Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Side 16
16 23. febrúar 2018fréttir
n Fyrrverandi fíklar deila reynslusögum sínum n „Ég var komin í andlegt þrot“
U
m sumarið missti ég
stelpurnar frá mér.
Stelpurnar voru teknar
með lögregluvaldi. Í kjöl-
farið reyndi ég að fremja sjálfs-
morð.“
Þetta segir Guðrún Ósk Þóru-
dóttir, ung móðir sem hefur loks
haft betur eftir erfiða baráttu
við áfengi og fíkniefni. Í upphafi
þessa árs var ljóst að loka þyrfti
göngudeild SÁÁ á Akureyri sök-
um niðurskurðar. Göngudeildin á
Akureyri hefur verið starfrækt frá
árinu 1993 og hefur hún veitt ráð-
gjöf og greiningu fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga á Norðurlandi.
Mikil óánægja er ríkjandi meðal
fólks vegna fyrirhugaðrar lokun-
ar og stofnaður hefur verið undir-
skriftalisti sem gengur nú manna á
milli í þeirri von að hætt verði við.
Mikil aukning hefur orðið á að-
sókn í meðferðarheimili síðast-
liðin ár og eru biðlistarnir langir.
DV ræddi við fjóra fyrrverandi
áfengis- og vímuefnasjúklinga
sem allir eiga það sameiginlegt
að hafa nýtt sér þjónustu með-
ferðarheimila hér á landi til þess
að verða edrú.
Blaðamaður ræddi við hvert
og eitt þeirra um fyrri tíð og fékk
góða innsýn í það hvernig líf fíkils
í neyslu er.
Byrjaði í neyslu þrettán ára gömul
Guðrún Ósk Þórudóttir er fædd
árið 1991 og ólst upp í Keflavík.
Hún á í dag tvær ungar dætur og
er um þessar mundir í endurhæf-
ingu.
„Ég byrjaði í neyslu þrettán
ára gömul. Ég var í raun undir
áhrifum allt þar til ég varð ólétt
að eldri stelpunni minni, daginn
áður en ég varð átján ára gömul,“
segir Guðrún, sem hefur upplifað
hryllilega hluti á stuttri lífsleið.
„Það var búið að reyna að
senda mig á Stuðla en ég grenjaði
mig þaðan út eftir nokkra daga.
Barnavernd ákvað þá að senda
mig í framhaldsskólann á Laug-
um, sem hjálpaði ekkert. Þar var
meira djamm, meira frelsi og engir
forráðamenn.“
Guðrún olli fjölskyldu sinni
miklum áhyggjum en hún lét sig
reglulega hverfa. Þegar Guðrún var
fjórtán ára gömul hóf hún svo að
drekka áfengi og fór strax illa með
vín. Áfengið átti svo eftir að leiða
hana á aðrar og harðari slóðir.
E-pillan meira
spennandi en áfengi
„Mér fannst e-pillan alltaf miklu
meira spennandi en áfengi, mér
fannst fulla fólkið alltaf bara vera
ógeðslega asnalegt,“ segir Guðrún.
„Eftir að ég byrjaði að drekka fór
ég að missa æskuvinkonurnar og
í staðinn kom eldra fólk sem var í
harðari neyslu.“
Eftir fimm ára neyslu sem hafði
ágerst hratt með tímanum upp-
götvaði Guðrún að hún bar barn
undir belti. Þegar barnið kom í
heiminn árið 2010 tók annar öldu-
dalur við en Guðrún var greind
með mikið fæðingarþunglyndi.
„Ég hætti í öllum fíkniefn-
um á meðan ég var ólétt og ætl-
aði mér alls ekki að halda áfram
eftir fæðinguna. Það gekk ekki eft-
ir. Mamma sá um stelpuna mína og
ég var úti að drekka og sýndi henni
engan áhuga. Ári síðar kynntist ég
seinni barnsföður mínum og vorum
við á tímabili eingöngu að drekka
saman en ekki að neyta fíkniefna.
Mamma var alltaf að passa og ég
gerði allt til þess að deyfa mig. Ég
átti ömurlega æsku, kem úr alkó-
hólísku umhverfi og fékk það í arf.“
Aftur ólétt
Guðrún hafði verið í sambandi
í fjóra mánuði þegar hún varð á
ný ólétt. Gekk meðgangan betur í
þetta skiptið.
