Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 51
51VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
„Netverslun er í gríðarlegum vexti
og við höfum verið að upplifa mjög
hraðan vöxt í rekstrinum á undan-
förnum árum,“ segir Skúli Skúla-
son, framkvæmdastjóri UPS en
starfsemi fyrirtækisins flutti í nýtt
húsnæði í síðustu viku. Fyrirtækið
er í sömu byggingu og Airport As-
sociates á Keflavíkurflugvelli.
„Það var gjörbylting að að komast í
alvöru húsnæði, plássleysi á hinum
staðnum var orðið erfitt. Þetta
skiptir okkur miklu máli.“
Skúli segir að fyrirtækið hafi verið
stofnað árið 2005 þegar það tók við
umboði UPS á Íslandi.
Til að byrja með hafi starfsmenn
verið um tíu en með aukinni net-
verslun hafi starfsemin aukist mikið
og nú séu starfsmennirnir orðnir
þrjátíu.
UPS er stærsta og öflugasta hrað-
sendingafyrirtæki heims með
þjónustunet til rúmlega 220 landa
um allan heim. Undanfarin ár hefur
UPS verið í mikilli sókn í Evrópu
og er nú orðið leiðandi fyrirtæki á
þeim markaði. Daglega eru afhentir
tæplega 16 milljónir pakka um allan
heim að sögn Skúla.
Í gegnum öflugt samskiptanet UPS
er auðvelt að sjá hvaða sendingar eru
á leið til landsins eða hvar þær eru
staðsettar á leiðinni og auðvelt er að
rekja sendinguna frá upprunalandi
til ákvörðunarstaðar. UPS er elsta
hraðsendingafyrirtæki í heiminum,
stofnað í Bandaríkjunum árið 1907
„Yngri kynslóðin er að kaupa mikið
á netinu. Þau fara mörg hver ekki
í búðir. Þjónustan er mjög góð og
kaupandi getur fengið vöruna í hend-
urnar daginn eftir að hann pantar ef
hann gerir pöntun að morgni,“ segir
Skúli en á hverjum morgni fara að
minnsta kostur tugur bílstjóra út úr
húsi með pantanir.
„Það eru áskoranir núna að halda
góðu starfsfólki en þetta hefur
gengið vel hjá okkur. Hraður vöxtur
er oft vissulega erfiður en við höfum
náð að taka við honum. Mér finnst
ekki ólíklegt að það hægi eitthvað
á honum,“ segir Skúli Skúlason hjá
UPS.
- starfsmannafjöldi UPS hefur þrefaldast á áratug
Starfsemi Airport Associates byggir á þjónustu við flugfélög sem koma til Keflavíkurflugvallar bæði
með farþegaþjónustu og flutninga (cargo) auk annars. Meðal 65 flugfélaga sem fyrirtækið hefur
þjónustað eru Wow air, Easy Jet, British Airways, Air Norwegian, Delta Airlines, Bluebired Cargo og
Wizz Air en öll þessi flugfélög hafa verið í miklum vexti undanfarin ár.
Höfuðstöðvar Airport Associates og UPS við Fálkavelli á Keflavíkurflugvelli.
Allt á fullu í eldhúsinu að undirbúa opnunarteitið.
NETVERSLUN
Á FLEYGIFERÐ