Morgunblaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h
ynn u r ura a v ar rv . óðum þér í kaffi.
s
ylki.
él Við jK t J k ffi
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft ekki að bregðast illa við
þótt menn samþykki ekki allt sem þú segir.
Viðhaltu kraftinum með því að vera dálítið
kvikur, hvort sem þú ert í stuði til þess eða
ekki.
20. apríl - 20. maí
Naut Það gengur ekki að blanda saman létt-
úð frístundarinnar og alvarleika starfsins.
Leggðu inn í gleðibankann líka. Hjá þér
magnast hvöt til að standa á þínu og verja
skoðanir þínar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er fráleitt að kaupa eitthvað
bara til þess að kaupa eitthvað. Hlustaðu á
líkama þinn og farðu eftir því sem hann seg-
ir þér. Leyfðu þér að njóta sumarsins meðan
það varir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Er draumar þínir rætast veistu varla
í hvorn fótinn þú átt að stíga. Fólki finnst þú
heillandi og flinkur á þínu sviði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Taktu frá 30 mínútur í dag til þess að
bæta skipulagið á heimilinu eða í vinnunni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þessi tími er þér gagnlegur til sköp-
unar svo þú skalt reyna að fá sem mest tóm
til þeirra starfa. Leyfðu öðrum að láta ljós
sitt skína og þá fer allt miklu betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert með óþarflega miklar áhyggjur af
fjárhagnum en hann er ekki eins slæmur og
þú heldur. Sums staðar verður að gefa eftir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að byggja meira á
innsæi þínu þegar þú ræðst til atlögu við
flókin verkefni. Allir taka eftir þér og því sem
þú gerir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Spennan hefst þegar þér fer að
líða vel með eigin óöryggi. Hugsaðu um allt
það góða sem þú gerir, eins og til dæmis að
brosa við ókunnugum, vinka barni og halda
hurð fyrir einhverjum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ætlast til að þú halir inn
peninga og þá þarf að kunna að smjaðra.
Við þessu er ekkert að gera, en kannski er
best að fresta mikilvægum framkvæmdum í
bili.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft á öllum þínum innri
styrk að halda til þess að komast í gegnum
þá erfiðleika sem við þér blasa. Brátt mun
þér aftur byrja að líka vel við þetta klikkaða
lið sem er skylt þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér verður ekkert úr verki ef þú ætlar
þér of mikið í einu. Aðrir menningarheimar
eiga greiðan aðgang að þér.
Sigurlín Hermannsdóttir birti áLeirnum á sunnudag fallegt
haustljóð, „Haustfeta“:
Nú fyllist allt loftið af fiðrildum smáum
sem feta sig tilbúin inn í kalt haust
með látlausa vængi í litunum gráum
já, líttu í kringum þig, eitt þarna skaust.
Þótt fjáranum verri á vorin þau ögra
vaknandi gróðri sem er þeirra beit
það gleymt er um haust þá í húminu flögra
og heillast ef finna þau upplýstan reit.
Davíð Hjálmar Haraldsson bætti
við:
Haustfetinn iði og hlykkist í keng
í hreinsunareldi og pínum,
eiturgrænn maðkurinn át sig í spreng
á alaskavíðinum mínum.
Veðrið er alltaf jafnskemmtilegt
yrkisefni. Gunnar J. Straumland
yrkir á Boðnarmiði um „slagviðri og
mígandi rigningu“:
Njótum þess hvern nýjan dag
að náttúrunnar veðurlag
kynnir veður, kallað slag,
og kennir regnið svo við þvag.
Kristján Runólfsson slær á róm-
antíska strengi:
Ágúst brátt er liðinn svo yndislega hlýr,
ýmislegt hann bar í skauti sínu,
himinninn er dáfallegur, heiður blár og skýr,
hátíðleika finn í brjósti mínu.
Hreinn Guðvarðarson yrkir um
„Feminisma“ á Boðnarmiði:
Maður sagði manni að
maður skuli vona
að maður komi manns í stað
þó maðurinn sé kona.
Tómas Tómasson fylgist vel með
og yrkir „samkvæmt fréttum fjöl-
miðla“:
Trump í burtu veitti vá
vaskur steig hann núna fram
Kim Jong-un er fallinn frá
flaugaskeytunum á Gvam.
