Víkurfréttir - 13.12.2017, Page 32
32 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Það hefur verið þónokkur blossi
í myndum listakonunnar Sossu á
þessu ári. Sossa Björnsdóttir mynd-
listarkona og Anton Helgi Jónsson
ljóðskáld leiddu saman hesta sína
á árinu. Anton Helgi hefur tekið
saman fjölmörg ljóð á erótískum
nótum sem Sossa hefur svo notað
sem áhrifavalda í myndum sínum.
Þau héldu svo sýningu á verkum
sínum í Bíósal DUUS safnahúsa á
Ljósanótt undir nafninu „Blossi“.
Sossa er enn undir áhrifum Blossa og
mátti sjá verk úr sýningunni á vinnu-
stofu hennar í jólaboði sem hún hélt
á dögunum. Anton Helgi var einnig
mættur á svæðið og flutti nokkur af
ljóðum sínum fyrir sýningargesti.
Ljóðið sem fylgir þessari umfjöllun
er að einhverju leyti inngangsljóð
eða formáli að samsýningu Sossu og
Antons Helga í haust. Hugmyndin að
ljóðinu kemur úr grísku goðsögninni
um Seif og Heru sem deildu á sínum
tíma um það hvort nyti kynlífs betur
karl eða kona. Anton Helgi flutti ljóðið
aftur í jólaboði Sossu.
Eftir Ljósanætursýninguna hefur
Sossa haldið áfram í listsköpun sinni
og er trú sínum stíl eins og áður hefur
komið fram í viðtali við listakonuna
hér í Víkurfréttum. Á vinnustofunni
er hún með nokkuð af myndum í eld-
heitum litum og með persónum úr
ljóðum Antons Helga, þar sem kon-
ur elska karla og konur elska konur
alveg eins og karlar sem elska konur
og karlar sem elska karla.
Sossa er með vinnustofu að Mánagötu
1 í Keflavík. Fyrir lesendur sem vilja
kíkja á vinnustofuna og kaupa mynd
fyrir jólin er rétt að benda á númerið
hjá Sossu en það er 864 6233.
VF-myndir: Hilmar Bragi
Sendum félagsmönnum
og Suðurnesjamönnum
öllum bestu óskir um
gleðileg jól og farsælt
komandi ár.
Þökkum samstarfið á
árinu sem er að líða.
Svaladyr á efri hæð í gráu húsi standa opnar
inni karpa hjón
eða leikið par
í sjónvarpsmynd sem rifjar upp forna goðsögn.
Hvort skyldi njóta kynlífs betur, karl eða kona?
Karlinn hrópar konan.
Konan hrópar karlinn.
Þú hefur aldrei verið karl og veist ekkert um það.
Þú hefur aldrei verið kona og veist ekkert um það.
Hvort nýtur lífsins betur, ég eða þú?
Enginn betur svarað nema fugl, nema skáld.
Fugl sem syngur og þykist vera skáld.
Skáld sem syngur og þykist vera fugl.
- Anton Helgi Jónsson.
Erótíkin í myndum Sossu
Myndlistarkonan Sossa býður gesti velkomna í jólaboðið á vinnustofu sinni.
Ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson las úr ljóðum sínum fyrir gesti.
Góðir gestir heimsóttu Sossu á vinnustofuna.