Morgunblaðið - 29.08.2017, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Handritshöfundar Áramótaskaups-
ins í ár verða Anna Svava Knúts-
dóttir, Bergur Ebbi Benediktsson,
Dóri DNA, Saga Garðarsdóttir og
Dóra Jóhannsdóttir. Voru þau valin
úr hópi umsækjenda en leikstjórn
verður í höndum Arnórs Pálma Arn-
arsonar sem leikstýrði og skrifaði
m.a. gamanþættina Ligeglad sem
hlutu Edduverðlaun á árinu sem
besta leikna sjónvarpsefnið. Arnór
mun einnig koma að skrifum
Skaupsins. Handritshöfundar eru
allir þjóðþekktir, Anna Svava og
Saga hafa báðar tekið þátt í gerð
Skaupsins áður en hinir höfundarnir
hafa verið leiðandi í uppistandi og
gerð gamanefnis á síðustu árum.
Hópurinn hefur þegar hafið hand-
ritaskrif og stríðir við það lúx-
usvandamál að hafa nánast af of
miklu að taka. Markmiðið er að gera
Skaup sem allir eiga að geta notið og
stinga hæfilega fast á kýlum sam-
félagsins. Upptökur eru áætlaðar í
nóvember.
Hópurinn Efri röð f.v: Anna, Arnór, Bergur, Dóri DNA, Dóra og Saga.
Skrifa Áramótaskaupið
Samsýning listamanna sem hafa
dvalið og starfað í gestavinnustof-
um SÍM, Sambands íslenskra mynd-
listarmanna, á Seljavegi og á Korp-
úlfsstöðum nú í ágúst var opnuð í
gær í sýningarsal SÍM í Hafnar-
stræti 16. Listamennirnir sýna þar
afrakstur rannsókna sinna og vinnu
en þeir hafa dvalið hér mánuð eða
lengur. Listamennirnir eru frá
ýmsum löndum og vinna í ólíka
miðla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningarstaðurinn SÍM-salurinn við
Hafnarstræti í Reykjavík.
Samsýning opnuð
í SÍM-salnum
Kvikmyndin The Square, sem
hreppti Gullpálmann, aðalverðlaun
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í
maí, verður sýnd
2. september í
Bíó Paradís og
verður einn af
aðalleikurum
hennar, hinn
danski Claes
Bang, við-
staddur. Bang er
Íslendingum að
góðu kunnur sem
unnusti Önnu
Pihl í samnefndum sjónvarpsþátt-
um og hefur einnig leikið í Broen
og Borgen. The Square er sænsk,
leikstýrt af Ruben Östlund og mun
vera e.k. háðsádeila á hinn al-
þjóðlega listheim. Í myndinni hefur
konungdæmið verið lagt niður í
Svíþjóð og höllin í Stokkhólmi orðin
að listasafni. Bang leikur sýninga-
stjóra safnsins sem fær almanna-
tengslafyrirtæki til að sjá um kynn-
ingu á innsetningu sem leiðir til
mikils glundroða.
Bang á sýningu
í Bíó Paradís
Claes Bang
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Ég er mikill áhugamaður um
gagnslausar upplýsingar,“ segir Vil-
helm Anton Jónsson, öðru nafni Villi
naglbítur, sem
stjórnar útvarps-
þættinum Nei,
hættu nú alveg
og hefur nýlega
gefið út bók með
sama titli. Þætt-
irnir eru spurn-
ingaþættir þar
sem Vilhelm spyr
gesti sína út í svokallaðan „gagns-
lausan“ fróðleik og í bókinni hefur
hann tekið saman margar bestu
spurningarnar og áhugaverðustu
svörin úr þáttunum.
„En!“
„Mig langaði að gera spurn-
ingaþátt þar sem klárt fólk þyrfti að
svara asnalegum spurningum,“ seg-
ir Vilhelm. „Það eru alltaf fjórir
svarmöguleikar því þá getur maður
hlustað á skemmtilegt fólk reyna að
klóra sig að mjög asnalegri niður-
stöðu. Það er svo helvíti skemmti-
legt. Fyrst voru spurningarnar
reyndar ekki svona svakalega lang-
ar. Það eru komnir hátt í 300 þættir
og aðdragandinn að spurningunum
hefur alltaf orðið lengri og lengri.
Ég hef alltaf byrjað á meiri og meiri
upplýsingum sem ég vil koma fram.
