Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 9
23. mars 2018 fréttir 9
að niður við að heyra bílstjórann
tala með þessum hætti um hana.
„Hann stoppaði svo skömmu síð-
ar til að laga stólinn betur. Þá stóð
hann fyrir aftan mig og sló mig
í bakið og síðan í magann með
krepptum hnefa,“ segir Lilja. Hún
segist hafa hágrátið meðan á of-
beldinu stóð og eftir að bílstjór-
inn hafi skilað henni af sér við
Landspítalann í Fossvogi.
„Ég var að fara á sáramiðstöðina
og þaðan fór ég beint á slysavarð-
stofuna til þess að fá áverkavott-
orð,“ segir Lilja. Síðan hafi hún til-
kynnt atvikið til Ferðaþjónustu
fatlaðra. Þar var málið tekið föst-
um tökum.
„Við lítum málið mjög alvarleg-
um augum. Bílstjórinn var þegar
settur í ótímabundið leyfi á meðan
málið er rannsakað. Við erum að
bíða eftir frekari gögnum, meðal
annars áverkavottorði, og munum
síðan taka ákvörðun um næstu
skref þegar allar upplýsingar liggja
fyrir,“ segir Erlendur Pálsson,
sviðsstjóri farþegaþjónustu hjá
Strætó bs. Erlendur segir að málið
sé litið alvarlegum augum hjá fyr-
irtækinu og að starfsfólk sé miður
sín vegna þess.
Talsvert hefur gengið á hjá
ferðaþjónustunni það sem af er
þessu ári. Í lok febrúar komu upp
tvö alvarleg atvik þegar fatlaðir
einstaklingar lentu í hremming-
um hjá ferðaþjónustunni. Þann 23.
febrúar síðastliðinn var stúlku með
þroskahömlun ekið á rangt heimil-
isfang og hún skilin þar eftir. Móðir
stúlkunnar var mjög ósátt við sam-
skiptaleysi ferðaþjónustunnar við
foreldra og í kjölfarið stigu fram
fleiri foreldrar fatlaðra barna og
sögðu svipaðar sögur.
Fimm dögum síðar greindi
Fréttablaðið frá því að mikið fötluð
kona hefði gleymst í bíl ferðaþjón-
ustunnar þegar átti að skutla henni
til vinnu. Bílstjórinn mun hafa far-
ið heim í kaffipásu þegar uppgöt-
vaðist að konan var ein og yfirgef-
in úti í bílnum. Það var sérstaklega
alvarlegt því konan er mjög floga-
veik og er af þeim sökum aldrei
skilin eftir ein og eftirlitslaus í
vinnunni.
Þessi röð atvika rifjar upp alvar-
legt atvik sem kom upp í febrú-
ar 2015 þegar 18 ára stúlka, sem
lýst hafði verið eftir, fannst í bíl við
heimili bílstjórans um kvöld. Þá
hafði hún mátt dúsa þar í nokkrar
klukkustundir. Það atvik vakti
mjög hörð viðbrögð og var í kjöl-
farið var skipuð neyðarstjórn yfir
ferðaþjónustu sem skilaði skýrslu
um málið í mars 2015. n
Lilja Ragnhildur
Segir að bílstjóri
Ferðaþjónustu
fatlaðra hafi beitt
hana ofbeldi. „Bílstjórinn var
þegar settur í
ótímabundið leyfi á
meðan málið er
rannsakað