Síðan metur hann það svo, að
þetta sé „bragarbót vonandi“:
Vaskur Trump að veröld hló
voldugur og góður.
Múrinn rís um Mexíkó
magnast Trumps þá hróður.
Ég spurði sjálfan mig hvort Ár-
mann Þorgrímsson væri litblindur
þegar hann birti þessa stöku eftir sig
og kallar „Hagyrðingar“:
Þeim sem stjórna oft til ama
enda flestir þeirra rauðir
öðlast sjaldan frægð og frama
fyrr en eru löngu dauðir.
Bjarni úrsmiður frá Gröf orti um
móður Jörð:
Hvíta skikkjan ónýt er
alltaf fjölga götin.
Guð má fara að gefa þér
grænu sparifötin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Haustljóð, femínismi og Trump
„NEI, ÞAKKA ÞÉR FYRIR – ÉG ER
BARA AÐ FÁTA.“
„ÉG FINN EKKI MIÐANN MINN. GEFÐU MÉR
EINA GÓÐA Í BLÁUM LIT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það fyrsta sem
hann spyr er hvernig
þú hafir það.
HEY!
STAMP!
ÞÚ STEIGST
NÆSTUM ÞVÍ ÁMIG,
GERPIÐ ÞITT!
Æ, FYRIR-
GEFÐU
HVERNIG ER
ÞETTA NÚNA?
PABBI! ÉG VANN
ERFIÐA SAMKEPPNI Í
SKÓLANUM Í DAG!
ER ÞAÐ?! Í ALVÖRUNNI?
ÉG MEINA, AUÐVITAÐ
GERÐIRÐU ÞAÐ! VEL
GERT, SONUR!!
ÞAÐ VAR STAF-
SETNINGAR-
KEPPNI!
DÆS… VEL GERT,
SONUR!
YFIRHAFNIR
Víkverji gerði sér ferð í Costco ádögunum, þá fyrstu á hans ævi,
hvort sem verið er að tala um Garða-
bæ eða alheiminn. Allir höfðu þrá-
spurt Víkverja vikum saman: „Ertu
ekki búinn að fara í Costco? Hvað
ertu að hugsa, maður?“
x x x
Víkverji gafst upp á þessum eilífuspurningum og lét sig hafa það,
fór í þessa amerísku verslun, einum
þremur mánuðum eftir að hún var
opnuð. Þetta var um kvöldmatar-
leytið og furðu margir í versluninni.
Þó engin örtröð og stemningin virt-
ist afslöppuð. Víkverji nýtti tækifær-
ið og lét smella af sér mynd til að
virkja Costco-kortið. Þar með var
Víkverji orðinn meðlimur og gat átt
viðskipti við þessa verslun sem allir
höfðu verið að tala um.
x x x
Í stuttu máli sagt þá varð Víkverjihvorki agndofa né heillaður eftir
þessa heimsókn. Vissulega var
ágætisverð á sumum vörutegundum,
einkum kjöti og grænmeti. En ekki
fannst Víkverja rafmagnstæki vera
neitt sérlega ódýr, eða húsgögn eða
ýmis óþarfi eins og allt sælgætið og
sætindin sem flæða þarna um í
stórum stíl. Margar einingar eru í
slíkum stærðum að vörurnar myndu
ekki komast fyrir á heimili Víkverja
með góðu móti. Er ástæða til að hafa
þungar áhyggjur af heilsu- og holda-
fari þjóðarinnar ef hún fer að gúffa í
sig sætindin í miklu magni. En ef
koma Costco á markaðinn verður til
þess að aðrar verslanir fara að
lækka hjá sér verðið þá er Víkverji
sáttur.
x x x
Önnur heimsþekkt verslun, H&M,hefur hafið innreið sína á ís-
lenska markaðinn. Ef fram heldur
sem horfir verða allar verslana- og
veitingahúsakeðjur sem til eru í
heiminum komnar á þetta sker norð-
ur í ballarhafi og því algjör óþarfi að
vera að ferðast eitthvað. Það verður
t.d. ekkert gaman lengur að versla í
H&M í útlöndum. „Been there, done
that,“ getur Víkverji sagt á göngu
sinni um verslanagötur stórborg-
anna. Þá rætist kannski úr gamla
slagorðinu Verslum í heimabyggð.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru
því að þar eru uppsprettur lífsins
(Orðskv. 4:23)