Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Qupperneq 59

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2018, Qupperneq 59
lífsstíll - bleikt 5923. febrúar 2018 Hágrét yfir Nágrönnum og brotnaði saman í lok fréttatímans: „Fékk æði fyrir því að borða Morgun- blaðið. Ég elskaði tjöruhreinsilykt og var alltaf með tusku hjá mér með tjöruhreinsi í svo ég gæti sniffað. Kærasti minn faldi svo tjöruhreinsibrúsann svo ég myndi hætta þessu en ég grét svo mikið að hann lét mig fá brúsann aftur. Ég tala nú ekki um Scrubstone-efnið, ég var alltaf næstum því farin að éta það. Karlinn bauðst til þess að hjálpa mér með þvottinn þegar ég var ólétt að yngra barninu. Hann braut handklæðin ekki saman eins og ég vildi að þau ættu að vera þannig að ég fór að grenja og var miður mín. Þegar ég var ólétt að elsta barninu mínu þá hótaði ég barnsföð-ur mínum að ég myndi drepa hann út af því að hann kom með volgt kók handa mér. Þetta hefði ekki verið eins slæmt ef þetta hefði ekki verið á miðju Ingólfstorgi á 17. júní fyrir framan fjölda fólks. Það héldu allir að hann hefði gert mér eitthvað en þá stóð ég bara grenj- andi og sagðist bara vilja ískalt kók. „Ég og vinkona mín vorum óléttar á sama tíma. Við fengum báðar æði fyrir tannkremi og við sátum fyrir framan sjónvarpið hvor með sína túbuna. Eitt skipti þegar ég var ólétt fékk ég æði fyrir því að borða Morgunblaðið. Ég próf- aði Fréttablaðið en það var ekki eins gott svo ég gerðist áskrifandi að Mogganum í þrjá mánuði. Þegar ég var ólétt vann ég í Smáralindinni og við barnsfaðir minn vorum bara á einum bíl. Ég keyrði á bílnum í vinnuna um morguninn og hringdi svo í mömmu og bað hana um að skutla mér heim eftir vinnu. Svo þegar barnsfaðir minn kom heim ætlaði hann út í búð og spurði mig hvar ég hafði lagt bílnum. Ég kannaðist ekkert við það þar til ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt honum í Smára- lindinni. Ég var alveg lyktarsjúk á síðustu meðgöngu. Ég keyrði í gegnum Hvalfjarðargöngin með rúðuna niðri því mér fannst mengunarlyktin svo góð, ég vökvaði blauta mold til þess að finna lyktina af henni, elskaði ísskápslyktina, og þvoði oft hreinan þvott aftur af því að mér fannst lyktin af blautum þvotti svo góð. Eitt skipti þá týndi maðurinn minn mér í Hag- kaupum og fann mig þar sniffandi af öllum gúmmístígvélunum. Svo fannst mér lyktin af sementi svo unaðsleg að ég var nokkrum sinnum beðin um að yfirgefa byggingarsvæðið hjá Deloitte-turninum í Kópavogi, ég barðist við löngunina í að kaupa mér sement og borða það! Ég missti vatnið klukkan 2.20, kallinn minn var í vinnunni og kom og sótti mig til þess að keyra mig á fæðingardeildina í Keflavík. Ég var með mikla samdrætti og var másandi og hvásandi í bílnum. Þegar við nálguðumst N1 í Hafnarfirði æpti ég á hann að ég YRÐI að fá Tívolí Lurk svo hann fór þang- að inn og keypti handa mér tvo Lurka. Við vorum svo komin inn á sjúkrahús klukkan 4.20 og drengurinn fæddist 6.20. Þetta var besti ís sem ég hef fengið og kallinn minn var sko alveg búin að læra að það er best að hlýða óléttri konu. Jafnvel á síðustu metrunum! Þegar ég var ólétt síðast, fyrir næstum því sex árum, lang- aði mig svo hrikalega mikið í Subway-bát að ég gat ekki hugs- að um neitt annað. Við kær- asti minn sátum úti í bíl og ég bað hann um að keyra mig út á Skaga en við búum í Borgarnesi. Hann nennti því alls ekki og fór inn, en ég sat í frekjukasti dauð- ans, hágrenjandi úti í bíl, hringj- andi í hann og sendandi skila- boð því ég átti svo mikið bágt. Loksins gafst hann upp og keyrði mig út á Skaga til þess að kaupa Subway. Um daginn komumst við að því að ég er aftur ólétt og hann tilkynnti mér strax að hann ætlaði sko EKKI með mig aft- ur út á Skaga fyrir einn Subway- bát, sama hversu mikið ég myndi suða. Ég átti við mikið minnisleysi að stríða þegar ég var ólétt. Í eitt skipti ætlaði ég að stökkva út í búð en fattaði að ég hafði gleymt veskinu mínu þegar ég var lögð af stað. Ég keyrði því til baka og fór alla leið upp á þriðju hæð. Fékk mér vatnsglas og fór svo aftur út í bíl. Keyrði út götuna og áttaði mig þá á því að ég hafði aftur gleymt veskinu. Ég keyrði því aftur til baka og gekk aftur upp á þriðju hæð, fór að pissa og aftur út. Þegar ég áttaði mig á því að ég hafði gleymt veskinu í þriðja sinn þá fór ég til baka, beint upp, sótti veskið og keyrði svo grenjandi út í búð og mundi svo ekk- ert hvað það var sem ég ætlaði að kaupa. Ég fékk mikla áráttu fyrir því að dýfa banana ofan í kók og sjúga svo kókið af og dýfa aftur þegar ég var ólétt að mínu fyrsta barni. Mér fannst þetta ekkert athugavert fyrr en fólk fór að nefna það við mig að það væri nú hálf furðulegt að ég væri sjúgandi banana hvar og hvenær sem er. Ég var að horfa á sjónvarps-þáttinn Nágranna þegar einhverjir unglingar í þáttunum lentu í bílslysi. Það kom lækn- ir á staðinn og reyndi að bjarga þeim úr bílnum en skar sig á hendinni. Ég fór að hágrenja og á sama tíma hringdi mamma í mig og spurði mig hvað væri eiginlega í gangi. Ég útskýrði það fyrir henni og hún fékk áfall og fór að spyrja mig nánar út í það hvaða nágrannar mín- ir þetta hafi verið. Þá svaraði ég henni, enn þá grenjandi: „Neii- ii, í sjónvarpinu“. Og þá sprakk hún úr hlátri. Ég grét alltaf þegar ég sá lokin á fréttatímanum. Þá meina ég þegar fréttaþulurinn sagði: „Við ætlum að ljúka þessum frétta- tíma á svipmyndum frá Tjörninni í Reykjavík.“ Flestar mæður búa yfir skemmtilegum sögum frá þeim tíma er hormónin héldu um taumana og stjórnuðu sál- arlífinu sem endaði stundum með ósköpum. Flestar konur sem gengið hafa með barn undir belti kannast við þá óstjórnlegu hormónafram- leiðslu sem líkaminn setur af stað nánast um leið og pissað er á próf- ið. Hormónin gera það að verk- um að konan verður virkilega til- finninganæm á meðgöngunni og stendur það oft yfir í nokkra mánuði eftir fæðinguna. Grátið við minnsta tilefni Hormónin gera það að verkum að hvað sem er getur fengið konur til þess að fella tár. Hér er að finna ótal frásagnir frá íslenskum mæðrum sem deila fyndnum og vandræða- legum augnablikum frá því að þær gengu með barn undir belti. Íslenskar konur opna sig um meðgönguna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.