Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 41

Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 41
41MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. vini sína í hljómsveitinni við upp- tökur á plötunni sem þeir vinna nú að þessa dagana. „Tónleikar Valdimars verða ennþá betri núna í ár, þann 30. desember.“ Þá segir Þórhallur það einnig hafa verið gríðarlega skemmtilegt að taka þátt í Iceland Airwaves tónlistarhá- tíðinni nú í ár þar sem hann sá um hljóðið fyrir tugi listamanna á tón- leikastað í miðbæ Reykjavíkur. Banda- ríkjaferðirnar hans skora líka hátt á listanum, en hann kom nýverið heim úr einni slíkri. Fyrir stuttu ferðaðist hann annars vegar með hljómsveitinni Mammút og hins vegar með hljómsveitinni Fufanu. „Mér var boðið að hljóðblanda fyrir hljómsveitirnar á tónleikum sem kallast Taste of Iceland og eru haldnir af Iceland Naturally víðs vegar um Bandaríkin. Í þetta skipti fórum við til New York, Seattle og svo til Toronto í Kanada. Þetta var frábær upplifun og stækkaði reynslubankann alveg helling.“ Þórhallur segir þær ferðir hafa verið einstaklega skemmtilegar, sérstaklega í ljósi þess að hann hafði lengi hlustað á báðar hljómsveitirnar og séð þær á tónleikum. Aðspurður um framtíðina segist hann sjá fyrir sér að flakka á milli þess að vinna við tónleikahald og í upptöku- verinu. „Ætli maður fari ekki bara að vinna sem verktaki fyrir hina og þessa, prófa að vinna hjá sjálfum sér. Það væri gaman að komast meira erlendis með einhverjum skemmti- legum tónlistarmönnum.“ Hjördís Ólafsdóttir er búsett í Keflavík og starfar í farþegaþjónustu IGS í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Hún er móðir Óla Frosta, sem hún lýsir sem fjörugum ungum dreng. Hún er í háskólanámi á íþróttafræðibraut í Há- skóla Reykjavíkur og þess á milli stundar hún líkamsrækt af fullum krafti. Hjör- dísi finnst persónulegar jólagjafir bestar og ætlar að gæða sér á hamborgarhrygg á aðfangadag. Hvar ætlar þú að verja aðfanga- degi? „Aðfangadagur er upp- fullur af hefðum, en þetta árið eru hann þó aðeins óvenjulegur þar sem við hjónin vinnum bæði vaktarvinnu og þurfum að vera í vinnu framan af deg- inum. En á aðfangadagskvöld verðum við heima saman litla fjölskyldan eins og við höfum verið síðustu fimm ár.“ Ert þú byrjuð að kaupa jóla- gjafir? „Nei, ég er nú ekki byrjuð á því en þarf að fara að koma mér til þess. Mér finnst svo erfitt að ákveða hvað skal gefa hverjum og hver er hin fullkomna jólagjöf? Mér finnst persónulegar jólagjafir alltaf bestar.“ Ert þú með einhverjar hefðir um jólin? „Við fjölskyldan förum alltaf á einhverja tón- leika á aðventunni, hvort sem þeir eru hér heima eða í borg- inni. Þorláksmessuröltið er mikilvægt, gaman að fara, sýna sig og sjá aðra og ná síðustu jólagjöfunum. Ég reyni að hitta vini og spila. Við hittum líka stórfjölskylduna yfir hátíðardagana. Einnig er mikilvægt að fara í ræktina yfir hátíðarnar þegar vel er verið að gera við sig í mat og drykk. Á aðfangadagsmorgun er alltaf lúxus bröns með öllu tilheyrandi og einnig svolítið af jólasérréttum sem verður þó með öðru móti þetta árið vegna vinnunnar.“ Hvað munt þú borða á aðfanga- dag? „Það verður hamborgar- hryggur sem er græjaður með öllu tilheyrandi. Ég reyni alltaf að prófa eitthvað nýtt meðlæti á hverju ári, sem vekur þó mis- mikla lukku.“ Er eitthvað hér á Suðurnesjum sem þú mælir með að fólk nýti sér/geri um jólin? „Það er ótrúlega mikið af tón- leikum í boði hér í bæ, hvor sem það er í kirkjunum, Hljóma- höllinni eða annars staðar. Ég hef farið síðustu ár á jólatón- leikana hjá Kvennakórnum og Vox felix og er stefnan að fara á þá aftur þetta árið. Það er svo hátíðleg stund að fara saman á tónleika og setur inn jólastemmingu.“ Ætlar þú að láta eitthvað gott af þér leiða um jólin? Ef svo er, hvernig? „Já, við fjölskyldan út- búum alltaf jólagjafir og setjum undir tréð í Nettó í Krossmóa og í Smáralindinni, gjafir til þeirra sem minna mega sín. Það er líka gaman að segja frá því að fyrir nokkrum árum gaf eiginmaðurinn mér mjög sér- staka afmælisgjöf og gerðist blóðgjafi. Hann fer meðal ann- ars alltaf á aðventunni og gefur blóð og þannig finnst okkur við gefa til samfélagsins.“ Eiginmaðurinn gaf sérstaka gjöf og gerðist blóðgjafi Hjördís ásam t eiginmann i sínum Brynj ari Frey og Ó la Frosta syni þ eirra á brúð- kaupsdaginn , 15. júlí sl. Þórhallur sá um sviðshljóðið á útgáfutónleikum Dimmu í Háskólabíó. Hljóðblandar Jón Jónsson og hljómsveit í Hljómahöll. FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN 898 2222
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.