Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 8
8 23. mars 2018fréttir
„Hann kýldi
mig í bakið
og síðan í
magann“
É
g var gjörsamlega niðurbrot-
in eftir árásina og hágrét.
Hann kýldi mig í bakið og
síðan í magann,“ segir Lilja
Ragnhildur Oddsdóttir, sem full-
yrðir að hún hafi orðið fyrir árás af
hálfu bílstjóra Ferðaþjónustu fatl-
aðra síðastliðinn þriðjudag. Lilja
fékk þegar í stað áverkavottorð
vegna árásarinnar og hyggst kæra
hana til lögreglu. Bílstjórinn hefur
verið settur í ótímabundið leyfi á
meðan málið er rannsakað en það
er litið mjög alvarlegum augum
hjá ferðaþjónustunni. Strætó bs.
sér um þjónustuna en verktakar
sinna akstrinum.
Lilja er með klofinn hrygg og
hefur þurft að notast við hjóla-
stól alla sína ævi. Hún er því háð
Ferðaþjónustu fatlaðra til þess að
komast á milli staða. Að hennar
sögn er þjónustan yfirleitt mjög
góð og ágætis kunningsskapur hafi
myndast milli hennar og sumra
bílstjórana. Þann sem réðst á hana
á miðvikudaginn hafði hún hins
vegar aldrei séð áður. Hann sótti
Lilju að heimili hennar í Graf-
arholti og þannig vildi til að förinni
var heitið að Landspítalanum þar
sem Lilja þurfti að leita sér læknis-
aðstoðar.
„Ég þekkti hann ekki, en var
ekkert að spá í það,“ segir Lilja.
Hún segir að maðurinn hafi verið
þungur í skapi og að lokum misst
stjórn á sér þegar Lilja benti hon-
um á að hjólastóll hennar væri
ekki fastur. „Ég á ekki að vera laus
í bílnum. Hann keyrði í gegnum
hringtorg og ég fann að stólinn
rann til. Ég benti honum á það og
þá svaraði hann með þjósti að ég
ætti þá ekki að vera að ýta á takk-
ann til að losa stólinn,“ segir Lilja.
Hún segir blaðamanni að sá takki
sé á gólfi bílsins og það sé ómögu-
legt fyrir hana að ná til hans.
Í kjölfarið hafi maðurinn hringt
á stjórnstöðina og tilkynnt að hann
ætlaði aldrei að keyra með Lilju
aftur. „Hann sagði að ég fiktaði
í öllum tökkum og losaði mig,“
segir Lilja. Hún segist hafa brotn-
n Lilja segir bílstjóra Ferðaþjónustu fatlaðra hafa
ráðist á sig n Hyggst kæra málið til lögreglu
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is