Morgunblaðið - 29.08.2017, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2017
Breski grínistinn John Cleese verður með uppi-
stand 17. maí á næsta ári í Eldborgarsal Hörpu
og ber það yfirskriftina „Last Time to See Me
Before I Die“, eða „Síðasta tækifærið til að sjá
mig áður en ég dey“. Sýningin er ný af nálinni
og mun Cleese flakka um alla Evrópu með hana.
Vart þarf að kynna Cleese fyrir unnendum
góðs gríns og þá sérstaklega breskra grínþátta.
Hann er leikari, grínisti, handritahöfundur og
kvikmyndaframleiðandi og öðlaðist frægð sem
meðlimur grínhópsins Monty Python. Hópurinn
stóð að sígildum gamanþáttum sem hófu göngu
sína á BBC árið 1969, Monty Python’s Flying
Circus, og gerði síðar gamanmyndir sem þykja í
dag ekki síður mikilvægar í grínsögunni, m.a.
Life of Brian og Holy Grail. Þá fór Cleese einnig
á kostum í gamanþáttunum Fawlty Towers, svo
fátt eitt sé nefnt. Í sýningunni mun Cleese deila
með áhorfendum sögum og minningum sem
hann hefur sankað að sér á 40 ára ferli sínum og
undir lokin svara spurningum úr sal. Miðasala
hefst fimmtudaginn 7. september kl. 10 á
harpa.is/cleese en forsala Senu Live fer fram
sólarhring fyrr, 6. sept. kl. 10.
Tækifæri til að sjá John Cleese í Hörpu í
maí í vor, það síðasta áður en hann deyr
Grínmeistari John Cleese
og legsteinn á veggspjaldi
uppistandssýningarinnar.
Grammy- og Emmyverðlaunahaf-
inn og leikkonan Kathy Griffin
verður með uppistand í Eldborg-
arsal Hörpu 29. nóvember og
nefnist það „Laugh your head
off“, sem þýða mætti sem „Hlæðu
þig máttlausan“ þó svo enski titill-
inn vísi í umdeilt mál henni tengt
þar sem gervihöfuð kemur við
sögu.
Uppistandið er hluti af heims-
ferð Griffin og í því rekur hún
m.a. söguna af ljósmyndinni um-
deildu – þar sem hún hélt á blóð-
ugu gervihöfði sem líktist Donald
Trump Bandaríkjaforseta og varð
til þess að sjónvarpsstöðin CNN
leysti hana frá störfum – og
öllu írafárinu í kringum
hana. Þá mun hún einnig
sundurgreina popp-
menningu nútímans
með sínum einstaka
hætti, eins og segir
í tilkynningu. Þar
segir einnig að
ljósmyndin um-
deilda hafi orðið til
þess að Griffin fékk boð
um að koma fram í ýmsum
löndum heims. „Hvern hefði grun-
að þetta? Ein mynd leiddi til þess
að ég fékk boð úr öllum heims-
hornum. Og nú hlakka ég til að
skemmta áheyrendum með því að
segja þeim alla þessa fáránlegu en
sprenghlægilegu sögu,“ er haft
eftir Griffin.
Uppistandsferðin hefst á Nýja-
Sjálandi og þaðan heldur Griffin
til Evrópu. „Sýningin mín er alls
ekki fyrir viðkvæma og því ættu
krakkarnir að vera heima. Mottóið
mitt er „Funny First“ en hafið
engar áhyggjur því ég mun ekki
hlífa nokkrum manni,“ er haft eftir
Griffin í tilkynningunni. „En samt
í fullri vinsemd,“ bætir hún við.
Miðasala hefst á harpa.is, tix.is
og í síma 528-5050 á föstudaginn
kl. 10.
Kathy Griffin með
uppistand í Eldborg
Hnöttur Kathy
Griffin með
heiminn í hendi
sér í stað höfuðs
Donalds Trumps.
Tónlistarmyndbandaverðlaun MTV
voru veitt á sunnudaginn var í Los
Angeles og var kvöldið rammpólitískt
auk þess að vera stórviðburður í tón-
listargeiranum en listamennirnir töl-
uðu m.a. gegn kynþáttahyggju og
fyrir vitundarvakningu um sjálfsvíg.
Transfólk úr Bandaríkjaher mætti á
athöfnina og birtist á rauða dregl-
inum með stjörnum kvöldsins, fáein-
um dögum eftir að Donald Trump
Bandaríkjaforseti skrifaði undir til-
skipun sem bannaði þeim að gegna
herþjónustu. Susan Bro, móðir
Heather Heyer, mótmælanda sem
var drepin á gagnmótmælum við
hægriöfgamönnum í Charlottesville
fyrr í mánuðinum, mætti einnig og
sagði: „Ég sakna hennar en ég veit að
hún er hér í kvöld.“ Paris Jackson,
dóttir Michael Jackson, fordæmdi
sérstaklega ofbeldið í Charlottesville
og talaði gegn „rasískum nasistaskít-
hælum“.
Rapparinn Kendrick Lamar vann
flest verðlaun á hátíðinni, alls sex.
Þar á meðal hlaut hann verðlaun fyrir
besta myndband ársins, við lagið
„Humble.“ Ed Sheeran var valinn
listamaður ársins og hljómsveitin
Fifth Harmony hlaut verðlaun fyrir
besta poppmyndbandið en það er við
lagið „Down.“
Fyrr á árinu hafði MTV tilkynnt
að hætt yrði að skipta verðlaunatil-
nefningum í flokka eftir kyni og að
héðan í frá skyldu listamenn beggja
kynja tilnefndir til sömu verðlaun-
anna. Þetta var í annað skipti sem
MTV veitir verðlaun óháð kyni í ár
eftir breytinguna, en leikaraverðlaun
sjónvarpsstöðvarinnar voru veitt á
þann máta í vor.
„Þetta eru kosningar þar sem það
skiptir máli hver fær flest atkvæði,“
sagði Katy Perry á athöfninni og virt-
ist þar gera gys að kosningasigri Do-
nald Trump í forsetakosningunum
2016. „Kjósið rafrænt, en flýtið ykkur
áður en einhver rússnesk popp-
stjarna vinnur!“ thorgrimur@mbl.is
AFP
Rappari Kendrick Lamar hlaut flest verðlaun á verðlaunaafhendingu MTV í Los Angeles á sunnudaginn.
Stjórnmál gnæfa yfir
MTV-verðlaunum
AFP
Stjarna Katy Perry var kynnir á verðlaunaafhendingunni í Los Angeles.
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 8, 10.30ÍSL TAL. 2D KL. 6
SÝND KL. 6SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 8, 10.25
SÝND KL. 5.30