Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 53
53VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
- segir Ásta Laufey Sigurjónsdóttir snyrtifræð-
ingur og sérfræðingur í varanlegri förðun
„Stofan er búin að vera í bígerð í þrjú ár en ég var með herbergi á hár-
greiðslustofunni Draumahár áður en ég flutti mig til í húsnæðinu hér á
Keilisbraut,“ segir Ásta Laufey Sigurjónsdóttir, eigandi snytistofunnar
Draumórar. Snyrtistofan er í sama húsnæði og Langbest á Ásbrú en Ásta
færði sig um set í september og stækkaði töluvert mikið við sig. „Það er
töluvert stökk að fara úr einu litlu herbergi í svona stórt rými en þetta fer
mjög vel af stað hjá mér. Ég býð upp á allar hefðbundnu meðferðirnar, fót-
snyrtingu, andlitsbað, plokkun og litun, vax og svo er ég líka með varanlega
förðun og Dermatude en er ég sú eina á Suðurnesjunum sem býður upp á
Dermatude-meðferð.“
Náttúruleg meðferð sem
vinnur gegn öldrun húðar
innar
Með Dermatude-meðferðinni er
verið að örva eigin frumuframleiðslu
húðarinnar en húðin er löguð að
innan og verður öll líflegri fyrir vikið.
„Dermatude er fyrst og fremst öldr-
unarmeðferð en þetta er hundrað
prósent náttúruleg meðferð. Húð-
læknar nota meðferðina líka en hún
eykur rakann í húðinni og vinnur
gegn öldrun, fínum línum og eykur
stinn- og þéttleika húðarinnar. Þetta
er nálameðferð þar sem verið er að
gata húðina, ekkert annað og þessu er
fjarstýrt þannig að tækið vinnur fyrir
þig og nálarnar komast aldrei það
djúpt ofan í húðina að það skemmi
hana, það myndast aldrei ör eða
annað slíkt við meðferðina.“
Getur seinkað öldrunar
ferlinu
Við 25 ára aldurinn fer frumufram-
leiðsla á kollageni að minnka og því
getur verið gott að byrja snemma til
að fyrirbyggja og seinka öldrunar-
ferlinu að sögn Ástu.
„Hægt er að koma í stakt skipti en þú
færð meiri árangur af því að koma í
kúr sem er átta skipti. Í lengri með-
ferð eru þau svæði löguð sem hægt
er að laga eins og til dæmis djúpar
línur en þannig kemur árangur með-
ferðarinnar í ljós. Þú getur sett farða
á þig strax daginn eftir meðferð en
þó svo að það sé verið að rjúfa húðina
þá sér maskinn, sem settur er eftir
meðferðina sjálfa, um það að allur
roði fari úr húðinni. Ef þú ert með
rósroða eða viðkvæma húð þá vinnur
meðferðin á því, en hún virkar einnig
á exem húð, húðvandamál og stuðlar
að frumuframleiðslu í húðinni þinni.
Húðin byggir sig upp sjálf þegar með-
ferðinni lýkur.“
Lagar ör, háræðaslit og önnur
vandamál
Eingöngu er notast við náttúrulegar
vörur í meðferðinni sem eru ilmefna-
og paraben-fríar, þær lykta þó ekki vel
en gera sitt gagn og það skiptir máli.
„Ef þú ert með vandamálahúð, með
ör eða annað eftir bólur eða hefur
verið á lyfjakúr þá getur þú komið í
Dermatude-meðferð til að laga slíkt.
Dermatude vinnur vel gegn örum,
háræðaslitum og þú finnur strax að
þetta virkar.“
Býður upp á varanlega förðun og meðferð gegn öldrun húðarinnar:
Það skiptir máli að hugsa vel
um húðina sína
Húðlæknar nota meðferð-
ina líka en hún eykur rak-
ann í húðinni og vinnur
gegn öldrun, fínum línum
og eykur stinn- og þétt-
leika húðarinnar.
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!