Morgunblaðið - 29.08.2017, Page 27
nefndum og ráðum á landsvísu, m.a.
í aðalsamninganefnd um yfirfærslu
grunnskólanna frá ríki til sveitar-
félaga.
Þegar Valgarður hafði lausan
tíma frá bú- og félagsstörfum hefur
hann sungið af hjartans lyst með
ýmsum kórum, m.a. Karlakór Ból-
staðarhlíðarhrepps, Samkórnum
Björk og kirkjukórum Holtastaða-
kirkju og Blönduóskirkju. Þá hefur
hann starfað innan Framsóknar-
flokksins, setið í stjórn kjördæm-
issambands Norðurlands vestra og í
miðstjórn flokksins.
En hvað er nú efst í huga þegar
Valgarður lítur um öxl á þessum
tímamótum?
„Ég er fyrst og fremst afar þakk-
látur fyrir að hafa verið gæfumaður.
Ég hef sjálfur reynt eftir mætti að
sinna því sem mér hefur verið trúað
fyrir, hef átt einstaka konu sem hef-
ur staðið á bak við mig í öllu félags-
málavafstrinu, á frábær börn,
tengdabörn og barnabörn. Þá hef ég
fengið að starfa með fjöldanum öll-
um af frábæru fólki sem hefur verið
sérlega ánægjulegt. Loks hef ég haft
mikla ánægju af því að ferðast innan
lands sem utan og fara á hestbak
þegar tími gefst til.“
Fjölskylda
Eiginkona Valgarðs er Vilborg
Pétursdóttir, f. 5.11. 1944, grunn-
skólakennari. Foreldrar hennar
voru hjónin Pétur B. Ólason, f. 31.10.
1915, d. 18.7. 1998, bóndi í Mið-
húsum í Sveinsstaðahreppi, og
Fanney Daníelsdóttir, f. 3.12. 1913,
d. 2.11. 1968, húsfreyja í Miðhúsum.
Börn Valgarðs og Vilborgar eru 1)
Hilmar Pétur, f. 10.1. 1973, við-
skiptafræðingur og fjármálastjóri
hjá Eimskip en kona hans er Sigríð-
ur Erla Einarsdóttir, klæðskeri hjá
Vogue, og eru börn þeirra Val-
garður, f. 2000, Markús Logi, f. 2005,
og Ragna Rut, f. 2010; 2) Ólafur
Reimar, 16.7. 1974, starfsmaður
Vilko, og 3) Fanney Hanna, f. 6.2.
1981, þroskaþjálfi við Ísakskóla en
maður hennar er Stefán Andri
Gunnarsson, sagnfræðingur við
Þjóðmenningarhúsið, og eru börn
þeirra Gunnar Andri, f. 2011, og
Vilborg Bryndís, f. 2015.
Systkini Valgarðs eru Halldóra, f.
21.9. 1937, húsfreyja í Reykjavík;
Frímann, f. 26.2. 1939, d. 3.12. 2009,
lögregluþjónn; Anna Helga, f. 31.3.
1944, leikskólakennari í Reykjavík,
og Hallur, f. 3.9. 1954, bílstjóri á
Blönduósi.
Foreldrar Valgarðs voru hjónin
Hilmar Arngrímur Frímannsson, f.
21.6. 1899, d. 13.6. 1980, bóndi í
Fremstagili, og Jóhanna Birna
Helgadóttir, f. 6.7. 1911, d. 21.12.
1990, húsfreyja í Fremstagili.
Valgarður
Hilmarsson
Rósa Sigurðardóttir
húsf. á Króksstöðum
Jón Jónsson
b. á Króksstöðum í Eyjafirði
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Kirkjuhóli
Helgi Júlíus Guðnason
b. á Kirkjuhóli í Skagafirði
Jóhanna Birna Helgadóttir
húsfr. í Fremstagili
Anna Friðfinnsdóttir
húsfr. á Íshóli
Guðni Þorgrímsson
b. á Íshóli í Bárðardal
Jóhann Frímann rith. og skólastj. á Akureyri
Bjarni Ó.
Frímanns-
son
oddviti í
Engi-
hlíðarhr.
Valgerður Bjarna-
dóttir húsfr. í Rvík
Bjarni Frímann
Bjarnason
tónlistarm.
Ingibjörg Jóns-
dóttir húsfr.
