Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 10
10 23. mars 2018fréttir
S
amtök um líkamsvirðingu
hafa sett varnagla við fram-
boð Valgerðar Árnadóttur
sem gefur kost á sér á lista
Pírata í borgarstjórnarkosningun-
um í vor. Ástæðan er pistill sem
Valgerður skrifaði á vefinn Pjatt-
rófur í ágústmánuði árið 2012
og bar titilinn „Pepsi Max fitu-
hlunkar“. Tara Margrét Vilhjálms-
dóttir, formaður samtakanna, seg-
ir pistilinn „ljótan og rætinn“ en
Valgerður segist alfarið hafa skipt
um skoðun síðan þá.
Skömmu eftir að pistillinn birt-
ist var titlinum breytt í „Pepsi Max
stereótýpurnar, ó þú feita Ísland“.
Síðan var pistlinum eytt af síð-
unni vegna sterkra neikvæðra við-
bragða lesenda. Í pistlinum kom
fram að Íslendingar væru önnur
feitasta þjóð veraldar og helsta
heilsufarsvandamálið væri offita.
„Mjög algeng sjón er að sjá fólk
með greinilega offitu með ham-
borgara í annarri og Pepsi Max í
hinni!“
Enn fremur: „Það verður allt
brjálað ef maður minnist á að fólk
sé feitt og það sé óeðlilegt. Með-
virknin með feitu fólki er slík að
þegar minnst er á að þetta byrj-
ar alltaf einhver furðuleg um-
ræða um að það geti ekki allar
konur litið út eins og fyrirsætur
og karlmenn eins og Brad Pitt og
að staðalímyndir okkar séu „fokkt
opp“ vegna þess að við lékum okk-
ur að Barbie og He-man í æsku …
blebleble.“
Eins og að vera kýld í magann
Tara segir það mikilvægt að fram-
bjóðandinn hreinsi loftið vegna
pistilsins, það sé bæði mikilvægt
fyrir hana sjálfa og kjósendur.
„Okkur finnst þetta í ósamræmi við
mannréttindastefnu Reykjavíkur-
borgar sem er ein sú framúrstefnu-
legasta í vestrænum löndum.“
Í sjötta kafla mannréttindastefn-
unnar eru ítarlegar greinar um
að óheimilt sé að mismuna fólki
vegna holdafars, útlits og líkams-
gerðar. Í slíkum fordómum og mis-
munun felist félagslegt óréttlæti
sem beri að vinna gegn. Sérstak-
lega verði að taka á þessu í skólum,
frístundaheimilum og tómstunda-
og menningarstarfi borgarinnar.
Samtök um líkamsvirðingu
voru stofnuð nokkrum mánuðum
áður en pistillinn birtist. Tara seg-
ir það hafa verið áfall að sjá hann.
„Þetta var eins og ég hafi verið kýld
í magann. Á þessum tíma var þessi
pistill sá fitufordómafyllsti sem við
höfðum séð. Við höfum séð verri
hluti síðan en af því að þetta var
svo alvarlegt nefndi ég masters-
ritgerðina mína eftir pistlinum.“
Ritgerð Töru heitir einmitt: Pepsi
Max fituhlunkar: Samfélagsleg
greining á fitufælni og afleiðing-
um hennar.
„Þetta er svo afgerandi tilfelli.
Hún var að nota þarna röksemdafær-
sluna um að fordómar og smánun
leiði til bætts heilsufars. En þetta hef-
ur algjörlega öfug áhrif. Þetta leiðir til
skammar og minnkar líkurnar á að
fólk hreyfir sig,“ segir Tara.
Höfuðlausar fitubollur
Ein myndin sem birtist í greininni
var af tveimur konum í yfirvigt að
borða ís en höfuðin sjást ekki. Tara
segir þetta aðferð sem nefndist
„Headless fatties“ (höfuð lausar
fitubollur) og sé tilraun til af-
mennskunar feitra.
