Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 25
leysa hin flóknustu verkefni.
Hann var duglegur að tileinka
sér þær miklu breytingar sem
hafa orðið á vinnubrögðum í
gegnum hans langa vinnuferil
sem spannar yfir 60 ár. Hann var
alltaf til í að taka tæknina inn á
skrifstofuna. Á samstarf okkar
systkina í tæp 20 ár bar aldrei
skugga og voru það mikil gæfu-
spor fyrir mig að byrja að vinna
fyrir hann 1998 og svo að taka
þátt í rekstri ABC ehf. Hann
kenndi mér allt sem ég kann á
núverandi starfsvettvangi mín-
um. Þakklæti mitt er ómælt.
Það var gaman að sjá hann
koma á virkum dögum á skrif-
stofuna – alltaf sami snyrtipinn-
inn – litaval fatnaðar í stíl og allt-
af í skyrtu með bindi. Svo var líka
gaman að sjá hann koma um
helgar sportklæddan og töff – í
gallabuxum, fallegri peysu og í
strigaskóm. Skipti engu máli –
hann var alltaf jafn smart.
Bússi var mikill náttúruunn-
andi og voru þau Rúrí dugleg að
fara í útilegur og ferðast um og
skoða. Þau lögðu alltaf af stað kl.
9 að morgni – alveg sama hvað
klukkan var þegar þau í alvöru
lögðu af stað.
Hann var natinn við að und-
irbúa ferðir og las sér til áður en
lagt var af stað. Honum fannst
ekki leiðinlegt að renna fyrir fisk
og njóta þess að vera úti í guðs-
grænni náttúrunni. Margar voru
unaðsstundirnar í Selinu litla, í
Móseli og með Guggu og börn-
unum í þeirra árlegu sumarbú-
staðarferð, þar sem var teflt,
púslað, lesið og notið samvista.
Langar mig að leiðarlokum að
láta hér fylgja eitt af mínum
uppáhaldsljóðum:
Ef til vill færðu aftur að hvílast í grasi
örskammt frá blessuðum læknum, rétt
eins og forðum,
og hlusta á vingjarnlegt raul hans
renna saman
við reyrmýrarþyt og skrjáf í
snarrótarpunti,
finna á vöngum þér ylgeisla
sumarsólar
og silkimjúka andvarakveðju í hári,
er angan af jurtum og járnkeldum
þyngist
og jaðraki vinur þinn hættir að skrafa
við stelkinn.
Ef til vill færðu aftur að hvílast í grasi
með amboðin hjá þér sem forðum, og
titrandi hjarta
mæla í hljóði fram þakkir til lækjar og
ljóss,
til lífsins á þessu hnattkorni voru í
geimnum,
til gátunnar miklu, til höfundar alls sem
er.
(Ólafur Jóh. Sigurðsson.)
Ég bið þann sem allt gefur og
allt tekur að styðja og styrkja alla
fjölskylduna, og þá sérstaklega
barnabörnin sem missa ástríkan
afa og góðan félaga.
Ég kveð góðan dreng og góðan
bróður með trega og kærri þökk.
Brynja Dís.
Það fylgir því að verða gamall
að samferðamenn manns falla frá
einn af öðrum. Svona var þetta
með okkur leiksystkinin þegar
við vorum að leika okkur á leik-
vellinum fyrir framan Bollagötu
2 að við vorum kölluð inn hvert af
öðru þegar seint var orðið.
Stundum mölduðum við í móinn
og fengum að vera svolítið lengur
en það kom að því að sá sem kall-
aður var varð að hlýða kallinu og
fara heim. Svona er þetta líka
núna þegar Bússi hefur verið
kallaður. Hann barðist lengi við
erfiðan sjúkdóm, en svo kom að
því að hann varð að hlýða kallinu.
Þetta er gangur lífsins og við
verðum að sætta okkur við það.
Leikirnir okkar voru fallin
spýta, saltabrauð og hornabolti.
Svo þegar við vorum orðin
þreytt settumst við niður og
spjölluðum saman. Æ, þetta var
svo gaman. Við gætum alveg far-
ið í leik núna en við erum bara
orðin svo fá eftir. Við trúum því
að við eigum eftir að hittast öll
sömul aftur og þá erum við
kannski orðin börn aftur og þá er
ekki að vita í hvaða leik við för-
um.
Við biðjum góðan Guð að vera
með þér, Bússi okkar, og styrkja
þig og vernda. Einnig biðjum við
Guð að styrkja og blessa alla þína
nánustu og vera hjá þeim í sorg-
inni.
Nanna, Sigrún og
Eyþór (Spói).
Þegar dóttir mín hringdi í mig
í síðustu viku til að segja mér að
Jón Runólfsson væri látinn var
ekki laust við að ég fengi sam-
vizkubit. Frá því að við komum
heim frá Þýzkalandi í byrjun
ágúst höfðum við hjónin ætlað að
fara og heimsækja hann, en eins
og gengur varð aldrei af því.
