Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Qupperneq 22
22 23. mars 2018fréttir
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
S
igríður Andersen dóms-
málaráðherra hitti á dögun-
um Þorstein Vilhelmsson,
föður Hildar Þorsteins-
dóttur. Hildur sagði í samtali við
DV að hún hefði mátt þola skelfi-
legt, andlegt, líkamlegt og kyn-
ferðislegt ofbeldi af hálfu Magnús-
ar Jónssonar, sem oft er kenndur
við Atorku. Í viðtalinu kom fram
að þrátt fyrir að hafa slitið sam-
bandinu fyrir þremur árum er
ekki enn búið að skipta eignum og
sagði hún Magnús hafa tafið mál-
ið í þrjú með aðstoð lögfræðinga.
Kerfið hefur brotið á Hildi og fleiri
konur hafa verið í svipuðum spor-
um. Hildur kveðst hafa stigið fram
til að segja sögu sína til að vekja
athygli á þessu óréttlæti. Hildur
segir:
„Ég er algjörlega orðlaus yfir
öllum viðbrögðunum sem ég hef
fengið síðan greinin um mig birt-
ist í DV. Ég vona innilega að saga
mín hafi gefið einhverjum konum
styrk. Styrk til að stíga út úr ofbeld-
issambandi, styrk til að segja frá og
fá þá hjálp sem þær eiga skilið. Ég
vona að kerfið ranki við sér og það
strax. Hjálpi þolendum svo að þeir
þurfi ekki að hefja nýja baráttu
þegar þeir loksins öðlast styrkinn
og hugrekkið til að fara.“
Þorsteinn kveðst treysta því að
Sigríður Andersen láti nú til sín
taka og að breyting verði á kerf-
inu með hagsmuni kvenna í huga
enda um lífsspursmál að ræða.
Hildur kveðst þakkláti Sigríði
að taka á móti föður hennar. „Ég
veit að hún er öll af vilja gerð til að
breyta kerfinu. Það mun taka tíma.
Ég vona samt að í framtíðinni
muni þolendur heimilisofbeldis
fá alla þá aðstoð sem þeim ber og
að kerfið muni ekki bregðast fleiri
einstaklingum. Ég trúi því að rétt-
lætið muni sigra að lokum.“
Heimildir nýttar betur
Sigríður Andersen dómsmálaráð-
herra vildi ekki tjá sig við DV um
einstaka mál en vildi minna á að
það taki tíma að breyta kerfinu.
Laga- og verklagsbreytingar gerist
ekki á einni nóttu en þróunin virð-
ist vera í réttum farvegi að henn-
ar mati.
„Það eru samt mjög miklar
breytingar sem hafa átt sér stað á
undanförnum misserum. Um ára-
mótin 2014/2015 breyttist verk-
lagið hjá lögreglunni í heimilisof-
beldismálum mikið, heimildir eru
nýttar miklu betur og mér skilst að
áhættumat sé gert í hverju máli og
skoðað hvort nálgunarbann sé úr-
ræði sem þurfi að beita eða hvort
neyðarhnappur sé hentugri. Þannig
að þetta er mikið að breytast.
Það virðist vera svo að dóm-
stólar séu oftar að fallast á kröfur
um nálgunarbann og mér skilst
það frá ákærusviði lögreglunnar
að það hafi orðið töluverð breyting
frá því sem áður var,“ segir dóms-
málaráðherra. Það skal þó tek-
ið fram að lögregla útvegaði Hildi
neyðarhnapp en dómstólar neit-
uðu henni um nálgunarbann.
Verður það að teljast nokkuð
óvenjulegt, þá einnig í ljósi þess að
önnur kona sem Magnús hóf sam-
band við eftir að Hildur sleit sam-
bandinu fékk nálgunarbann. „Það
er þannig, að það er orðið mun
algengara að fallist er á kröfu um
nálgunarbann. Það er dæmi um
breytingar sem hafa átt sér stað á
síðustu árum, eða í raun bara síð-
ustu misserum.
Svo er vert að minnast á Bjark-
arhlíð sem við opnuðum á síðasta
ári sem er miðstöð fyrir
þolendur ofbeldis. Það er til-
raunaverkefni sem virðist hafa
reynst mjög vel. En þessi mála-
flokkur er í miklum forgangi, bæði
hjá mér sem ráðherra í ráðu-
neytinu og hjá lögreglunni,“ bætir
Sigríður Andersen við að lokum. n
Dómsmálaráðherra hitti föður Hildar.
n Tekur tíma að breyta kerfinu n „Ég trúi því að réttlætið muni sigra að lokum“
Hildur orðlaus yfir viðbrögðunum
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Um Bjarkarhlíð
Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur
ofbeldis. Markmið Bjarkarhlíðar er
að veita stuðning og ráðgjöf ásamt
fræðslu og umfjöllun um eðli og
afleiðingar ofbeldis, auk þess að gefa
skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki
liðið. Hjá Bjarkarhlíð er unnið með
þolendum ofbeldis á þeirra forsendum
og er öll þjónustan undir sama þaki til
að auðvelda þeim að leita aðstoðar.