Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 22
22 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Íslensk rapptónlist hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin misseri og ef vin-
sældalistar á landinu eru skoðaðir er rapptónlist ofarlega á flestum þeirra. Það sem
hefur þó vakið mesta athygli í rapptextum í dag er að þeir eru á íslensku, þar er leikið
með málið, framburðinn er öðruvísi ásamt beygingum en sá hljómur virðist leggjast vel
í landann. Viktor Örn Hjálmarsson er nemandi í Grunnskóla Grindavíkur en hann tók á
dögunum þátt í Rímnaflæði sem er rappkeppni fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólanna
og er á vegum Samfés. Einn frægasti rappari landsins, Emmsjé Gauti, sigraði keppnina á
sínum tíma. Viktor gerði sér lítið fyrir og lenti í öðru sæti í þeirri keppni, en hann hefur
rappað frá því hann var fimm ára gamall og kom fram í fyrsta sinn opinberlega í keppninni.
ANNAÐ SÆTIÐ KOM Á ÓVART
Viktor hefur aðallega verið heima
hjá sér að semja og rappa og kom
fyrst opinberlega fram á Rímnaflæði,
annað sætið kom honum á óvart en
alls tóku fjórtán keppendur þátt í
keppninni. „Ég samdi textann við
lagið sjálfur. Hann er eiginlega bara
um allt, fortíðina og framtíðina, eigin-
lega smá grautur. Ég byrjaði að semja
textann smátt og smátt en síðasta
partinn samdi ég tveimur dögum fyrir
keppnina en ég hugsa að ég hafi verið
í um viku að semja allt lagið.“
RAPPAR Í SKÓLANUM OG HEIMA HJÁ SÉR
Þrátt fyrir að hafa klárað textann
við lagið aðeins tveimur dögum fyrir
keppnina þá segir Viktor að það hafi
ekki verið neitt mál að læra hann.
Hann var rappandi í skólanum, heima
hjá sér og svo segir hann það vera
minna mál að læra textann ef maður
semur hann sjálfur. „Ég ætlaði mér
ekki að taka þátt í þessari keppni en
Etna, sem sér um Þrumuna, vildi endi-
lega fá einhvern héðan til að taka
þátt því henni langaði svo að fara á
keppnina. Ég sagði fyrst í djóki að ég
skyldi bara taka þátt, byrjaði að semja
smá texta en svo fannst mér textinn
svo góður þannig ég ákvað að slá til
og fara í keppnina. Vinur minn fann
tónlistina við lagið á netinu en ég er
núna að semja eitt lag ásamt öðrum
og við stefnum að því að búa til tón-
listarmyndband með því.“
STYÐST VIÐ RÍMORÐABÓK
Rapptextar verða ekki til á einni
nóttu en það þarf að hugsa um
flæðið, hvernig lagið rími og svo
framvegis. „Þegar ég byrja að semja
fæ ég stundum einhverja hugmynd
sem ég set inn á „notes“ í símanum
mínum. Þar fer undirspilið líka inn
og svo skrifa ég eitthvað. Ég styðst við
rímorðabók á netinu en ef þú slærð
inn orð á þeirri síðu þá koma inn fullt
af orðum sem ríma við það orð, en
það er erfiðara að láta sum orð ríma
saman. Núna er ég að reyna að búa
til minn eigin rappstíl, er smá æstur
en samt ekki. Ég er ekki alveg viss
hvort ég ætli að leggja þetta fyrir mig
í framtíðinni og tek bara eitt skref
í einu. Eftir keppnina hef ég fengið
margar spurningar um það hvort
ég ætli að taka þátt á næsta ári en
ég ætla bara að sjá hvernig staðan
verður þá, kannski tek ég þátt aftur,
kannski ekki. Sjálfur hlusta ég á Jóa
P og Króla, Emmsjé Gauta, Birni og
Herra Hnetusmjör, þeir eru uppáhalds
rappararnir mínir í dag. Þegar ég var
yngri hlustaði ég mikið á Rottweiler
hunda og Emmsjé Gauta en Emmsjé
Gauti vann einmitt Rímnaflæði fyrir
nokkrum árum síðan.“
Viktor Örn lenti í öðru sæti í Rímnaflæði
„HEF RAPPAÐ
FRÁ ÞVÍ ÉG VAR
FIMM ÁRA“
– semur textana sína sjálfur
Núna er ég að reyna
að búa til minn eigin
rappstíl, er smá æstur
en samt ekki.
Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
VIÐTAL
ilmolíulampar - ilmkerti - ilmstangir
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF ILMOLÍUM
HAFNARGÖTU 23 • ZOLO.IS