Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 34
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Glæsileg íslensk hönnun
frá Gilbert úrsmið
JS Watch co. ReykJavik
JS Watch co. Reykjavik-úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS
hér heima á Íslandi. allir íhlutir úrsins
eru síðan sérframleiddir eftir þeirra
hönnun í mörgum, sérhæfðum
verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss og
settir saman hér á landi undir ströngu
gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guðjónssonar
úrsmíðameistara sem nýtir áralanga
þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til
að tryggja að hvert og eitt úr standist
ströngustu kröfur.
Frá upphafi framleiðslunnar hefur
verið leitast við að sameina glæsi-
lega hönnun, gæði, fyrsta flokks
úrverk og falleg armbönd. vönduð úr
eru munaðarvara og fylgihlutir sem
bæði karlmenn og konur njóta þess
að velja, bera og eiga. en úr er ekki
bara skartgripur. Það er nytjahlutur
sem hjálpar okkur að gegna skyldum
okkar, halda loforð og skapa góðar
minningar.
Sérstaða úranna á íslenskum
markaði ásamt persónulegri þjónustu
og árangursríku markaðs- og kynn-
ingarstarfi hefur leitt til þess að úrin
hafa orðið eftirsótt meðal heims-
frægra einstaklinga sem koma til
landsins. Meðal þekktra einstaklinga
má til gamans nefna kit harington,
Ben Stiller, tom cruise, Quentin
tarantino, Jude Law, viggo Morten-
sen, Mads Mikkelsen, tobey Maguire,
Dennis Quaid, elvis costello, ian and-
erson, yoko ono, Sean Lennon, Dalai
Lama, katie couric, vinnie Jones og
constantine Grikklandskonung.
Fágæti úranna ásamt því að
vera framleidd í hæsta gæðaflokki
er það sem gerir þau eftirsóknar-
verð, en á skífu allra úranna stendur
Reykjavík. Það, ásamt vönduðu verki,
framleiðslu og sígildu útliti, gerir úrin
fágæt og einstök.
Gilbert úrsmiður hefur lagt sitt
af mörkum við að hvetja til bættrar
verslunar og þjónustu við ferða-
menn efst á Laugaveginum og hefur
ásamt fleirum tekið ríkan þátt þátt í
að byggja upp verslun í vitahverfinu.
Persónuleg þjónusta og góð vöru-
þekking er aðalsmerki verslunarinnar
og þjónustustig verslunarinnar er til
fyrirmyndar. viðskiptavinir eiga kost
á að hitta framleiðendur, fá að sjá
úrsmiði að störfum og koma með
ábendingar varðandi samsetningu
og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast
kaupa. Ferðamenn geta óskað eftir
einkaheimsókn komist þeir ekki í versl-
unina á hefðbundnum opnunartíma
og eru þeir þá jafnan sóttir á hótel
sitt og þeim ekið til baka að lokinni
heimsókn. heildstæð áferð og fram-
úrstefnuleg ásýnd markaðs- og kynn-
ingarmála JS Watch co. Reykjavik
hefur vakið athygli bæði innanlands
og utan.
Úrvalið hefur aldrei verið meira
en nánari upplýsingar um úrin og
hönnunina má finna á vefsíðunni
gilbert.is.
Gilbert úrsmiður,
Laugavegi 62, sími: 551-4100.