Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 8
8 23. mars 2018fréttir „Hann kýldi mig í bakið og síðan í magann“ É g var gjörsamlega niðurbrot- in eftir árásina og hágrét. Hann kýldi mig í bakið og síðan í magann,“ segir Lilja Ragnhildur Oddsdóttir, sem full- yrðir að hún hafi orðið fyrir árás af hálfu bílstjóra Ferðaþjónustu fatl- aðra síðastliðinn þriðjudag. Lilja fékk þegar í stað áverkavottorð vegna árásarinnar og hyggst kæra hana til lögreglu. Bílstjórinn hefur verið settur í ótímabundið leyfi á meðan málið er rannsakað en það er litið mjög alvarlegum augum hjá ferðaþjónustunni. Strætó bs. sér um þjónustuna en verktakar sinna akstrinum. Lilja er með klofinn hrygg og hefur þurft að notast við hjóla- stól alla sína ævi. Hún er því háð Ferðaþjónustu fatlaðra til þess að komast á milli staða. Að hennar sögn er þjónustan yfirleitt mjög góð og ágætis kunningsskapur hafi myndast milli hennar og sumra bílstjórana. Þann sem réðst á hana á miðvikudaginn hafði hún hins vegar aldrei séð áður. Hann sótti Lilju að heimili hennar í Graf- arholti og þannig vildi til að förinni var heitið að Landspítalanum þar sem Lilja þurfti að leita sér læknis- aðstoðar. „Ég þekkti hann ekki, en var ekkert að spá í það,“ segir Lilja. Hún segir að maðurinn hafi verið þungur í skapi og að lokum misst stjórn á sér þegar Lilja benti hon- um á að hjólastóll hennar væri ekki fastur. „Ég á ekki að vera laus í bílnum. Hann keyrði í gegnum hringtorg og ég fann að stólinn rann til. Ég benti honum á það og þá svaraði hann með þjósti að ég ætti þá ekki að vera að ýta á takk- ann til að losa stólinn,“ segir Lilja. Hún segir blaðamanni að sá takki sé á gólfi bílsins og það sé ómögu- legt fyrir hana að ná til hans. Í kjölfarið hafi maðurinn hringt á stjórnstöðina og tilkynnt að hann ætlaði aldrei að keyra með Lilju aftur. „Hann sagði að ég fiktaði í öllum tökkum og losaði mig,“ segir Lilja. Hún segist hafa brotn- n Lilja segir bílstjóra Ferðaþjónustu fatlaðra hafa ráðist á sig n Hyggst kæra málið til lögreglu Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.