Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 53

Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 53
53VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. - segir Ásta Laufey Sigurjónsdóttir snyrtifræð- ingur og sérfræðingur í varanlegri förðun „Stofan er búin að vera í bígerð í þrjú ár en ég var með herbergi á hár- greiðslustofunni Draumahár áður en ég flutti mig til í húsnæðinu hér á Keilisbraut,“ segir Ásta Laufey Sigurjónsdóttir, eigandi snytistofunnar Draumórar. Snyrtistofan er í sama húsnæði og Langbest á Ásbrú en Ásta færði sig um set í september og stækkaði töluvert mikið við sig. „Það er töluvert stökk að fara úr einu litlu herbergi í svona stórt rými en þetta fer mjög vel af stað hjá mér. Ég býð upp á allar hefðbundnu meðferðirnar, fót- snyrtingu, andlitsbað, plokkun og litun, vax og svo er ég líka með varanlega förðun og Dermatude en er ég sú eina á Suðurnesjunum sem býður upp á Dermatude-meðferð.“ Náttúruleg meðferð sem vinnur gegn öldrun húðar­ innar Með Dermatude-meðferðinni er verið að örva eigin frumuframleiðslu húðarinnar en húðin er löguð að innan og verður öll líflegri fyrir vikið. „Dermatude er fyrst og fremst öldr- unarmeðferð en þetta er hundrað prósent náttúruleg meðferð. Húð- læknar nota meðferðina líka en hún eykur rakann í húðinni og vinnur gegn öldrun, fínum línum og eykur stinn- og þéttleika húðarinnar. Þetta er nálameðferð þar sem verið er að gata húðina, ekkert annað og þessu er fjarstýrt þannig að tækið vinnur fyrir þig og nálarnar komast aldrei það djúpt ofan í húðina að það skemmi hana, það myndast aldrei ör eða annað slíkt við meðferðina.“ Getur seinkað öldrunar­ ferlinu Við 25 ára aldurinn fer frumufram- leiðsla á kollageni að minnka og því getur verið gott að byrja snemma til að fyrirbyggja og seinka öldrunar- ferlinu að sögn Ástu. „Hægt er að koma í stakt skipti en þú færð meiri árangur af því að koma í kúr sem er átta skipti. Í lengri með- ferð eru þau svæði löguð sem hægt er að laga eins og til dæmis djúpar línur en þannig kemur árangur með- ferðarinnar í ljós. Þú getur sett farða á þig strax daginn eftir meðferð en þó svo að það sé verið að rjúfa húðina þá sér maskinn, sem settur er eftir meðferðina sjálfa, um það að allur roði fari úr húðinni. Ef þú ert með rósroða eða viðkvæma húð þá vinnur meðferðin á því, en hún virkar einnig á exem húð, húðvandamál og stuðlar að frumuframleiðslu í húðinni þinni. Húðin byggir sig upp sjálf þegar með- ferðinni lýkur.“ Lagar ör, háræðaslit og önnur vandamál Eingöngu er notast við náttúrulegar vörur í meðferðinni sem eru ilmefna- og paraben-fríar, þær lykta þó ekki vel en gera sitt gagn og það skiptir máli. „Ef þú ert með vandamálahúð, með ör eða annað eftir bólur eða hefur verið á lyfjakúr þá getur þú komið í Dermatude-meðferð til að laga slíkt. Dermatude vinnur vel gegn örum, háræðaslitum og þú finnur strax að þetta virkar.“ Býður upp á varanlega förðun og meðferð gegn öldrun húðarinnar: Það skiptir máli að hugsa vel um húðina sína Húðlæknar nota meðferð- ina líka en hún eykur rak- ann í húðinni og vinnur gegn öldrun, fínum línum og eykur stinn- og þétt- leika húðarinnar. Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári! Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.