Morgunblaðið - 29.08.2017, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Íslenskir karlar kúgaðir...
2. ...skemmtu sér á Ungfrú Íslandi
3. Óþvegið salat sökudólgurinn
4. Konur í yfirstærð eiga ekki...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Franski leikstjórinn Olivier Assayas
verður einn af heiðursgestum RIFF, Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík, sem fram fer 28. september til 8.
október næstkomandi. Assayas hlaut
verðlaun sem besti leikstjórinn á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í fyrra, fyrir
kvikmyndina Personal Shopper. Assa-
yas hefur til fjölda ára talist einn
fremsti kvikmyndagerðarmaður
Frakklands og á að baki tugi verka
sem hlotið hafa fjölmargar viður-
kenningar. Hann sló í gegn á 10. ára-
tugnum með kvikmyndinni Irma Vep
sem er óður leikstjórans til Hong Kong
og af öðrum lofsungnum kvikmyndum
hans má nefna Les Destinées senti-
mentales (2000), Demonlover (2002)
og Clean (2004) en þær voru allar til-
nefndar til Gullpálmans í Cannes. Síð-
ustu þrjár kvikmyndir Assayas, Aprés
maí (2012), Sils Maria (2014) og
Personal Shopper (2016), hafa allar
hlotið margvíslegar viðurkenningar og
verðlaun. Á RIFF verður yfirlitssýning
á verkum Assayas auk þess sem hann
verður aðdáendum og ungu kvik-
myndagerðarfólki innan handar á sér-
stökum masterclass-fyrirlestri.
Olivier Assayas
heiðursgestur RIFF
Latínkvartett kontrabassaleik-
arans Tómasar R. Einarssonar kemur
fram á djasskvöldi Kex hostels í
kvöld kl. 20.30 en auk Tóm-
asar skipa hann Snorri
Sigurðarson á tromp-
et, Gunnar Gunnarsson
á píanó og Kristófer
Rodríguez Svönuson
á slagverk. Sér-
stakur gestur í
nokkrum lögum
verður kólumbíski
gítarleikarinn
Miguel Ramón.
Kvartett og kólumb-
ískur gítarleikari
Á miðvikudag Vestlæg átt 3-8 m/s. Skýjað og lítilsháttar súld eða
þokumóða vestantil, en bjartviðri eystra. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast
suðaustan- og austanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil rigning eða súld á N- og A-landi en
annars úrkomulítið og bjart með köflum S-lands. Styttir upp víða
fyrir norðan í kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast S-lands.
VEÐUR
„Þetta var ótrúlega gaman
en allt öðruvísi en á Ís-
landi,“ segir Glódís Perla
Viggósdóttir, landsliðskona
í knattspyrnu, í samtali við
Morgunblaðið. Hún fagnaði
sínum fyrsta titli í atvinnu-
mennsku um liðna helgi.
Glódís varð þá bikarmeist-
ari með sínu nýja liði Rosen-
gård í Svíþjóð, með 1:0-sigri
á Linköping, en úrslitaleik-
urinn fór fram í Linköping.
»3
Fagnaði sínum
fyrsta titli
„Ég hef í raun aldrei fundið eitthvað
eftir þetta sem ég hef getað tengt við
höfuðhöggið sjálft,“ segir Elfar Árni
Aðalsteinsson, sem fékk slæmt rot-
högg í leik fyrir fjórum árum. Elfar
skoraði þrennu
fyrir KA um
helgina og er
leikmaður
umferð-
arinnar að
mati
Morg-
un-
blaðs-
ins, sem
birtir jafn-
framt lið um-
ferðarinnar og
stöðuna í M-
gjöfinni í dag. »4
Hugsaði aldrei hvort
ferlinum væri lokið
„Þessir strákar eru reynslunni ríkari
og þekkja það betur að vera á stóra
sviðinu. Núna eru menn hættir að
kippa sér upp við að sitja við sama
borð og Pau Gasol í morgunmatnum
eða vera í lyftu með Tony Parker,“
segir Benedikt Guðmundsson í pistli
um íslenska hópinn á EM karla í
körfubolta. Hann segir liðið betra nú
en á EM fyrir tveimur árum. »3
Hættir að kippa sér upp
við að borða með Gasol
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Heimilisfólkið að Auðbrekku í Hörg-
árdal mætti uppábúið á hestbaki í
150 ára afmælismessu Möðruvalla-
klausturskirkju að Möðruvöllum á
sunnudaginn. Hvatt hafði verið til
þess að fólk mætti ríðandi í afmæl-
ismessuna og datt heimilisföðurnum
að Auðbrekku, Bernharði Arnarsyni,
í hug á laugardagsmorgninum að
það yrði gaman að klæða fjölskyld-
una upp á.
