Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Qupperneq 12
12 23. febrúar 2018fréttir U m aldamótin síðustu varð byltingarkennd hreyfing í sjónvarpsefni. Mannlegt eðli var orðið skotspónn- inn og framleiðendur um allan heim sáu sér leik á borði að nýta þetta mögulega form, einfeldn- in væri kannski best og það þyrfti ekkert handrit. Minni kostnaður, meiri gróði. Íslensk sjónvarpsframleiðsla blómstraði í kjölfarið. Allt í einu var komið ódýrt en vinsælt form af áhorfsefni og hver sjónvarpsstöð- in á fætur annarri spratt upp og engin vildi vera eftirbátur hinna. Djúpa laugin, Idol, Bachelor-inn. Eðlislæg hnýsni manneskjunnar gerði það að verkum að allt fékk þetta byr undir báða vængi en hvað svo? 500 vildu sigla með Ástarfleyinu Árið er 2005. Ríflega 500 ungmenni sóttu um þátttöku á Ástafleyinu og framleiðendur ítrekuðu að loka- hópurinn yrði valinn af sálfræði- legri kostgæfni, hvað sem það ná- kvæmlega þýðir. Haukur Valdimar Pálsson var ekki í hópi þeirra ung- menna sem voru valin í lokahóp- inn, enda sótti hann einfaldlega aldrei um. En hvernig æxlaðist það að hann endaði við strendur tyrk- nesku riveríunnar á seglskútu með fjórtán ókunnugum einstaklingum, 25 kössum af Egils Lite og Valdimar Flygenring sem skipstjóra? „Ég var nemi á þessum tíma í Kvikmyndaskólanum, sem var þá á hálfgerðu tilraunastigi, og við nemendurnir vorum sendir í starfsnám hjá kvikmynda- fyrirtækjum,“ segir Haukur. „Ég fór ásamt bekkjarsyst- kinum, Hauki nafna mín- um og Maríu, á vegum framleiðslufyrirtækisins Storm til Tyrklands að að- stoða við Ástarfleyið. Sem nemar vorum við auðvitað ekki á launum og fljótlega tókum við Haukarnir eftir því að stelpurnar sem voru að taka þátt voru farnar að daðra við okkur, jafnvel meira en við þátttakend- urna. Ég hafði heyrt af því í svona þáttum að stund- um hafi stúlkurnar allt í einu meiri áhuga á tökumönnun- um, kannski því þeir fá ekki færi á að gera sig að fíflum eins og þeir sem eru að taka þátt. En við vorum sem sagt settir í það að vera að- stoðartökumenn á meðan María var á hótelinu að sjá um þá kepp- endur sem reknir voru frá borði.“ Áfengi fyrir fjórar milljónir, þús- und smokkar og runkdallurinn Þannig að þið voruð bara í því að taka upp þættina?* „Nei, við vorum settir í að taka upp meira svona aukaefni. Það var mikil bjartsýni í gangi og þetta var akkúrat að detta í hápunkt góðær- isins. Það var gert ráð fyrir að þetta myndi slá í gegn og það þyrfti að hafa aukaefni fyrir DVD-diskinn eða ef þetta yrði kannski selt til er- lendra sjónvarpsstöðva. Það voru miklir peningar settir í þetta og einhvers staðar sá ég að okkur hafi tekist að drekka áfengi fyrir heilar fjórar milljónir, en þetta var líka mikið keyrt á sponsi. Einhverjir 25 kassar af Egils Lite voru teknir með út, en þá var hann nýkominn á mark- að. Svo drakk maður kannski lókal bjórinn Efes mest þar til vél- arnar fóru í gang og þá var það bara beint í Lite bjórinn. Svo vorum við send út með einhverja 1.000 smokka.