Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 51

Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 51
51VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári „Netverslun er í gríðarlegum vexti og við höfum verið að upplifa mjög hraðan vöxt í rekstrinum á undan- förnum árum,“ segir Skúli Skúla- son, framkvæmdastjóri UPS en starfsemi fyrirtækisins flutti í nýtt húsnæði í síðustu viku. Fyrirtækið er í sömu byggingu og Airport As- sociates á Keflavíkurflugvelli. „Það var gjörbylting að að komast í alvöru húsnæði, plássleysi á hinum staðnum var orðið erfitt. Þetta skiptir okkur miklu máli.“ Skúli segir að fyrirtækið hafi verið stofnað árið 2005 þegar það tók við umboði UPS á Íslandi. Til að byrja með hafi starfsmenn verið um tíu en með aukinni net- verslun hafi starfsemin aukist mikið og nú séu starfsmennirnir orðnir þrjátíu. UPS er stærsta og öflugasta hrað- sendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu og er nú orðið leiðandi fyrirtæki á þeim markaði. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim að sögn Skúla. Í gegnum öflugt samskiptanet UPS er auðvelt að sjá hvaða sendingar eru á leið til landsins eða hvar þær eru staðsettar á leiðinni og auðvelt er að rekja sendinguna frá upprunalandi til ákvörðunarstaðar. UPS er elsta hraðsendingafyrirtæki í heiminum, stofnað í Bandaríkjunum árið 1907 „Yngri kynslóðin er að kaupa mikið á netinu. Þau fara mörg hver ekki í búðir. Þjónustan er mjög góð og kaupandi getur fengið vöruna í hend- urnar daginn eftir að hann pantar ef hann gerir pöntun að morgni,“ segir Skúli en á hverjum morgni fara að minnsta kostur tugur bílstjóra út úr húsi með pantanir. „Það eru áskoranir núna að halda góðu starfsfólki en þetta hefur gengið vel hjá okkur. Hraður vöxtur er oft vissulega erfiður en við höfum náð að taka við honum. Mér finnst ekki ólíklegt að það hægi eitthvað á honum,“ segir Skúli Skúlason hjá UPS. - starfsmannafjöldi UPS hefur þrefaldast á áratug Starfsemi Airport Associates byggir á þjónustu við flugfélög sem koma til Keflavíkurflugvallar bæði með farþegaþjónustu og flutninga (cargo) auk annars. Meðal 65 flugfélaga sem fyrirtækið hefur þjónustað eru Wow air, Easy Jet, British Airways, Air Norwegian, Delta Airlines, Bluebired Cargo og Wizz Air en öll þessi flugfélög hafa verið í miklum vexti undanfarin ár. Höfuðstöðvar Airport Associates og UPS við Fálkavelli á Keflavíkurflugvelli. Allt á fullu í eldhúsinu að undirbúa opnunarteitið. NETVERSLUN Á FLEYGIFERÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.