Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 34
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Glæsileg íslensk hönnun frá Gilbert úrsmið JS Watch co. ReykJavik JS Watch co. Reykjavik-úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS hér heima á Íslandi. allir íhlutir úrsins eru síðan sérframleiddir eftir þeirra hönnun í mörgum, sérhæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss og settir saman hér á landi undir ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó. Guðjónssonar úrsmíðameistara sem nýtir áralanga þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt úr standist ströngustu kröfur. Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina glæsi- lega hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd. vönduð úr eru munaðarvara og fylgihlutir sem bæði karlmenn og konur njóta þess að velja, bera og eiga. en úr er ekki bara skartgripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar okkur að gegna skyldum okkar, halda loforð og skapa góðar minningar. Sérstaða úranna á íslenskum markaði ásamt persónulegri þjónustu og árangursríku markaðs- og kynn- ingarstarfi hefur leitt til þess að úrin hafa orðið eftirsótt meðal heims- frægra einstaklinga sem koma til landsins. Meðal þekktra einstaklinga má til gamans nefna kit harington, Ben Stiller, tom cruise, Quentin tarantino, Jude Law, viggo Morten- sen, Mads Mikkelsen, tobey Maguire, Dennis Quaid, elvis costello, ian and- erson, yoko ono, Sean Lennon, Dalai Lama, katie couric, vinnie Jones og constantine Grikklandskonung. Fágæti úranna ásamt því að vera framleidd í hæsta gæðaflokki er það sem gerir þau eftirsóknar- verð, en á skífu allra úranna stendur Reykjavík. Það, ásamt vönduðu verki, framleiðslu og sígildu útliti, gerir úrin fágæt og einstök. Gilbert úrsmiður hefur lagt sitt af mörkum við að hvetja til bættrar verslunar og þjónustu við ferða- menn efst á Laugaveginum og hefur ásamt fleirum tekið ríkan þátt þátt í að byggja upp verslun í vitahverfinu. Persónuleg þjónusta og góð vöru- þekking er aðalsmerki verslunarinnar og þjónustustig verslunarinnar er til fyrirmyndar. viðskiptavinir eiga kost á að hitta framleiðendur, fá að sjá úrsmiði að störfum og koma með ábendingar varðandi samsetningu og útlit þeirra úra sem þeir hyggjast kaupa. Ferðamenn geta óskað eftir einkaheimsókn komist þeir ekki í versl- unina á hefðbundnum opnunartíma og eru þeir þá jafnan sóttir á hótel sitt og þeim ekið til baka að lokinni heimsókn. heildstæð áferð og fram- úrstefnuleg ásýnd markaðs- og kynn- ingarmála JS Watch co. Reykjavik hefur vakið athygli bæði innanlands og utan. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nánari upplýsingar um úrin og hönnunina má finna á vefsíðunni gilbert.is. Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62, sími: 551-4100.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.