Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 36
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Okkar viðskiptavinir geta valið húsgögn alveg eftir sínu höfði, til dæmis lit, viðartegundir og áklæði, því við sérsmíðum allt og öll húsgögn til heimilisnota eru hönnuð og smíðuð hér á landi,“ segir Reynir Syrusson, eigandi Syrusson hönnunarhúss. Fyrirtækið hefur í 11 ár hannað og smíðað húsgögn fyrir íslensk heimili og vinnustaði. „Við leggjum áherslu á fagmennsku, fágun og góðan efnivið við alla framleiðslu,“ segir Reynir en þrátt fyrir að um vandaða sérsmíði sé að ræða er verðið á húsgögnunum mjög hagstætt. Við bjóðum íslenska hönnuði velkomna með vörur sínar í sýningarrými okkar þar sem við viljum hafa Syrusson hönnunarhús sem hönnunarmiðstöð íslenskra gæða- húsgagna. Syrusson býður upp á gífurlegt úrval af húsgögnum fyrir heimili en mikil áhersla er lögð á persónuleg samskipti, góða þjónustu og sveigjan- leika í hönnun og efnisvali. Markmiðið er ávallt að uppfylla óskir viðskipta- vinarins. Bólstrun hefur alltaf verið stór hluti af hönnunar- og framleiðslustarfi Syrusson. Fyrirtækið býður bæði upp á bólstrun og endurbólstrun. „Smekk- ur manna er misjafn og þess vegna bjóðum við viðskiptavinum okkar að aðlaga vöru sína að þeirra stíl með breiðu efnisúrvali. Viðskiptavinurinn fær möguleika á að velja úr úrvali áklæða, leðurs eða leðurlíkis, hann fær einnig að velja stífleika í svampi og lit á þræði sem saumaður er í húsgagnið. Með þessum sveigjanleika hefur viðskiptavinurinn möguleika á að aðlaga vöru sína og upplifa þá fjölbreyttu möguleika sem við bjóðum upp á. Með áratuga reynslu í faginu bjóðum við upp á gæðabólstrun og endurbólstrun.“ Auk heimilishúsgagna selur Syrus- son mikið af húsgögnum til fyrirtækja og stofnana. Í þeirri sölu koma vönduð innflutt húsgögn oft við sögu og má segja að hæfileg blanda af innflutt- um og íslenskum húsgögnum þjóni viðskiptavinum best. Syrusson veitir fyrirtækjum oft heildarlausnir á þessu sviði og sérsmíðar húsgögn inn í rými. Syrusson er með verslun að Síðumúla 33, Reykjavík. Þar er opið mánudaga til föstudaga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Þangað er gaman að koma og skoða allt úrvalið en umfram allt veita starfsmenn fag- lega ráðgjöf. Þeir koma líka gjarnan í heimsókn til viðskiptavina þegar þörf er á heildarlausn og þá er sest niður, málin rædd og bestu lausnirnar fundnar í sameiningu. Til að óska eftir fundi er gott að hringja í 588-4555 eða senda fyrirspurn á syrusson@ syrusson.is. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni syrusson.is. Hágæða sérsmíðuð íslensk hönnunarhúsgögn SyRuSSon:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.