“ Þúsund smokka fyrir 14 manns í tvær vikur? „Já, eins og ég sagði, það var mikil bjartsýni í gangi,“ svarar Valdimar. „En já, svo var aukaefnið sem við tókum bara not- að í þáttinn. Fyrst um sinn gistum við hinn Hauk- ur í annarri skútu sem fylgdi fast á hæla Fleysins. Við kölluðum hann Runkdallinn. Við drukkum samt stíft með þátttakendunum og fljótlega var félagi minn kom- inn á séns með einni af stúlkun- um. Hún náði svo einhvern veg- inn að fá hann í þáttinn og yfir á sjálft Ástarfleyið. Ég húkti einn áfram á Runkdallinum í nokkra daga til viðbótar en það átti eftir að breytast.“ Leikreglurnar voru nokkurn veginn á þá leið að fólk ætti að reyna að finna sér förunaut, annars hefði það á hættu að vera kosið burt og sent heim. „Ég fékk mitt helsta kúltúr- sjokk þegar ég vaknaði í rúmi um borð í fleyinu en ekki í Runkdall- inum, minnislaus uppi í rúmi með tveimur þátttakendum og horfði í linsu eftirlitsmyndavélar sem ég Haukur leysir frá skjóðunni um Ástarfleyið n Þetta gerðist á bak við tjöldin n Áfengi fyrir fjórar milljónir og þúsund smokkar Alræmdasti þáttur Íslandssögunnar: Steingerður Sonja Þórisdóttir ritstjorn@dv.is Ástarfleyið mun leggja úr höfn á n æstu dögum og bíða eflaust margir eftir því að f á að fylgjast með fjórtán ástleitnum ungmennum þreifa fyrir sér við strendur Marmaris. Alls sóttu fimmhund- ruð manns um að taka þátt í Ástarfl eyinu og því greinilega margir sem gætu hugsað s ér að freista þess að finna ástina fyrir augum sjón varpsáhorf- enda. Stjórnendur þáttarins hafa nú tekið viðtöl við fjörutíu manns og fékk Fréttabl aðið leyfi til að birta myndir af þessum viðtalsefn um. Fjórtán aðilar, sjö stelpur og sjö strákar, mun u verða vald- ir til að eyða tólf dögum um borð í Á starfleyinu. Greinilegt er á umsækjendum hversu fjölmenn- ingarlegt samfélag Ísland er orðið. Í h ópi umsækj- enda mátti finna fólk frá átta mismun andi löndum en þeir sem eru af erlendu bergi bro tnir tala allir íslensku sem aðaltungumál. Hópurinn er afar fjöl- breyttur og í honum má finna fólk m eð háskóla- menntun, verkafólk, nema, bankasta rfsmenn og þannig mætti lengi telja. Ástarkapteinninn Valdimar Flygen ring mun sjá um að allt fari vel fram og stjór nar leikjum og stefnumótum. Hingað til hafa Ísle ndingar látið nægja að drekka sig fulla á börum og slefa í eyrað á álitlegum kosti. Forvitnilegt verðu r því að sjá hvort íslensku víkingarnir breyti um aðferð þeg- ar þeir sigla fyrir ströndum Marmar is eða hvort úr verður alls herjar sukk. Munu al lar stelpurn- ar falla fyrir sama stráknum? Eru kannski ein- hverjir í hópnum of skyldir til að mega verða kærustupar? Verða særindi, slagsm ál og nöldur daglegt líf eða mun eintóm róman tík einkenna Ástarfleyið? Það verður forvitnilegt að sjá þegar skipið leggur úr höfn. Finna þau ástina við strendur Tyrklands? 64 6. október 2005 FIMMTUDAGUR fiú getur fimmfaldað tíðni auglýsingann a þinna með samlesnum auglýsingum sem birtast á Bylgjunni, Talstöðinni, Létt 96,7, Fréttablaðinu og á visir.is. Þegar þú hringir og pantar auglýsingu líða innan við tvær klukkustundir þar til hún er komin í loftið. Daginn eftir birtist hún svo í smáauglýs ingum í Fréttablaðinu og á visir.is. Margföld áhrif með samlesnum auglýsingum! Einfalt, fljótlegt og gríðarlega áhrifaríkt! Hringdu í síma 550 5000 og margfaldaðu tíðni auglýsinganna þinna Eitt símtal 550 5000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.