilmars verður
gerð frá Fossvogskirkju í
Reykjavík í dag, 29. ágúst
2017, klukkan 13.
slitu samvistir árið
1976. Börn þeirra
eru: 1) Runólfur
Þór, fram-
kvæmdastjóri, f.
1956. Kona hans
er Elísabet
Bjarnadóttir,
félagsráðgjafi, f.
1962, og eiga þau
einn son, Óskar, f.
2004. Sonur El-
ísabetar frá fyrra
sambandi er Bjarni Elísa-
betarson, f. 1981. Þau eru bú-
sett í Svíþjóð. 2) Hilmar, leik-
ari og leikstjóri, f. 1964. Kona
hans er Sóley Elíasdóttir, leik-
ari og framkvæmdastjóri, f.
1967. Börn þeirra eru Gígja, f.
1991, Eygló, f. 1992, Þórunn,
f. 2000, og Elías Óli, f. 2004. 3)
Guðný, þroskaþjálfi, f. 1968.
Börn hennar og Georgs Jónas-
sonar, fyrrverandi sambýlis-
manns hennar, eru Jón Hilm-
Elsku pabbi litli, ég sakna þín
óendanlega mikið og á eftir að
gera alltaf. Sakna þess að fá þig í
mat og fara saman í sumarbú-
stað, halda jólin og páskana. Fá
góða nótt-símtalið á hverju
kvöldi. Koma færandi hendi með
kjúlla og franskar og pipp á eftir.
Þú varst svo hjartahlýr og ör-
látur og hafðir hag okkar mín og
barnanna alltaf í huga. Þú ert sá
eini sem hefur passað börnin mín
og þau elskuðu að gista hjá þér og
fá kósíkvöld og söng … þau eru
brotin, pabbi minn, en ég held ut-
an um þau og rifja upp allt þetta
skemmtilega sem við gerðum
saman.
Nærvera þín var alltaf svo góð
og faðmlögin. Sakna þess svo að
geta ekki hringt eða komið til þín
og að heyra Guggan mín!
Elska þig, pabbi minn, þakka
þér fyrir alla umhyggjuna og
knúsin.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún.)
Kv., Guggan þín,
Guðný Jónsdóttir.
Elsku afi, þú varst besti afi í
heimi og svo góður við alla. Alltaf
glaður þegar við komum í heim-
sókn og að sjá okkur þegar þú
komst til okkar. Fengum alltaf
nebbakoss og gott spjall. Kennd-
ir okkur að tefla og sagðir aldrei
nei við því þegar við báðum þig að
tefla eða spila.
Svo var svo gaman að púsla
með þér erfið púsluspil í sum-
arbústaðarferðunum okkar. Bíl-
túrarnir niður á höfn og flugvöll-
inn voru yndislegir og oft endað í
Grillhúsinu eða ísbúðinni. Kennd-
ir okkur nöfn á fullt af fjöllum í
ferðalögum, þetta verður allt
geymt en ekki gleymt, elsku besti
afi litli í öllum heiminum.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Takk fyrir okkur, þín
Jón Hilmar og
Eygló Margrét.
Elsku afi Jón. Þegar ég var lítil
fannst mér eins og þú og forset-
inn (Ólafur Ragnar) væruð sami
maðurinn (svona eins og ég hélt
að afi Elli væri Afi á Stöð 2). Þú
varst svo hávaxinn, fínn og virðu-
legur.
En svo varð ég aðeins eldri og
áttaði mig á því að þið væruð alls
ekki sami maðurinn. Þegar við
Gígja fórum með ykkur ömmu
Rúrí í Selið lékum við Gígja okk-
ur alltaf í „búinu“ við að búa til
drullumallsmáltíð og svo buðum
við þér í mat. Svo þegar það var
kominn matur gekkstu yfir til
okkar, settist niður við litla eld-
húsborðið og við horfðum á þig
þykjast borða drullumallið okkar.
Það var alltaf sama rútínan þegar
við komum í pössun til ykkar
ömmu.
Við fengum kvöldhressingu
áður en við fórum að sofa, sem
var nammi og ís, sofnuðum við
rigninguna hennar ömmu og þú
hraust bara smá á nóttunni, ekk-
ert til að kvarta yfir. Svo á
morgnana fékkstu þér alltaf
hafragraut sem var eldaður í ör-
bylgjuofninum. Við fengum okk-
ur líka hafragraut, ég man bara
einhvern veginn að amma talaði
um „hafragrautinn hans afa“.
Sumir hlutir voru bara „hans
afa“. Þegar ég varð eldri og hætti
að koma í pössun hélstu samt
áfram að passa upp á mig. Þegar
ég var unglingur hélt ég að ég
væri fullorðin en ég þurfti líka
einhvern til að sjá um mig og þú
gerðir það. Þú sóttir mig oft á
ballettæfingar þegar ég fór að
æfa í Reykjavík og svo hélt þetta
skutlerí áfram alveg út mennta-
skólann. Þú skutlaðir mér í skól-
ann, heim úr skólanum, á Herra-
næturæfingar, á morfískeppnir,
böll, afmæli, hvert sem ég þurfti
að komast. Þú sagðir mér að þú
værir alltaf til í að skutla mér,
hvenær sem væri og hvert á land
sem væri, og ég tók þig á orðinu,
enda fékk ég aldrei á tilfinn-
inguna að það væri kvöð fyrir þig.
