Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Qupperneq 13
23. mars 2018 fréttir 13
bendir á hús Orkuveitu Reykja-
víkur og hlær, upp veginn sjást
hitaveitutankarnir í Grafarholti.
„Keldur henta vel fyrir spítala,
við í Miðflokknum í Reykjavík
viljum hafa spítalann í sveitarfé-
laginu. Það gengur ekki að hafa
spítala þjóðarinnar í miðbænum
í allri menguninni.“
Vigdís leggur bílnum, klifrar
yfir girðingu og fer með skófluna
út á grasblett.
„Nýr spítali á Keldum! Ríkið
seldi Vífilstaðalandið á undir-
verði til Garðabæjar þannig að
við krefjumst þess að ríkið selji
Keldnalandið til Reykjavíkur á
undirverði, fordæmið er komið,
annað yrði brot á jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar!“
Vigdís tekur skóflustungu. „Til
hamingju með nýjan spítala!“
Hún gengur svo frá grasinu sem
hún var að ljúka við að grafa upp,
Vigdís hefur á orði að reynslan
úr garðyrkjunni komi að góðum
notum við þessar aðstæður.
Partíspillir
Eitt helsta markmið Vigdísar sem
nýr borgarstjóri verður að taka
til í kerfinu. „Borgin er með einn
starfsmann á hverja fjórtán íbúa,
það sjá það allir að þetta er of
mikið. Ég ætla ekki að skera nið-
ur fólkið á gólfinu, hagræðingin
mun beinast að stjórnendunum.
Þegar ráðhúsið var byggt var
markmiðið að þar yrðu allar
skrifstofur borgarinnar. Árið 2018
eru skrifstofurnar í tæplega hálfs
kílómetra löngu húsi á sex hæð-
um í Borgartúni. Ég ætla að fara
inn á hverja einustu skrifstofu og
sjá hvernig er hægt að hagræða.
Þetta er allt í lagi, ég fæ hvort eð
er engin atkvæði frá embættis-
mönnum,“ segir Vigdís og hlær.
„Fyrsta málið er að koma
rekstrinum í lag, svo þegar við
erum búin að taka til þá getum
við farið að tala um að lækka út-
svar. Það ætti að vera hægt á síð-
ari hluta kjörtímabilsins. Útsvar-
ið er núna að fara í einhverja
ósýnilega hít, tekjurnar í botni
en samt er borgin röngum megin
við núllið. Þetta heitir á góðri ís-
lensku eyðslufyllerí.“
Þannig að þú ætlar að binda
endi á fylleríið?
„Já, ég er partíspillirinn!
Partíið er búið.“
Búin að finna 10–15 milljarða
Við keyrum framhjá verslun
Bauhaus og stöðvum fyrir utan
byggðina í Úlfarsárdal. Hér ætlar
Vigdís að reisa ódýrar íbúð-
ir fyrir ungt fólk. „Af hverju má
ekki þétta byggðina hér? Nú ligg-
ur öll umferðin niður í bæ, það
sem við þurfum að gera er að
snúa umferðinni við.“ Hún fer út
úr bílnum og tekur aðra skóflu-
stungu. „Hér mun rísa ódýrt hús-
næði! Hættum þessum töfum,
innviðirnir eru klárir, byrjum að
byggja í haust!“
Stefnuskrá Miðflokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar er
enn í vinnslu en Vigdís var tilbú-
in að upplýsa að þar verði farið
í róttæka hagræðingu. „Ég boða
það að hið lögbundna hlutverk
Reykjavíkur verði endurskoðað
strax eftir kosningar, farið verði
ofan í hvern krók og kima til að
sjá hvar er hægt að hagræða. Eft-
ir páska kynni ég svo fjáröflunar-
leiðir, hvar ég er búin að finna 10
til 15 milljarða án þess að segja
upp einum starfsmanni. Bíðið
spennt.“
Vigdís keyrir eftir Sæbraut-
inni, í vegkantinum er eldri mað-
ur að tína rusl. „Nei, sjáðu hvað
þessi er flottur að tína rusl í
skítugu borginni hans Dags.“
„Ég hélt að þú værir túristi!“
Við erum komin út á Laugarnes,
þar ætlar Vigdís að leggja Sunda-
braut og tengja þar með Sæ-
brautina við Kjalarnes. „Við
erum með svakalega flott land
upp á Kjalar nesi, hugsaðu þér,
það eru 20 ár síðan Kjalnesingar
sameinuðust Reykjavík, þá var
þeim lofað Sundabraut eftir tvö
ár. Það er ekkert búið gera.“
Vigdís tekur skóflustungu að
Sundabraut, í sömu andrá kall-
ar kona sem á leið hjá í áttina að
Vigdísi. „Af hverju ertu að raska
jörðinni!?“ Vigdís svarar: „Held-
ur þú að ég kunni ekki að ganga
frá þessu?“ Konan sér hver þetta
er: „Nei, er þetta þú! Ég fyrir-
gef þér strax. Ég hélt að þú vær-
ir túristi!“
Á leiðinni til baka berst talið
að hugsanlegum samstarfsflokk-
um í meirihluta borgarstjórnar.
Vigdís vill stíga varlega til jarðar
þegar kemur að slíkum vanga-
veltum þar sem ekki er hægt að
kjósa aftur fyrr en eftir fjögur
ár þó að meirihlutinn springi.
„Samfylkingin og Vinstri græn
eru sístu kostirnir til samstarfs.“
Hvernig líst þér á að vera
borgar stjóri með Eyþór Arna-
lds og Sjálfstæðisflokkinn þér við
hlið?
„Mér myndi hugnast það
vel án þess að ganga bund-
in til kosninga. Mér finnst Mið-
flokkurinn eiga margt sameig-
inlegt með Sjálfstæðisflokknum.
Ég er hins vegar ekki hrifin af
þeirra hugmyndum um byggð í
Örfirisey, það gengur gegn okk-
ar hugmyndum um að snúa um-
ferðinni við. Annars hlakka ég til
að sjá hvernig kosningarnar fara,
ég stefni á stórsigur.“ n
„Nei, er þetta þú!“ Kona á gangi í
Laugarnesinu kallaði að Vigdísi, hún faðm-
aði hana svo að sér þegar hún uppgötvaði
hver var þarna á ferð. MyNd/Ari BryNjólfssoN
„Til hamingju með
nýjan spítala!
„Nei, sjáðu hvað
þessi er flottur að
tína rusl í skítugu borginni
hans Dags.
Byrjað í
Húsasmiðjunni
Fyrsta verkefnið
var að útvega
stunguskóflu.
MyNd/Ari BryNjólfssoN
Vigdís Hauksdóttir MyNd Ari BryNjólfssoN