Ögmundur Bjarnason læknir
Guðmundur Frímann kennari, skáld og rith. á Akureyri
Ingibjörg Sigríður Frímannsdóttir ljósm. á Sauðárkróki
Ragnar Karlsson
kennari og
blaðam.
Jón Jónsson smiður
á Akureyri
Karl Jóhann Bjarnason tónlistarm.
Bjarni Frímanns kennari
og viðskiptafr. í Rvík
Reimar Helgason b. á Bakka í Seyluhr.
Brynjólfur V.
Vilhjálmsson vélstj.
og varabæjarfulltr.
á Akranesi
Páll Ásgeir
Tryggvason
sendiherra
Tryggvi Páls-
son hagfr. og
fyrrv. bankastj.
Ragnhildur Pála Ófeigsd.
skáldkona og sérkennari
Tryggvi
Ófeigs-
son út
gerðarm.
í Rvík
Ófeigur
Ófeigsson
læknir
Halldóra Þórðardóttir
húsfr. í Sneis
Guðmundur
Guðmundsson
b. í Sneis á Lax-
árdal í AHún.
Valgerður Guðmundsdóttir
húsfr. í Hvammi
G. Frímann
Bjarnarson
b. í Hvammi
í Langadal
Ingibjörg Guð-
mundsdóttir
húsfr. í Mjóadal,
af Skeggs-
staðaætt
Björn Þorleifsson
b. í Mjóadal í AHún.,
af Guðlaugsstaðaætt
Úr frændgarði Valgarðs Hilmarssonar
Hilmar A. Frímannsson
b. í Fremstagili í Langadal í AHún.
Jóhanna
Guðrún
Frí-
manns-
dóttir
húsfr. í
Ráða-
gerði í
Leiru
Sólveig Pálsd.
rith. og leikari
Afmælisbarnið Valgarður.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Gunnar Kristinn Bergsteins-son fæddist í Reykjavík 29.8.1923. Foreldrar hans voru
Bergsteinn Jóhannesson, múrara-
meistari í Reykjavík, og k.h., Ragn-
hildur Magnúsdóttir húsfreyja.
Gunnar var yngstur sex systkina.
Eiginkona hans var Brynja Þór-
arinsdóttir sem lést á Þorláksmessu
í fyrra. Þau eignuðust fjögur börn,
Þórarin, f. 1949; Ragnhildi, f. 1952;
Bergstein, f. 1954, og Theódóru, f.
1960.
Gunnar lauk stúdentsprófi frá MR
1942 og útskrifaðist sem liðsforingi
frá Sjóliðsforingjaskóla norska flot-
ans 1950. Að námi loknu starfaði
hann hjá Skipaútgerð ríkisins, varð
fulltrúi forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar og staðgengill hans 1952 og
gegndi því starfi á afdrifaríkum tíma
uppbyggingar stofnunarinnar, út-
færslu landhelginnar og þorska-
stríða. Jafnframt lagði hann grunn
að íslenskum sjómælingum og
kortagerð, sem hafði fram að þeim
tíma verið í höndum danska sjó-
hersins.
Veturinn 1968-69 var Gunnar
sendur til Rómar af íslensku ríkis-
stjórninni þar sem hann stundaði
nám í varnarmálaskóla NATO. Við
stofnun Sjómælinga Íslands árið
1970 varð Gunnar forstöðumaður
stofnunarinnar og árið 1981 var
hann jafnframt skipaður forstjóri
Landhelgisgæslunnar. Hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir árið 1993.
Gunnar gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum, sat m.a. í stjórn Almanna-
varna ríkisins og var prófdómari við
Stýrimannaskólann í Reykjavík
1955-81.
Gunnar hlaut margvíslegar viður-
kenningar fyrir störf sín en þar má
telja riddarakross hinnar íslensku
fálkaorðu, stórriddara af Danne-
brog, norsku St. Olavs Ordern,
sænsku Norðurstjörnuna, finnsku
Röde Lejon, orðu Isabel la Catolica,
ítölsku orðuna Al Merita della Re-
pubblica della Italiana og Comm-
ander of the British Empire.
