Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 42

Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 42
42 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. „Það er einkar ánægjulegt að geta stutt við félögin með þessum hætti víðsvegar um landið ,” segir Gunnar Egill, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa. Í verslunum Nettó í Grindavík og Kross- móa voru veittir styrkir á dögunum og tók Kjartan Friðrik Adolfsson við styrk fyrir hönd Grindavíkurkirkju og Þórunn Þórisdóttir tók við styrk fyrir hönd Vel- ferðarsjóðs Suðurnesja. Styrkir Samkaupa deildust niður á félög víðsvegar um landið í síðustu viku og þeirri sem er að líða. Alls voru veittar tæpar fjórar milljónir króna í styrki í ár. Styrkirnir voru meðal annars veittir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Rauða krossinum á Egilsstöðum, Selfosspresta- kalli, Fjölskylduhjálp Íslands og Styrktar- sjóði Húnvetninga. Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmda- stjóri verslunarsviðs Samkaupa segir einkar ánægjulegt að geta stutt við fjöl- breytt félög víðsvegar um landið með þessum hætti. „Við höfum styrkt góðgerðarfélög í desember undanfarin ár og það er gott að geta létt undir á þessum tíma og við vitum að það skiptir máli,” segir Gunnar. Samkaup reka verslanir um allt land undir vörumerkjunum Samkaup Úr- val, Samkaup Strax, Nettó, Sunnubúðin, Krambúð, Hólmgarður, Seljakjör og Kjör- búðin. „ Okkur þótti því liggja beinast við að koma styrkjum sem víðast um landið og teljum okkur ná til býsna fjölbreytts hóps í ár. Við vonum innilega að styrkveitingin muni koma sér vel yfir hátíðarnar,” segir Gunnar Egill. Samkaup styrkir góðgerðarmál um fjórar milljónir króna um hátíðarnar „Einkar ánægjulegt að geta stutt við félögin með þessum hætti víðsvegar um landið,“ segir Gunnar Egill, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa. Velferðasjóður Suðurnesja og Grinda- víkurkirkja hlutu á dögunum styrki frá Samkaupum en hefð hefur skapast fyrir að veita jólastyrki í desember ár hvert. Bjarki Sæþórsson, verslunarstjóri í Nettó í Njarðvík, afhendir Þórunni Þórisdóttur frá Velferðarsjóði Suðurnesja gjafabréf frá Samkaup. Kjartan Friðrik Adolfsson tók við gjafabréfinu fyrir hönd Grindavíkurkirkju. Hann er hér með Brynju Pálsdóttur verslunarstjóra Nettó í Grindavík. Íþróttaakademía Flugakademía Ragnar kláraði flugnám árið 2012 og starfar nú sem flugmaður hjá Icelandair. Hátt í 300 nemendur stunda nú atvinnuflugmannsnám í Flugakademíu Keilis. Takk fyrir frábært afmælisár Háskólabrú Davíð útskrifaðist af Háskólabrú árið 2014. Hann er hönnuður hjá Porsche í Þýskalandi. Á næsta ári verður boðið upp á alþjóðlega Háskólabrú þar sem hægt verður að stunda frumgreinanámið á ensku. Háskólabrú Flugakademía Hildur Björk útskrifaðist sem atvinnuflugmaður í byrjun árs 2014 og starfar nú sem flugmaður hjá Icelandair. Boðið er upp á bæði áfangaskipt og samtvinnað flugnám, auk flugnámsbrautar Icelandair. Árið 2008 útskrifuðust 85 nemendur í fyrstu útskrift okkar, en síðan þá hafa yfir þrjú þúsund einstaklingar lokið námi í Keili. Deildirnar eru nú orðnar fjórar með á annan tug námsframboða, starfsfólk hátt í eitt hundrað og árleg velta nálægt einum milljarði. Keilir var stofnaður þann 4. maí 2007 og fagnaði því tíu ára starfsafmæli á árinu sem er að líða. Á þessum tíma hefur fjöldi háskólamenntaðra á Suðurnesjum margfaldast samhliða því að námstækifærum hefur fjölgað á svæðinu. Keilir hefur frá upphafi kappkostað að bjóða upp á nám sem höfðar jafnt til þarfa nútíma nemenda og krafa atvinnulífsins, og þannig mætt örum breytingum í kennsluháttum og á vinnumarkaði. Við þökkum samstarfsaðilum, starfsfólki og nemendum skólans - núverandi og fyrrverandi - fyrir samstarfið og samveruna á undanförnum árum. Kærar þakkir fyrir árið sem er að líða. Við hlökkum til þess næsta. Tæknifræði Fida útskrifaðist með BS gráðu í tæknifræði og rekur nú fyrirtækið geoSilica Iceland.Tæknifræðinámið heyrir undir Háskóla Íslands og undirbýr nemendur fyrir þróun og sköpun framtíðartækni. Háskólabrú Fida var í fyrsta útskriftarhóp Háskólabrúar Keilis árið 2008 en í dag hafa yfir1.500 einstaklingar lokið náminu og hafa 85% þeirra haldið áfram í háskólanám. Íþróttaakademía Agnes útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari 2016 og starfar sem einkaþjálfari í World Class. Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi og hlaut á dögunum evrópska gæðavottun EREPS. Sigrún er tíu barna móðir á Eyjanesi í Hrútafirði og lauk Háskólabrú Keilis í fjarnámi árið 2014. Hægt er að sækja Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi, bæði með og án vinnu. Guðmundur lauk leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku árið 2014 og rekur núna Kind Adventure. Námið er á háskólastigi og tekur átta mánuði, þar sem helmingur þess fer fram í náttúru Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.