Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 32

Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 32
32 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. Það hefur verið þónokkur blossi í myndum listakonunnar Sossu á þessu ári. Sossa Björnsdóttir mynd- listarkona og Anton Helgi Jónsson ljóðskáld leiddu saman hesta sína á árinu. Anton Helgi hefur tekið saman fjölmörg ljóð á erótískum nótum sem Sossa hefur svo notað sem áhrifavalda í myndum sínum. Þau héldu svo sýningu á verkum sínum í Bíósal DUUS safnahúsa á Ljósanótt undir nafninu „Blossi“. Sossa er enn undir áhrifum Blossa og mátti sjá verk úr sýningunni á vinnu- stofu hennar í jólaboði sem hún hélt á dögunum. Anton Helgi var einnig mættur á svæðið og flutti nokkur af ljóðum sínum fyrir sýningargesti. Ljóðið sem fylgir þessari umfjöllun er að einhverju leyti inngangsljóð eða formáli að samsýningu Sossu og Antons Helga í haust. Hugmyndin að ljóðinu kemur úr grísku goðsögninni um Seif og Heru sem deildu á sínum tíma um það hvort nyti kynlífs betur karl eða kona. Anton Helgi flutti ljóðið aftur í jólaboði Sossu. Eftir Ljósanætursýninguna hefur Sossa haldið áfram í listsköpun sinni og er trú sínum stíl eins og áður hefur komið fram í viðtali við listakonuna hér í Víkurfréttum. Á vinnustofunni er hún með nokkuð af myndum í eld- heitum litum og með persónum úr ljóðum Antons Helga, þar sem kon- ur elska karla og konur elska konur alveg eins og karlar sem elska konur og karlar sem elska karla. Sossa er með vinnustofu að Mánagötu 1 í Keflavík. Fyrir lesendur sem vilja kíkja á vinnustofuna og kaupa mynd fyrir jólin er rétt að benda á númerið hjá Sossu en það er 864 6233. VF-myndir: Hilmar Bragi Sendum félagsmönnum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Svaladyr á efri hæð í gráu húsi standa opnar inni karpa hjón eða leikið par í sjónvarpsmynd sem rifjar upp forna goðsögn. Hvort skyldi njóta kynlífs betur, karl eða kona? Karlinn hrópar konan. Konan hrópar karlinn. Þú hefur aldrei verið karl og veist ekkert um það. Þú hefur aldrei verið kona og veist ekkert um það. Hvort nýtur lífsins betur, ég eða þú? Enginn betur svarað nema fugl, nema skáld. Fugl sem syngur og þykist vera skáld. Skáld sem syngur og þykist vera fugl. - Anton Helgi Jónsson. Erótíkin í myndum Sossu Myndlistarkonan Sossa býður gesti velkomna í jólaboðið á vinnustofu sinni. Ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson las úr ljóðum sínum fyrir gesti. Góðir gestir heimsóttu Sossu á vinnustofuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.