„Það kom upp sú hugmynd að fara
ríðandi í messu og af minni alkunnu
vitleysu ákvað ég að taka það skrefi
lengra og klæða fjölskylduna upp og
láta hana líta út fyrir að vera al-
múgafjölskylda fyrir hundrað og
fimmtíu árum. Það tóku allir ótrú-
lega vel í þetta, ótrúlegt en satt,“
segir Bernharð. Kona hans er Þórdís
Þórisdóttir og eiga þau fjögur börn á
aldrinum 11 til 16 ára. Auk fjölskyld-
unnar var kanadísk vinkona þeirra
með í för.
Oftast notalegar stundir
Fötin fengu þau lánuð hjá Leik-
félagi Hörgdæla, sem Bernharð hef-
ur starfað mikið með, Leikfélagi Ak-
ureyrar og frá Gamla bænum í
Laufási. Þá fékk Bernharð lánaðan
söðul hjá frænda sínum sem frúin
reið í. Hann segir athæfið hafa vakið
athygli kirkjugesta. „Það komu
margir ríðandi til messu, á milli 20
og 30 manns, en það var enginn eins
vitlaus og við að klæða sig svona
upp,“ segir hann hress í bragði.
Rúmlega fimm kílómetrar eru á
milli Auðbrekku og Möðruvalla.
Bernharð segir fjölskylduna fara
reglulega í kirkju. „Við reynum að
gera það og þetta eru oftast notaleg-
ar stundir. Ég býst ekki við að við
mætum svona til fara í hvert skipti
en gæti trúað því að eftirleiðis verði
árleg hestamessa á Möðruvöllum.“
Auðgaði guðsþjónustuna
Séra Oddur Bjarni Þorkelsson,
prestur í Möðruvallaklausturskirkju,
segir uppátæki Auðbrekkufjölskyld-
unnar mjög skemmtilegt. „Það auðg-
aði guðsþjónustuna heilmikið að fá
allt þetta fólk ríðandi til messu svo ég
tali ekki um suma svona prúðbúna.
Það var tekin hópmynd af öllum að
messu lokinni og þau eru inn á milli
svolítið eins og fortíðardraugar. Það
er skemmtilegt að ramma inn 150
ára sögu kirkjunnar með einhverjum
sem hefðu getað komið fyrir 150 ár-
um á þeim fararskjóta sem var brúk-
aður þá,“ segir sr. Oddur Bjarni.
Hann messar í Möðruvallaklaust-
urskirkju að jafnaði einu sinni í mán-
uði yfir vetrartímann og kveður
messusókn alla jafna góða.
Eins og fortíðardraugar
Riðu uppá-
klædd til messu
á Möðruvöllum
Ljósmynd/Áslaug Ólöf Stefánsdóttir
Uppábúin Auðbrekkufólk talið frá vinstri; Bergvin Þórir 16 ára, Cecilia Porter vinkona þeirra frá Kanada, Anna
Ágústa 15 ára, Þórdís Þórisdóttir, Ísak Óli 12 ára, Bernharð Arnarson og Karin Thelma 11 ára.
Húsfreyjan Þórdís Þórisdóttir reið í söðli, hér er hún fyrir framan Möðru-
vallarklausturskirkju og lætur hestinn prjóna lítillega.