Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 40
40 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
„Starfið mitt er rosalega fjölbreytt. Fyrst og
fremst sé ég um tæknimál á viðburðum. Ég
geri sviðið klárt eftir umfangi viðburðarins,
geri hljóðprufu þegar þess þarf og svo sit
ég yfir á meðan viðburður er í gangi. Ef ég
sé sjálfur um hljóðið þá passa ég líka upp á
það að ljós séu rétt sett upp og ræð einhvern
ljósamann til þess að keyra þau. Svo sé ég
um allan tæknibúnað í húsi Hljómahallar,
allt frá því að skipta um ljósaperu í loftinu
yfir í að yfirfara hljóðbúnaðinn.“
Áhugi Þórhalls á starfi hljóðmanns kviknaði
þegar hann aðstoðaði vini sína, þegar hann
var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, við það að
setja upp hina ýmsu viðburði fyrir skólann.
„Út frá því tók ég að mér nokkur verkefni sem
verktaki, bæði við hljóð og ljós.“
Árið 2015 flutti Þórhallur svo til Manchester
þar sem hann lærði hljóðblöndun. Hann
þurfti þó að hætta fljótlega vegna fjárhags-
vandræða, en þegar hann flutti heim fékk
hann starf í Hljómahöll. „Þar fékk ég tækifæri
til að afla mér reynslu sem hljóðmaður á alls
konar viðburðum. Þá var ekki aftur snúið.“
Hann segir frábært að vinna í Hljómahöll.
„Ég vinn með yndislegu fólki og það er geð-
veikt að fá að taka þátt í starfinu sem er í
gangi í þessari menningarmiðstöð Reykja-
nesbæjar.“ Í Hljómahöll hefur Þórhallur til
dæmis fengið að hljóðblanda tónleika hjá
Amabadama, Jóni Jónssyni, Friðriki Dór,
Dúndurfréttum, heiðurstónleika Trúbrots
og svo lengi mætti telja.
Aðspurður hvaða verkefni hafi verið skemmti-
legust nefnir Þórhallur til að mynda tónleika
Valdimars í Hljómahöll í fyrra sem hann segir
með skemmtilegri tónleikum sem hann hefur
hljóðblandað, en hann hefur einnig aðstoðað
Hljóðblandar beina útsendingu Mammút hjá KEXP útvarpsstöðinni í Seattle.
Þórhallur Arnar tók á móti Víkurfréttum í Hljómahöll. VF-mynd: Sólborg
Ég vinn með yndislegu
fólki og það er geðveikt að
fá að taka þátt í starfinu
sem er í gangi í þess-
ari menningarmiðstöð
Reykjanesbæjar.
Hljóðmaðurinn Þórhallur Arnar stefnir langt í bransanum
Maðurinn á bak við tjöldin
- Þórhall dreymir um að ferðast um heiminn og hljóðblanda fyrir tónlistarmenn
„Draumurinn er að fá að
ferðast um heiminn sem hljóð-
maður hjá einhverri hljóm-
sveit eða listamanni,“ segir
Þórhallur Arnar Vilbergsson,
en í dag starfar hann sem
alhliða tæknimaður og verk-
efnastjóri í Hljómahöllinni í
Reykjanesbæ og tekur þar að
auki að sér verkefni sem hljóð-
og ljósamaður fyrir hljóm-
sveitir og tónlistarmenn.
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
VIÐTAL