Við áttum svo góðar stundir sam-
an á rúntinum, þetta var ágæt-
istækifæri fyrir okkur að hittast
og spjalla um daginn og veginn.
Stundum borðuðum við saman
eftir skóla eða æfingar hjá mér,
til dæmis núðlusúpu á Asíu.
Stundum var afi Elli meira að
segja með þér í bílnum og þá fékk
ég að hitta tvo afa í einni bílferð.
Þið komuð líka saman á leikritið
mitt og ég gleymi ekki hvað ég
var glöð að sjá ykkur saman, hlið
við hlið, brosandi úti í sal. Þú
veittir mér öryggistilfinningu
með því að vera alltaf til staðar
fyrir mig.
Takk fyrir það elsku afi minn.
Þú varst líka allaf svo ánægður
með mig, sama hversu mikill auli
mér fannst ég vera. Takk fyrir
það líka. Þú varst besti afi í heim-
inum og ég mun alltaf sakna þín.
Eygló Hilmarsdóttir.
Nú er skarð fyrir skildi. Það er
með trega í hjarta að ég sest nið-
ur á fagurri síðsumarsnótt og
hripa línur á blað – minningarorð
um kæran bróður. Ekki verður
hjá því komist að tár fylli hvarma
en þau eru ekki eingöngu sorg-
artár heldur líka gleðitár. Það er
gott þegar minningarnar draga
líka fram margar gleðistundir.
Þrátt fyrir veikindi sín – alveg
sama á hverju gekk þá var alltaf
stutt í fallega brosið hans. Já-
kvæðni hans, elskusemi og þakk-
læti í garð allra sem önnuðust
hann síðustu mánuðina var alveg
einstök. Hann hélt reisn sinni al-
veg til hins síðasta.
Bússi var alveg einstakur fag-
maður og unun að horfa á hann
Jón Hilmar
Runólfsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
MinningargreinarVirðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Dótla,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
14. ágúst síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Kvenfélag Hringsins.
Hjartans þakkir til allra fyrir samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir
til starfsfólks Grundar fyrir góðvild og umönnun.
Þórður M. Sigurðsson Gyða Guðmundsdóttir
Sigurður Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
VETURLIÐI ARNAR GUNNARSSON,
Sundstræti 29, Ísafirði,
lést föstudaginn 25. ágúst.
Gunnar Veturliðason Valdís Friðriksdóttir
Anna Gunnarsdóttir
Friðrik Már Gunnarsson Anna G. Auðunsdóttir
Guðmundur Heiðar Gunnars.
Bryndís Gunnarsdóttir
Gunnar Örn Gunnarsson Solveig Guðmundsdóttir
og systkinabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN FANNEY HALLDÓRSDÓTTIR,
Patreksfirði,
sem lést 15. ágúst, verður jarðsungin frá
Patreksfjarðarkirkju laugardaginn
2. september klukkan 14.
Sjöfn Gunnarsdóttir
Halldór Gunnarsson Karólína Guðrún Jónsdóttir
Úlfhildur Gunnarsdóttir Sigmar Ólafsson
Jóhanna Gunnarsdóttir
Ólafur Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RANNVEIG ÞÓRÐARDÓTTIR,
Eskiholti 12, Garðabæ,
andaðist 11. ágúst að hjúkrunarheimilinu
Mörk.
Jarðarför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki á Mörk, 3. hæð suður, fyrir góða
umönnun.
Ari Guðmundsson Elín Anna Brynjólfsdóttir
Anna J. Guðmundsdóttir Kári Geirlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir og amma,
BRYNDÍS ANNA RAIL,
lést laugardaginn 26. ágúst.
Útförin fer fram í Vídalínskirkju þriðjudaginn
5. september klukkan 15.
Innilegar þakkir til starfsfólksins á krabba-
meinsdeild 11E og líknardeild Landspítalans fyrir góða
umönnun og hlýju. Sérstakar þakkir fá læknarnir Óskar Þór
Jóhannsson og Eiríkur Jónsson.
Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast
Bryndísar er bent á minningarsjóð líknardeildar.
Októ Einarsson
Jakob Arnar Októsson Nína Sigurveig Björnsdóttir
Finnur Snær Októsson
Ólöf Októsdóttir Ármann Ari Árnason
Egill Agnar Októsson
Erla Dís Jakobsdóttir
Frændi okkar,
JÓHANNES GESTSSON
bóndi
Giljum, Hálsasveit,
lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð Borgarnesi
sunnudaginn 20. ágúst.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju 2. september klukkan 11.
Ættingjar þakka starfsfólki Brákarhlíðar fyrir einstaklega góða
umönnun og hlýju.
Aðstandendur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR,
Broddanesi,
lést á Landspítalanum 23. ágúst.
Jarðsungið verður frá Hólmavíkurkirkju
laugardaginn 9. september klukkan 14. Jarðsett verður á
Kollafjarðarnesi.
Einar Eysteinsson
Ingunn Einarsdóttir Ísak Pétur Lárusson
Guðbrandur Einarsson
Eysteinn Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn