Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Side 10
10 23. febrúar 2018fréttir „Við erum mannapa- hópur sem er að reyna að eiga fín- an bíl og líða vel í fínum fötum. Brennur fyrir stjórnmálum Þórlaug hefur áhyggjur af stöðunni innan Pírata, þar sé margt reynslulítið fólk sem langi að breyta heiminum. Hispurslaus Þórlaug vill ekki sykurhúða það sem hún hefur að segja þar sem hún hafi áttað sig á að lífið er of stutt til að vera stillt og prúð. vilja láta gott af mér leiða og að vilja ekki koma nálægt þessu. Ég hef hins vegar lofað stuðningsfólki mínu að nafnið mitt verði í pottin- um.“ Leiðtogakrísa hjá Pírötum „Flestir sem voru í hópnum fyrir kosningarnar síðast vilja halda áfram vinnunni en það virðist vera þannig að því meira sem fólk veit um pólitík því minna langar það að leiða lista.“ Hún segir þetta ekki aðeins eiga við um Pírata. „Það er alltaf að koma inn nýr og nýr bjarg- vættur. Hjá Sjálfstæðismönnum var það Halldór Halldórsson síð- ast, góður maður sem hefur sinnt sínu starfi vel, en núna er hann ekki nýi gæinn. Fólkið sem hefur unnið vinnuna fær ekki umboð því það þarf alltaf að finna einhvern nýjan. Við Píratar erum að brenna okkur á þessu líkt og aðrir, að fá inn einhver ný eða þekkt andlit sem eiga að bjarga málunum.“ Eru Píratar í Reykjavík að leita að bjargvætti?* „Já, það er ákveðin leiðtoga- krísa í gangi. Það vildi enginn vera fyrstur til að stíga fram. Þegar ég geri það fæ ég ákveðna skotskífu á mig. Ég ætlaði að sýna sam- fellu, þegar Halldór Auðar sagði að hann ætlaði að hætta þá steig ég upp neðar af listanum. Það var ekki vinsælt í ákveðnum hópi inn- an flokksins.“ Þórlaug segir Pírata veikburða. „Við erum ungur og veikburða flokkur, það er margt fólk sem einfaldlega skortir starfs- reynslu og er þarna því það langar að breyta heiminum. Þeir sem eru komnir sem reynsluna til að geta það, þá langar ekki í starfið.“ Drama og togstreita Þórlaug segir erfitt að halda utan um nýjan stjórnmálaflokk. „Við eigum Birgittu Jónsdóttur mikið að þakka en það tók hana tvær at- rennur að stofna stjórnmálaafl. Við þurfum stöðugt að hugsa hvort við séum að starfa eftir okk- ar grunngildum. Við þurfum að vita hvers vegna við eigum erindi í borgarstjórn. Við erum ekki að fara þangað því við erum jafnaðar- menn, við erum að fara þangað því við erum með ákveðna nálgun.“ Sem dæmi nefnir Þórlaug nálg- un Pírata á jafnrétti kynjanna. „Píratar líta ekki á þetta eins og femínistar almennt, að það sé í gangi stórt samsæri og valdajafn- vægið sé ávallt konum í óhag. Við horfum á valdahlutföllin, sums staðar eru konur sterkar og annars staðar veikar. Við erum núna að stofa  femínistafélag Pírata, það er að valda heilmiklu drama og tog- streitu. Ákveðinn hópur vill stofna þetta félag og það er töluverð and- staða við það meðal annarra hópa innan flokksins. Það hefur ver- ið mjög erfitt, mjög lengi að vera femínisti innan Pírata. Jafnaðarmenn eru enn að ríf- ast um það hvort við höfum efni á að skipta auðnum á meðan Píratar eru að ræða tæknilega  útfærslu  á því hvernig við förum að því, það er til dæmis hugmyndin um borgaralaunin.“ Þórlaug segir erfitt að staðsetja Pírata á  hægri- vinstri  skalanum því á sama tíma og þeir vilja öflugt velferðarsam- félag þá deili þeir sýn frjálshyggj- unnar á ýmsum sviðum, þar á meðal þegar kemur að sjálfsá- kvörðunarrétti einstaklinga.  „Við erum mannapahópur“ Sósíalistar hyggjast bjóða fram í borginni, Þórlaug segir Pírata eiga litla sem enga samleið með þeim. „Við búum alltaf á endan- um í markaðssamfélagi þar sem markaðurinn ræður þrátt fyrir að við séum með verkalýðshreyfingu sem eigi að virka. Við getum ekki stokkað upp samfélagið þannig að það sé einhver nefnd sem ákveði hvers virði hlutirnir eru. Meirihluti fólks myndi aldrei sam- þykkja sósíalískt kerfi, það stríð- ir gegn hugmyndum Pírata um samræðustjórnmál, samfélagið fer blandaða leið því enginn vann, það var bara lýðræðið sem vann.“  Píratar eru í meirihlutasam- starfi í Reykjavík með Samfylk- ingunni, Vinstri grænum og Bjartri framtíð, fyrir síðustu tvær þing- kosningar hefur flokkurinn útilok- að samstarf með Sjálfstæðisflokkn- um. Eru Píratar þá ekki hreinlega vinstri flokkur?*  „Já og nei. Við stöndum mjög nálægt Viðreisn og Sjálfstæðis- flokknum þegar kemur að hlutum á borð við frelsi einstaklingsins, við eigum frjálslyndið sammerkt með þeim. Við eigum að mörgu leyti samleið með vinstri flokk- unum þegar kemur að viðhorfi til valds. Við skipum okkur alltaf í sveit með þeim valdalitlu. Gagn- rýni okkar á markaðshagkerfið snýr einmitt að þessum fasísku til- hneigingum að taka alltaf afstöðu með þeim sterka.“ Hvað áttu við með fasískum til- hneigingum?*  „Það er mikið af þeim í við- skiptalífinu. Það er þannig með manneskjuna að við erum að nota gáfurnar okkar til að svala mjög frumstæðum þörfum. Við erum að fara ótrúlega langar leiðir til þess að ná okkur í maka. Sama á við um mat. Við erum mannapahóp- ur sem er að reyna að eiga fínan bíl og líða vel í fínum fötum. Það er hégómi og sókn í völd sem rekur marga áfram í stjórnmálum. Ég sé marga reyna að búa eitthvað til svo það komist í fjölmiðla og að reyna að hanka einhvern á einhverju.“ Auðvelt að gagnrýna Píratar hafa verið gagnrýndir fyrir framkomu sína, Þórlaug seg- ir hollt fyrir flokkinn að þurfa að taka ábyrgð líkt og í meirihluta- samstarfinu í Reykjavík. „Það er afar auðvelt að vera gagnrýnandi og benda á hvernig aðrir gætu gert betur, það er hægt að gera allt betur. Við Píratar höfum stund- um haldið að eitthvað búi að baki einhverju máli þegar það er í raun bara eitthvert klúður.“ Eru Píratar of fljótir að rísa upp og garga „spilling“?* „Nei, yfirleitt ekki. Það er þó betra að spyrja og fá svarið að allt sé eðlilegt en að spyrja aldrei neins.“ Þórlaug segir áhrif Pírata í borginni hafa farið langt fram úr þeim sex prósentum sem flokk- urinn hlaut í kosningunum, í dag sé nauðsynlegt fyrir flokkinn að fara lengra í áherslum sínum. „Stjórnmálamenn í borginni hafa verið tregir við að hverfaskipta borginni meira, að færa þannig lýðræðið nær fólkinu með því að gera þjónustumiðstöðvar hverfanna að eins konar ráð- húsum. Samtalið fer nú mest fram um umgjörð borg- arinnar og flugvöll í stað þess að tala um innihald og borgarlífið.“ Tíminn er dýrmætur Þrátt fyrir að Þórlaug brenni fyrir stjórnmálum þá á hún erfitt með að gera upp við sig hvort hún hyggist halda áfram eða fara í önnur verk- efni. „Ég hef far- ið alla leið inn á líknardeild. Það að karpa um einskis nýta hluti er ekki eitthvað sem ég vil eyða tím- anum mín- um í. Það er hægt að hafa áhrif með svo mörg- um hætti, til dæmis í gengum verkalýðshreyf- inguna, hagsmunabaráttu eða Ör- yrkjabandalagið, ég þarf ekki að vera kjörinn fulltrúi. Það sem ég vil gera er að halda Pírötum við efnið, vitandi það að ég er að hafa áhrif á samfélagið í heild.“  Það sem Þórlaug hefur núna er frelsi. „Eftir allt sem ég hef geng- ið í gengum þá sé ég núna hversu mikið fólk sóar tímanum sínum. Hafa áhyggjur af einhverju til- gangslausu. Stressa sig yfir ein- hverju. Ekki spá í af hverju það er að gera eitthvað. Hangir á netinu tímunum saman og montar sig. Það áttar sig ekki á því hversu tím- inn er dýrmætur.  Ég ætla að eyða mínum dýr- mæta tíma í að hjálpa öðrum og skapa. Ég nýt þess að búa eitthvað til með þeim kröftum sem ég hef, sauma, skera út, grafa í moldinni, til þess var ég hönnuð sem lífvera. Ég hef orðið  enn- þá  skrítnari en ég var, hispurslausari og dettur ekki í hug að lifa lífinu mínu fyrir einhvern annan.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.