Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 63
63ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk
fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða
Hollt, gott og heimilislegtSkólamatur ehf. Iðavöllum 1, 230 Reykjanesbær I Sími 420 2500 I www.skolamatur.is
EMBLA KOMIN HEIM
Embla Kristínardóttir hefur nú
skrifað undir samning við körfu-
knattleiksdeild Keflavíkur og mun
spila með Keflavík út tímabilið.
Þetta staðfestir Sverrir Þór Sverris-
son, þjálfari Keflavíkur, í samtali við
Víkurfréttir.
Embla rifti samningi sínum við lið
Grindavíkur fyrir stuttu en hún segir
ástæðu þess hafa verið ósætti milli
sín og spilandi þjálfara liðsins, An-
gelu Rodriguez. Embla hafði verið
sterk með liði Grindavíkur í vetur og
meðaltal hennar 21 stig, 12 fráköst
og 5 stoðsendingar í leik. Þá er hún
einnig efst í framlagi leikmanna fyrstu
deildarinnar með 27,2 stig. Hún mun
nú leika í Domino’s-deildinni það sem
eftir er af tímabilinu.
Sverrir Þór segist mjög ánægður að
fá Emblu heim til Keflavíkur. „Hún er
frábær leikmaður með mikla reynslu
og leikstíll hennar hentar okkar liði
vel.“
Emelía sleit krossbönd
Einn af mikilvægustu leikmönnum
Keflavíkur, Emelía Ósk Gunnars-
dóttir, sleit krossbönd fyrir stuttu
og mun ekki leika meira með liðinu á
tímabilinu og segir Sverrir það góðar
fréttir í kjölfarið að fá Emblu í liðið.
Jón Axel Guðmundson gerir það gott í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum
Lék fyrir framan besta
leikmann sögunnar
- Michael Jordan sat á áhorfendapöllum Davidson
Grindvíski körfuboltakappinn Jón Axel Guðmundsson
hefur verið að gera góða hluti með liði sínu Davidson í
bandaríska háskólakörfuboltanum. Hann hefur spilað
fyrir framan Michael Jordan og Stephen Curry en
hinn síðarnefndi stundaði líka nám og lék körfu
með Davidson háskólanum. Jón Axel mun ekki
koma til Íslands um jólin vegna körfuboltaleikja
en fer þess í stað til Hawaii til að spila í jólamóti.
Tímabilið er ansi langt hjá Jóni Axel
og félögum, nokkrir leikir eru búnir
af tímabilinu en þeir hafa tapað á móti
tveimur liðum sem eru talin vera ein
af 25 bestu liðunum í Ameríku í há-
skólaboltanum. „Við töpuðum einum
leik illa og við áttum alls ekki að tapa
honum en það gerist stundum, annars
er tímabilið okkar langt og strangt og
stendur enn yfir. Við höfum mikla
möguleika til að sanna okkur og von-
andi gerum við það bara.“
Þeir sem þekkja til í körfuboltaheim-
inum vita að „March Madness“ nýtur
mikilla vinsælda vestanhafs en það er
úrslitakeppnin í ameríska háskóla-
boltanum og Jón Axel segir að það séu
öll lið sem vilji spila þar og að mark-
mið Davidson sé að komast þangað.
„Ef við komumst í „March Madness“
þá ætlum við að reyna að valda eins
miklum usla og við getum, ég hef
fulla trú á því að við eigum eftir að
gera það.“
Ekki ómerkari nöfn en Michael Jor-
dan og Stephen Curry hafa komið
á leiki Davidson nýlega en Jón Axel
segist ekki spá í því hverjir séu á
áhorfendapöllunum hverju sinni.
„Ég hugsa meira um það hverjir voru
að horfa á leikinn þegar honum er
lokið því þegar þú ert inn á vellinum
ertu ekkert að hugsa um hverjir séu
að horfa og hverjir séu ekki að horfa.
Það er bara eitt sem maður hugsar
um þegar maður er inn á vellinum og
það er hvernig maður getur hjálpað
liðinu sínu að sigra leikinn.“
Jón Axel hefur verið að spila vel í
vetur en segist þó geta gert margt
betur, það hafi tekið svolítinn tíma
að verða einn af aðalmönnum liðsins
og hann sé vanari því að vera „role
player“. „Það eru nokkrir leikir búnir
og ég verð bara að halda áfram að
spila svona út tímabilið og vonast
eftir því besta.“
Leikmaðurinn knái kemur
ekki til Íslands um jólin
þar sem Davidson
spilar leiki yfir jóla-
hátíðina. „Það vill
svo til að við förum
til Hawaii að spila á
jólamóti um hátíð-
irnar, þannig að þetta
verða aðeins öðruvísi
jól en ég er vanur, engin
snjór bara sól og blíða.“
rannveig@vf.is
UTANVALLAR
AUGLÝSINGASÍMINN ER
421 0001