Svo kemur alltaf „en“ í lokin og þá
kemur spurningin. Oft tengist þessi
inngangur varla spurningunni; hann
er bara eitthvað sem mér finnst mik-
ilvægt að komi fram. Það er alveg
hægt að hlusta á þáttinn og lesa bók-
ina með því að byrja bara á þessu
„en“. Þetta er ekki eins og Gettu
betur, þar sem maður þarf að vita
svarið. Það er bara gaman að spyrja
um einhverja ruglhluti þar sem mað-
ur á ekkert endilega að geta svarað
heldur er það ferðalagið að svarinu
sem skiptir máli.“
Aðspurður hvernig hann ákvarði
að tiltekinn fróðleikur sé „gagns-
laus“ segir Vilhelm: „Ætli það sé
ekki þannig að allt sem er ekki
kennt í skóla teljist með. En það er
alveg rétt; það er ekkert gagnslaust
að vita að allar leðurblökur beygja
til hægri þegar þær fljúga út úr
helli. Það er varla gagnslausara en
að vita vitlausa hæð á Hvannadals-
hnjúki, eins og mér var kennt í
skóla. Kannski ætti ég ekki að nota
hugtakið „gagnslausar“ upplýs-
ingar, kalla þetta frekar lykilupplýs-
ingar.“
Í bókinni Nei, hættu nú alveg er
gömlum spurningum og svörum úr
útvarpsþáttunum safnað saman í
ákveðna flokka. „Í þáttunum hefur
alltaf verið sérkafli fyrir lambakjöts-
spurningar. Ég byrja eina spurn-
ingu í hverjum þætti á setningunni
„fátt er betra en íslenska lambakjöt-
ið“ og spyr síðan spurningar um eitt-
hvað allt annað. Þannig spurningar
fá kafla út af fyrir sig í bókinni. Það
er mjög fínt að taka þær við matar-
borðið á sunnudögum þegar maður
er einmitt að borða lambakjöt. Svo
er ég líka með babelfiskinn. Þar tek
ég popptexta á útlensku, set í gegn-
um Google translate og læt það þýða
þá yfir á íslensku. Í þáttunum á mað-
ur svo að geta upp á úr hvaða lagi
textinn er upprunninn. Útkoman er
alveg stórkostleg.“
„Einhver framhlið
þarf að vera á þessu“
Vilhelm segist yfirleitt vinna í
skorpum að því að safna spurn-
ingum og fróðleiksmolum fyrir þátt-
inn. „Ég fer mikið inn á vef Vega-
gerðarinnar. Þar er fullt af
skemmtilegum upplýsingum, eins og
um það hve mörg ristarhlið og stikur
eru á landinu. Það er allt til þar. Ég
hringdi einu sinni niður í Seðlabanka
og fékk frábærar upplýsingar um
myntina okkar. Ég veit ekki hvort
fólk gerir sér grein fyrir því að fram-
hliðin á myntinni okkar er skjald-
armerkið en við höfum alltaf snúið
þessu öfugt. Maður heldur alltaf að
fiskurinn sé framan á en það er vit-
laust. Einhver framhlið þarf að vera
á þessu. Svona er ótrúlega gaman að
heyra bara í einhverjum skemmti-
legum stofnunum sem eru til í að
láta mann fá alls konar upplýs-
ingar.“
Vilhelm telur að hægt sé að
skemmta sér með bókinni við ýmsar
aðstæður. „Til dæmis getur verið
gott að hafa hana á löngum bílferð-
um eða í veislum og partíum. Þá
verður einn spyrill, tekur nokkrar
spurningar og hægt er að búa til
smáleik með tveimur liðum. Það
geta allir skemmt sér. Þetta eru svo
skrýtnar spurningar að það eiga all-
ir jafnmikinn séns á að giska rétt.
Þetta er svona partíbók, samveru-
bók. En maður getur líka lesið hana
sjálfur ef maður vill komast að ein-
hverju skrýtnu um heiminn.“
Gagnslausar upplýsingar
eða lykilupplýsingar?
Vilhelm Anton
Jónsson gefur út
bók byggða á þátt-
um hans Nei,
hættu nú alveg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vísindaáhugamaður Vilhelm Anton Jónsson er áhugasamur um margt, m.a. vísindi og hér sést hann á ljósmynd
sem tekin var vegna Vísindasýningar Villa sem sýnd var í Borgarleikhúsinu fyrr á þessu ári.
TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR
FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG
BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA.
ILMANDI
HLUTI AF DEGINUM
Íslenskt fjölskyldufyrirtæki
og framleiðsla síðan 1984