Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Það er fátt sem minnir meira á jólin
en greniilmur. Fyrir jólin koma líka
fáir aðrir til greina en Kiwanismenn
í Keili í Reykjanesbæ þegar kemur
að því að kaupa jólatré, hvort sem
það er norðmannsþinur, rauðgreni
eða íslensk fura.
Jólatréssala Kiwanisklúbbsins Keilis
er hafin en Kiwanismenn hafa í
gegnum áratugina séð Suðurnesja-
mönnum fyrir lifandi jólatrjám sem
þeir annars vegar flytja inn frá
Danmörku og einnig selja þeir
íslenska furu. Furan var hoggin
um síðustu helgi í Þjórsárdal
og kom á sölustað Kiwanis
núna á þriðjudaginn.
Þeir Ingólfur Ingi-
bergsson forseti
Keilis og Arnar
Ingólfsson tóku
galvaskir á móti
b l a ð a m a n n i
Víkurfrétta þegar jóla-
tréssalan opnaði. Þeir höfðu
nýlokið við, ásamt öðrum Kiw-
anisfélögum sínum, að stilla
upp sýnishornum af trjánum
sem eru í ýmsum stærðum á
sölusvæðinu sem er í Húsa-
smiðjunni í Reykjanesbæ.
Fulltrúar frá Velferðarsjóði
Suðurnesja og Fjölskyldu-
hjálp í Reykjanesbæ voru
komnir til að taka við stuðningi frá
Kiwanisklúbbnum Keili. Þarna endur-
speglast einmitt tilgangurinn í því
að selja Suðurnesjamönnum jólatré.
Afraksturinn fer til góðra málefna á
Suðurnesjum. Þannig hafa bæði Fjöl-
skylduhjálp og Velferðarsjóður Suður-
nesja notið góðs af þessu verkefni
Kiwanis síðustu ár. Bæði hafa fjár-
framlög og gjafabréf á jólatré runnið
til þessara aðila. Þá eru Kiwanismenn
einnig duglegir að veita fé í ýmiskonar
líknarmál og samfélagsverkefni.
Þær Þórunn Þórisdóttir frá Vel-
ferðarsjóði Suðurnesja og Anna
Valdís Jónsdóttir frá Fjöl-
skylduhjálp í Reykjanesbæ
tóku við gjafabréfum og
þökkuðu Kiwanismönnum
stuðninginn um leið og þær
stilltu sér upp til myndatöku
með þeim Ingólfi Ingi-
bergssyni forseta
Keilis og Arnari Ing-
ólfssyni formanni
styrktarnefndar.
Þær Þórunn og
Anna Valdís voru ný-
farnar úr húsi þegar Erlingur
Hannesson Kiwanismaður
mætti í hús. Hann hefur tekið
þátt í jólatréssölunni í ófá ár.
Erlingur var varla kominn á
bak við afgreiðsluborðið þegar
fyrstu viðskiptavinirnir komu í
hús. Passlega stórt tré var valið,
það sett í net, greitt fyrir og allir
ánægðir. „Þessum peningum er vel
varið hjá Kiwanismönnum,“ sagði
kátur viðskiptavinurinn sem heyrðist
þó bölva aðeins þegar jólatrénu var
stungið í skottið og það reyndist erfitt
að loka.
„Ertu ekki búinn að taka myndir
af krossunum og greninu?,“ spurði
Erlingur blaðamann. Blaðamaður
svaraði játandi og hafði nýlokið við
að smella myndum af grenikrossum
Líknandi jólatré hjá Kiwanis
600 jólatré bíða nýrra eiganda
og hugsað að „það verður hausverkur
að klippa þetta út í fótósjopp“.
Töluverð umræða hefur verið á sam-
félagsmiðlum síðustu daga um þá
staðreynd að Kiwanismenn hafa
fengið samkeppni í jólatréssölunni
frá nýju Iceland versluninni í bænum.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti
sem klúbburinn fær samkeppni um
sölu jólatrjáa. Fyrir mörgum árum
ætlaði Hjálparstofnun kirkjunnar
að selja tré við Samkaup en þeir fé-
lagar rifja upp að svo mörgum trjám
var stolið frá þeirri sölu að stofnunin
gafst upp og kom til Kiwanismanna
og gaf þeim restina af trjánum. Þá
ætlaði Húsasmiðjan og Blómaval að
hefja sölu jólatrjáa í samkeppni við
Kiwanis. Það féll í grýttan jarðveg
hjá bæjarbúum og endaði með því
að Kiwanismenn fengu aðstöðuna
hjá Húsasmiðjunni til að selja sín tré.
Þar eru Kiwanismenn í dag og treysta
á að geta selt Suðurnesjamönnum
um 600 jólatré í ýmsum stærðum
nú fyrir jólin.
Sölustaðurinn í portinu hjá Húsa-
smiðjunni á Fitjum er opinn virka
daga kl. 17-20 en um helgar er opið
kl. 14-20. Allur ágóði rennur til líknar-
mála á Suðurnesjum.
Þær Þórunn Þórisdóttir frá Velferðarsjóði Suðurnesja og Anna Valdís Jónsdóttir frá Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ tóku við gjafabréfum og þökkuðu
Kiwanismönnum stuðninginn um leið og þær stilltu sér upp til myndatöku með þeim Ingólfi Ingibergssyni forseta Keilis og Arnari Ingólfssyni formanni
styrktarnefndar. F.v.: Arnar, Anna Valdís, Þórunn og Ingólfur. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Kiwanisklúbburinn Hof í Garði fagnar 45 ára afmæli
um þessar mundir en klúbburinn var stofnaður árið
1972. Haldið var upp á tímamótin þann 12. nóvember
sl. og gestum boðið í kaffiveitingar í félagsheimili
Hofs í Garðinum.
Forsetar Ægissvæðis mættu í afmælishófið, einnig um-
dæmisstjórinn Konráð Konráðsson og Björn B. Krist-
insson svæðisstjóri. Gestir í afmælisveislunni voru vel
á fjórða tuginn.
Við þetta tækifæri veitti Kiwanisklúbburinn Hof styrki.
Fjórir aðilar hlutu styrkina. Þeir Gísli Steinn Þórhalls-
son og Tómas Poul Einarsson, sem báðir hafa greinst
með krabbamein hlutu styrki eins og unglingastarf
Útskálasóknar og Nesvellir í Reykjanesbæ. Samtals
voru styrkirnir upp á 300 þúsund krónur.
Hof fagnar 45 ára afmæli og veitti fjóra styrki
Arnar Ingólfsson, Erlingur Hannesson og Ingólfur Ingibergsson.
Hér er mjög vinsæl stærð af jólatrjám. Passlegt fyrir þig?