„Þegar fjölmiðlar birta fréttir af
offitufaraldri eða einhverju í þeim
dúr þá er greinilegt að myndir eru
valdar þar sem búið er að klippa
höfuðin af og fókusinn er á mag-
ann. Oft eru myndirnar af fólk-
inu að borða. Þessu myndefni
er ætlað að valda viðbjóði hjá
lesendum. Rannsóknir sýna að
þegar lesandinn les frétt með
slíku myndefni verða áhrifin nei-
kvæðari en þegar sams konar frétt
er með hlutlausari mynd.“
Tara telur að rótin að fitufor-
dómum sé tvíþætt. Annars vegar
að offita sé sjúkdómsvædd sem
eigi ekki við jafn mikil rök að styðj-
ast og flestir halda. Hins vegar að
staðalmyndir séu gerðar af feitu
fólki og börnum. „Þegar við sjáum
feita manneskju lesum við út úr
holdafarinu að hún sé löt, gráðug,
skorti sjálfsaga og heimsk.“
Hún segir jafnframt að ástandið
í dag sé mun betra en það var árið
2012, þegar pistillinn var skrif-
aður. Ef pistillinn væri skrifaður í
dag fengi hann mun neikvæðari
umfjöllun en hann gerði á sínum
tíma. Fólk sé orðið meðvitaðra um
þessi málefni.
„Mér finnst málflutning-
ur Valgerðar fyrir Pírata
skynsamlegur og hún er
að berjast fyrir góðum
málefnum þannig að
ég trúi ekki öðru en
að hún hafi endur-
skoðað þessa afstöðu sína. En það
er mikilvægt að við sem göngum til
borgarstjórnarkosninga fáum það á
hreint, því ef hún hefur ekki breytt
skoðun sinni þá mun hún ekki fá
mitt atkvæði og margra fleiri.“
Illa ígrundaður pistill og alls
ekki sama sinnis í dag
Valgerður, sem er fram-
kvæmdastjóri Samtaka græn-
metisæta, segir það ekki að
ástæðulausu að pistillinn hafi
verið tekinn út. „Þessi grein átti
aldrei að vera um fitufordóma.
Þessi grein kom mjög illa út og
ég viðurkenni það alveg enda var
hún tekin út. Hún var illa skrifuð
og illa ígrunduð hjá mér og ég er
alls ekki sama sinnis í dag.“
Hún segir að viðbrögðin við
pistlinum hafi verið mjög heiftúð-
leg og hún hafi fengið mikið af
skilaboðum. Eftir að hafa rætt við
það fólk hafi hún meðtekið skila-
boðin um að pistillinn ylli for-
dómum. „Ef það er eitthvað sem
ég vil uppræta þá eru það fordóm-
ar í samfélaginu og ég vil alls ekki
verða völd að fordómum. Ég styð
mannréttindastefnu Reykjavíkur-
borgar og er búin að vera að vinna
með fólki í mannréttindastefnu
Pírata fyrir borgina og hún er
mjög vel gerð. Við viljum ekki for-
dæma neina jaðarhópa og viljum
að allir séu velkomnir í borginni.“
Ástæðan fyrir því að hún skrif-
aði pistilinn á sínum tíma var sam-
tal við vinkonu hennar sem var
í matarfíknarsamtökunum O.A.
(Overeaters Anonymous), sem eru
tólf spora samtök svipuð og A.A.
„Þessar pælingar voru tilkomn-
ar vegna þess sem hún sagði um
matarfíkn. En auðvitað er ég ekki
með fordóma gagnvart þeim sem
eiga við matarfíkn að stríða eða
annað. Þetta átti alls ekki að koma
út eins og þetta kom út og ég bað
þá sem höfðu samband við
mig innilegrar afsök-
unar á þessu. Ég er
mjög virk í feminísk-
um málefnum og
þar er mikið tekið
á líkamsvirðingu.
Ég hef gert allt
sem ég get til að
snúa þessari
grein við.“ n
n Breytt og síðan eytt n Höfuðlausar bollur valda viðbjóði n Baðst afsökunar
„Var eins og ég hafi
verið kýld í magann“
Frambjóðandi Pírata skrifaði um Pepsi Max-fituhlunka:
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Valgerður Árnadóttir
„Ég hef gert allt sem ég
get til að snúa við
þessari grein við“
Tara Margrét
Vilhjálms-
dóttir