Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Qupperneq 32
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Erling og Helga Ósk eru gull-smiðir sem reka verslun og vinnustofu að Hverfisgötu 39
í Reykjavík. Þau eiga bæði að baki
langan feril sem framsæknir hönnuðir
og mörg verka þeirra eru á mörkum
þess að vera skartgripir eða lista-
verk. Vinnustofa og verslun Erlings
og Helgu við Hverfisgötu mynda
heillandi og aðlaðandi umhverfi þar
sem hönnun þeirra nýtur sín vel, og
gaman er að koma þangað og skoða
skartgripi.
Erling Jóhannesson útskrifaðist
sem gullsmiður frá Tækniskólanum í
Reykjavík 1983. Eftir framhaldsnám
í gullsmíði í Flórens á Ítalíu starfaði
hann á ýmsum verkstæðum í Reykja-
vík. Árið 1990 útskrifaðist hann sem
leikari frá Leiklistarskóla Íslands og
hefur hann unnið jöfnum höndum við
skartgripagerð og leiklist, bæði hér
heima og erlendis. Skartgripir Erlings
eru af ýmsum toga og á löngum ferli
hafa verkefnin verið fjölbreytt, en
rauður þráður í vinnu hans er skýr
formhugsun þar sem formin eru upp-
diktuð og óræð en með einhverjum
undarlegum hætti vísa í ekki alveg
augljósan veruleika.
Helga Ósk lauk námi í gullsmíði frá
Tækniskólanum árið 1995 og fram-
haldsnámi frá Institute for Ædelmetal
í Kaupmannahöfn 2010. Hún hefur
unnið bæði hér heima og erlendis
við skartgripasmíði og hönnun. Verk
Helgu spanna fjölbreytt svið skart-
gripagerðar en það sem einkennir
verk hennar flest er hvernig hún hefur
tvinnað saman hefðbundið víravirki
og samtímaskartgripagerð. Víra-
virkið sem á langa sögðu í íslenskri
skartgripagerð er ákaflega fínlegt
handverk sem Helga hefur öðrum
gullsmiðum fremur náð að færa til
samtímans með frumlegri og fágaðri
útfærslu. Auk þess hefur Helga smíð-
að og hannað skartgripi sem margir
hverjir ramba á mörkum skartgripa
og sjálfstæðra listaverka.
Allt frá framúrstefnu til
hefðbundinna skartgripa
„Við förum bæði oft út fyrir þessa
hefðbundnu ramma, sprengjum
hugmyndalandamærin, þá erum við
oft að vinna með eitthvað sem er
á mörkum þess að vera skartgripir.
Vinnum til dæmis með óhefðbundin
efni og hefðbundna notkun og form
skartgripa. Við erum á því róli að leika
okkur með svona óhefðbundna skart-
gripi yfir í eitthvað alveg hefðbundið
og aðgengilegt, svo þrátt fyrir þessa
frjálslegu nálgun geta flestir fundið
eitthvað við sitt hæfi.“
Aðspurð hvert þau sæki innblástur
í verk sín segir Erling að þau séu ekki
sérstaklega upptekin af innblæstri
og Helga tekur undir það: „Ég held
að við vinnum á svipaðan hátt þó að
útkoman geti verið ólík. Við leggjum
lítið upp úr innblæstri, það er ekkert
vandamál að fá hugmyndir ef maður
kann sitt fag, þær einfaldlega koma.
Ef þú kannt þitt fag þá þarftu ekki að
leita að innblæstri, það sem við gerum
hangir saman við það sem við kunnum
og ef þú kannt eitthvað vel þá kemur
þetta allt til þín,“ segir Erling.
Hann segir jafnframt að þau leiti
mikið hvort til annars með hugmyndir
og úrvinnslu: „Við spyrjum kannski
hvort annað: Hvernig myndir þú leysa
þetta? Og við köstum hugmyndum
á milli. Þessi faglegi félagsskapur er
ómetanlegur, það er mikilvægt að
geta verið í sambandi og eiga samtal
við kollega sína.“
Skartgripir í þessum gæðaflokki
hvergi ódýrari
Verðbilið er mjög vítt á skartgripunum
hjá Erling og Helgu Ósk. Allt frá mjög
viðráðanlegu verði upp í eitthvað
mjög dýrt fyrir þá sem hafa áhuga á
slíku. „Útlendingar sem koma hingað
segjast ekki fá sérsmíðaða skartgripi
í þessum gæðaflokki nokkurs staðar
á jafn lágu verði eins og á Íslandi,“
segir Erling. Aðspurður segir hann að
erlendir ferðamenn séu líklega um
helmingur viðskiptavinanna.
Helga Ósk og Erling hafa skapað
mjög skemmtilegt umhverfi að
Hverfisgötu 39. „Við viljum hafa þetta
lifandi stað þar sem gaman er fyrir
áhugafólk um skartgripi og frumlega
hönnun að kíkja inn á í göngutúr um
miðbæinn,“ segir Erling. Staðsetningin
er líka heppileg við Hverfisgötuna
sem er að taka miklum og skemmti-
legum breytingum.
Verslunin að Hverfisgötu 39 er
opin virka daga frá kl. 10 til 18 og
laugardaga frá 11 til 16. Vefverslun og
nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
erlingoghelgaosk.is.
Heillandi skartgripa-
heimur að Hverfisgötu 39