Gunnar lést 23.10. 2008.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Bergsteinsson
95 ára
Guðrún Þórðardóttir
90 ára
Guðmundur Daníelsson
85 ára
Valgerður Valdimarsdóttir
Yulia Kosenkova
Þórður Guðmundsson
80 ára
Bjarni Þ. Magnússon
Ellert H. Pétursson
Guðjón Þórarinsson
Halldór Magnússon
Marís Gilsfjörð Marísson
Ragnar Þ. Magnússon
Stefán Óskarsson
Steinþór Þórðarson
75 ára
Brynjólfur Guttormsson
Dóróthea Hartford
Friðrik H. Friðriksson
Guðný Aðalsteinsdóttir
Hildur Svava Karlsdóttir
Ólafur Kristjánsson
Sigríður Jóna Clausen
Sólrún Sveinsdóttir
70 ára
Árni Hannesson
Hörður Jósefsson
Sigríður Hannesdóttir
Sigríður Markúsdóttir
Sigrún Rut Eyjólfsdóttir
Svend Richter
60 ára
Guðrún M. Einarsdóttir
Gunnar Rúnar
Kristjánsson
Halldóra M.F. Pálsdóttir
Halldór Páll Halldórsson
Magnús Örn Magnússon
Margrét Jóna Jónsdóttir
Sigríður Anna Kristinsdóttir
Sæmundur Egill Björnsson
Þorkell Yngvason
50 ára
Ásdís Sveinjónsdóttir
Baldur Þórarinsson
Bylgja Steingrímsdóttir
Daníel H. Sigmundsson
Egill Rúnar Sigurðsson
Einar Magnús Nielsen
Gunnar Ólafsson
Hafrún Huld Einarsdóttir
Jóhann Tómas Axelsson
Kristín J. Þorbergsdóttir
Laufey S. Jakobsdóttir
Magnús Brynjarsson
Ragnhildur F. Ragnarsdóttir
Snorri Guðjónsson
40 ára
Ágúst Hrannar Valsson
Benedikt Ármannsson
Bryndís Stefánsdóttir
Dóra Guðrún Pálsdóttir
Erna Guðrún Jakobsdóttir
Erpur Þórólfur
Eyvindsson
Guðmundur Lárus Arason
Gylfi Þór Guðmundsson
Hannes Gunnarsson
Jóhann Ágúst Tórshamar
Jóhann Pétur
Jóhannsson
Magnús Finnur Hauksson
Magnús Þór Samúelsson
María Maronsdóttir
Sigtryggur B. Sigmarsson
Valgerður Þorsteinsdóttir
30 ára
Anna Harðardóttir
Brynjar Þór Guðbjörnsson
Daði Garðarsson
Eðvald Orri Guðmundsson
Ester Ósk Aðalsteinsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Gunnar S. Indriðason
Helga Hrönn Óskarsdóttir
Jóhannes A. Daníelsson
Melkorka H. Albertsdóttir
Ómar Logi Gunnarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sólbjört ólst upp í
Reykjavík, býr í Mosfells-
bæ, lauk BA-prófi í sál-
fræði við HA og stundar
nú MSc-nám í mannauðs-
stjórnun við HÍ.
Maki: Björn G. Rafnsson,
f. 1977, sjókokkur.
Dætur: Emelía Ósk, f.
2010, og Elsa María, f.
2017.
Foreldrar: Hrefna Guð-
mundsdóttir, f. 1964, og
Jens Páll Hafsteinsson, f.
1969.
Sólbjört Ósk
Jensdóttir
30 ára Stella ólst upp í
Hafnarfirði, býr þar, lauk
BA-prófi í heimspeki, hag-
fræði og stjórnmálafræði
frá Bifröst, starfar hjá
Batteríi – Arkitektum og
við verslunarstörf.
Maki: Gauti Skúlason, f.
1993, hefur starfað hjá
BHM.
Foreldrar: Jón Ólafur
Ólafsson, f. 1958, og
Anna Sigríður Jónsdóttir,
f. 1957. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Stella Sif
Jónsdóttir
30 ára Snjólaug ólst upp
í Reykjavík, býr í London
og Reykjavík, lauk ML-
prófi í lögfræði frá HR og
var að skila inn doktors-
ritgerð í lögfræði við
Edinborgarháskóla.
Foreldrar: Árni Sig-
urjónsson, f. 1955.skrif-
stofustjóri forseta Ís-
lands, og Lilja
Valdimarsdóttir, f. 1956,
hornleikari við Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Þau
búa í Reykjavík.
Snjólaug
Árnadóttir
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt