Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Side 33
Allt fyrir bílinn 23. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Bíl-Pro er löggilt verkstæði á sviði bílaréttinga og bíla-málunar og veitir bíleigend- um sem lenda í árekstri ákaflega faglega, þægilega og heildstæða þjónustu. Þeir rétta og sprauta allar tegundir bíla. Bíl-Pro er með samstarfssamninga við öll tryggingafélögin og notast við Cabas-tjónamatskerfi sem er tengt miðlægum gagnagrunni allra tryggingafélaga. Þeir vinna ávallt eftir viðgerðaleiðbeiningum framleiðanda til þess að öku- tækið sem lent hefur í tjóni verði jafngott og það var fyrir árekstur. Ferlið hefst með því að bíleig- andi hefur samband í síma 555- 1260 eða á vefsíðunni bilpro. is. Síðan kemur hann með bílinn á staðinn og tjónið er metið og gefinn tími fyrir viðgerð. Tjóna- matið gengur hratt og örugglega fyrir sig og ekki þarf að bóka tíma í það. Bíl-Pro er staðsett í al- faraleið, að Viðarhöfða 6, 110 Reykja- vík. Bíl-Pro útvegar bíleigandanum bílaleigubíl til afnota á meðan viðgerð stendur yfir ef hann kýs það. Þar af leiðandi þarftu eingöngu að koma til Bíl-Pro og sjá þeir um allt ferlið frá upphafi til enda. Viðgerðir felast í bílasprautun, réttingum, plastvið- gerðum, framrúðuskiptum og fleiru – allt eftir eðli tjónsins. Viðgerðartími er í flestum tilvikum 3–5 virkir dagar en getur lengst ef tjónið er mikið. Í Bíl-Pro eru starfsmenn fjórir talsins í fullu starfi á verkstæðinu og búa yfir mikilli þekkingu og áratuga reynslu. Annar eigandinn, Eiður Már Guðbergsson, er með meistarabréf í bæði bifreiðasmíði og bílamálun, hinn eigandinn, Þröstur Jarl Sveinsson, er meistari í bifreiðasmíði. Starfsmaður á verkstæðinu er með sveinsbréf í bílamálun og annar starfsmaður er nemi í bifreiðasmíði. Auk þess sækja þeir allir endurmenntunarnámskeið reglulega hérlendis sem erlendis, þannig að símenntun er hluti af starf- inu. Fyrir utan fagþekkingu og fyrsta flokks vinnubrögð not- ast Bíl-Pro eingöngu við besta mögulega búnað og efni. Við bílasprautun er notaður fullkom- inn sprautuklefi og umhverfis- vænt bílalakk frá þýska gæða- merkinu Spies-Hecker sem er með því fremsta á markaðinum í dag. Einnig er notast við sérstakan skanna sem finnur rétta litinn á bílinn. Til réttinga er notast við réttingabekk frá Celette sem er með tölvumælingu. Enn fremur notast fagmennirnir hjá Bíl-Pro við bestu suðugræjurnar á markaðinum í dag, punktsuðuvél- ar, álsuðuvélar og koparsuðuvélar. Fólk vill helst fá bílinn sinn betri til baka en hann var fyrir tjónið og þeir fjórmenningar tryggja að svo verði. Fagmennska í fyrirrúmi og áhersla á fljótlega og góða þjónustu. Sem fyrr segir er Bíl-Pro til húsa að Viðarhöfða 6. Opið er virka daga frá kl. 8 til 17. Nánari upplýsingar má nálgast á bilpro.is og á Facebook- síðu fyrirtækisins. BÍl-PRO: BÍlAMáluN OG RéTTiNGAR Vel tekið á móti manni og fyrsta flokks þjónusta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.