Brynja systir Jóns hughreysti
mig með því að benda á, að það
væri betra að minnast Jóns eins
og við kynntumst honum fyrir
rúmlega 30 árum, þegar hann og
Rúrí, æskuvinkona Sigríðar Mar-
íu, ákváðu að rugla saman reyt-
um sínum. Með okkur tókst strax
hinn bezti kunningsskapur. Jón
var einstaklega viðfelldinn og
elskulegur maður. Hann tók
fljótlega að sér að sjá um skatt-
framtal okkar hjóna, enda af-
burðamaður á því sviði. Alltaf tók
hann á móti mér með bros á vör,
þegar ég kom með gögnin, oftast
alltof seint. Settumst við þá niður
og fengum okkur kaffisopa og
ræddum landsins gagn og nauð-
synjar. Það var aldrei komið að
tómum kofunum hjá Jóni. Við
hjónin hittum oft Jón og Rúrí.
Árum saman komum við í jólaboð
þeirra, þar sem boðið var upp á
miklar krásir, en hún Ragnheiður
Guðrún var engra manna eftir-
bátur í þeim efnum og þau hjón
samhent í gestrisni sinni. Stund-
um fórum við í leikhús saman og
eigum við margar góðar minning-
ar frá þeim tíma, að sonurinn
Hilmar rak leikhúsið í Hafnar-
firði. Það er mikil eftirsjón að því.
Ég var reglulegur gestur á skrif-
stofu Jóns í Borgartúninu, eink-
um eftir að dóttir okkar Lára fór
að vinna með honum og Brynju
þar. Auðvitað dró úr samskiptum
okkar Jóns eftir að Rúrí, blessuð
sé minning hennar, kvaddi þenn-
an heim. En það var gott að vita
af Jóni á sínum stað og geta leitað
til hans þegar á þurfti að halda.
Við kveðjum nú góðan dreng og
vottum öllum aðstandendum
innilega samúð okkar.
Sigríður María og
Júlíus Sólnes.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Atvinnuauglýsingar
Yfirvélstjóri
Vísir hf óskar eftir að ráða yfirvélstjóra í
framtíðarstarf á Kristínu Gk 457. Kristín er
línuveiðiskip með beitningarvél.
Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í síma
856-5730 eða á heimasíðu Vísis
www.visirhf.is.
Yfirvélstjóri
óskast á Dala Rafn VE 508, vélarstærð 514 kW.
Umsókn skal senda á eh@isfelag.is eða hafa
samband í síma 8612287.
Besti sölumaður Íslands
Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Umsóknar-
frestur er til 4. september 2017. Umsóknir ásamt
ferilskrá sendist á netfangið sala@murbudin.is
Hæfniskröfur:
Bros, hressleiki
og óbilandi dugnaður
Við leitum að besta sölumanni Íslands.
Hannmun hafa yfirumsjónmeð parket- og
flísadeildinni hjá okkur.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Bónus-
bíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda
kl. 12.30-16. Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45.
Hádegismatur, hakkabuff, kl. 11.40-12.45. Kaffiveitingar á vægu verði
kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir.
Boðinn Bridd og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverksstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið
öll velkomin til okkar.
Furugerði 1 Morgunverður í borðsal kl. 8.15-9. Fjöliðjan í kjallara
opin frá kl. 10. Kaffi á könnunni og Magga Dögg leiðbeinir hress og
kát! Framhalds sögulestur í setustofu 9. hæð kl. 10. Stólaleikfimi í
innri borðsal kl. 11 með Olgu. Hádegisverður í borðsal kl. 11.30-12.30.
Botsía í innri borðsal kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíll við
Furugerði kl. 15.45-16.30.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.45. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Gjábakki Kl. 9 handavinna.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Morgunleikfimi kl. 9.45. Gönguhópur kl.
10.30 – þegar veður leyfir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðn er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30. Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl. 9, Bónus-
bíll kl. 12.40, brids kl. 13, ganga kl. 13.30, bókabíll kl. 14.30, síðdegis-
kaffi kl. 14.30. Hausthátíð Hæðargarðs verður haldin föstudaginn 8.
september., haustferðin verður 15. september. Nánari upplýsingar í
Hæðargarði eða í síma 411-2790. Allir velkomnir með.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30. Uppl. í s, 4112760
Selið Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi
þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er
kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu
Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Minni á
vöfflukaffið og kynninguna á vetrarstarfinu í Félagsheimili Seltjarnar-
ness nk. fimmtudag 31. ágúst kl. 14.30. Allir velkomnir. Skráningar-
blöð vegna allra námskeiða liggja frammi á Skólabraut. Allar nánari
upplýsingar í síma 8939800.
Smáauglýsingar
Geymslur
Ferðavagnageymsla
Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi, báta
og fleira í upphituðu rými. Gott verð.
Sími 899 7012.
Sólbakki.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Til sölu Ford Escape jeppi,
benzín, árgerð 2007, ekinn tæpar 120
þús mílur. Vel með farinn bíll,
dráttarkrókur og vetrardekk fylgja
Tilboð óskast. Upplýsingar í sima
617-7330 og 437-1571
Húsviðhald
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systk-
ini, maka og börn. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd skal senda hana
með æviágripi í innsendikerf-
inu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda mynd-
ina á netfangið minning@mbl.is
og láta umsjónarmenn minning-
argreina vita.