„Meðgangan gekk rosalega vel
og líka eftir að barnið kom í heim-
inn. Hins vegar var barnsfaðir
minn alltaf í neyslu svo við hætt-
um saman. Mér fannst ég tengjast
eldri stelpunni minni miklu bet-
ur og ég gat haft þá yngri á brjósti.
Ég lét alla neyslu eiga sig í um þrjá
mánuði.“
Þetta var árið 2012. Guðrún var
á leið til útlanda stuttu síðar og var
Benidorm áfangastaðurinn. Þar
tók Guðrún örlagaríka ákvörðun.
Hún taldi að óhætt væri að drekka
áfengi. En því hélt hún leyndu.
„Ég taldi mér trú um að ég gæti
vel drukkið, en ég gæti ekki neytt
fíkniefna.“
Dæturnar teknar
með lögregluvaldi
Árið 2013 var Guðrún djúpt sökk-
in í neyslu á ný. Hún hóf samband
með barnsföður sínum og neyttu
þau fíkniefna saman. Það átti eftir
að hafa örlagaríkar afleiðingar.
„Um sumarið missti ég
stelpurnar frá mér,“ segir Guðrún.
„Stelpurnar voru teknar með lög-
regluvaldi. Í kjölfarið reyndi ég að
fremja sjálfsmorð.“
Guðrún var hætt komin og var
á gjörgæslu í á annan sólarhring.
Segir Guðrún að henni hafi verið
vísað út og þurft á frekari aðstoð
að halda en ekki fengið.
„Það endaði auðvitað á því að
ég fór að drekka á ný og harðar
enn áður. Í rúmlega eitt og hálft
ár drakk ég rosalega illa. Ég fékk
íbúð frá félagsþjónustunni og ég
gjörsamlega rústaði henni. Þarna
fékk ég stelpurnar aftur til mín og
var með þær hjá mér í um eitt og
hálft ár. Ég missti þær svo aftur
árið 2015.“
Að horfa á eftir börnunum var
botninn. Við tók tímabil sem hún
lýsir sem óhugnanlegu. Guðrún
varð götustelpa og börnin sá hún
ekki í sjö mánuði.
„Ég gafst upp, ég var komin í
andlegt þrot,“ segir Guðrún sem
óskaði eftir að komast í áfengis-
meðferð á Vogi. „Ég var enn í sam-
bandi með barnsföður mínum
og við ákváðum að fara í meðferð
saman. Við náðum að vera edrú í
um það bil sex mánuði.“
Guðrún bætir við að þau hafi
ekki farið eftir því sem læknarnir
á Vogi höfðu ráðlagt þeim og
óheiðarleikinn var allsráðandi.
„Við fórum til Spánar með fjöl-
skyldunni og stelpurnar með okk-
ur. Þetta átti að vera frábær fjöl-
skylduferð fyrir börnin okkar en
við duttum í það.“
Aftur tók við feluleikur og þar
sem þau voru í eigin húsnæði
komst neyslan ekki upp. Barna-
vernd var reglulega í sambandi en
þau sögðu starfsfólkinu þar ítrek-
að ósatt.
Ætlaði að sprauta sig með of
stórum skammti
Parið var í neyslu þar til í janúar
2017. Þá brotnaði Guðrún saman
og opnaði sig um feluleikinn og
neysluna sem hafði staðið alltof
lengi yfir.
„Ég fór að grenja og öskra á
barnaverndarfulltrúann minn. Ég
sagði að ég gæti ekki meira. Ég var
að öskra á hjálp. Ég gekk út af þess-
um fundi, börnin voru tekin og
sett til tengdaforeldranna. Við tók
rosalegt djamm í einn og hálfan
mánuð. Ég man ekkert eftir þess-
um tíma. Á endanum langaði mig
til þess að enda þetta. Ég ætlaði
að læra að sprauta mig og sprauta
mig með of stórum skammti, því
mér leið svo illa.“
Það var svo dag einn sem
amma Guðrúnar kom í heimsókn.
Hún táraðist þegar hún sá hvernig
komið var fyrir ömmubarninu. Þá
áttaði Guðrún sig á því hvað hún
var að gera sjálfri sér og börnun-
um.
„Amma kom þarna með tárin
í augunum. Það var erfitt að sjá
ömmu sína særða. Ég gat ekki horft
upp á það að sjá ömmu mína gráta
Börnin tekin með
lögregluvaldi
„Ég bjó á götunni
og ég heyrði ekki
í stelpunum mínum í sjö
mánuði.
Guðrún Ósk „Ég byrjaði í
neyslu þrettán ára gömul"
MynD EinAr rAGnAr
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is