Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Page 37
Íslensk hönnun 23. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ Úrin frá 24Iceland hafa slegið í gegn og eru vinsæl í gjafir, hvort sem er fermingar-, útskriftar- eða jólagjafir. Eigandi 24Iceland er Valþór Örn Sverrisson, sem elskar úr og er að eigin sögn úraperri, enda fékk hann snemma áhuga á úrum þegar hann aðstoðaði úrsmiðinn afa sinn í verslun hans. Valli, eins og hann er jafnan kallaður, lítur á úr frekar sem skart. Valli er líka snappari með stóran fylgjendahóp og einstæður faðir þriggja ára dóttur, sem hann segir sína bestu klappstýru og hafa komið sér á þann stað sem hann er í dag. Valli sótti hugmyndina að stofnun 24Iceland ekki langt, afi hans var úrsmiður auk móðurbræðra hans og sjálfur elskar hann úr. „Ég er svona úraperri. Ég elska úr, en í dag eru þau þannig að maður kíkir eiginlega bara á símann sinn til að vita hvað klukkan er, úr eru eiginlega frekar skart, eða það finnst mér allavega,“ segir Valli. „Afi minn sálugi, sem var líka góður vinur minn, var úrsmiður, Hermann Jónsson, og hann var með verslun í Veltusundi sem hann rak í 45 ár. Ég hjálpaði honum oft, og síðan þegar hann lést þá hjálpaði ég ömmu minni að loka búðinni. Það eru næstum allir í kringum mig úrsmiðir eins og til dæmis bræður mömmu minnar. Ég er samt ekki úrsmiður sjálfur, en hanna öll úrin mín og svo erum við að sjálfsögðu með úrsmið í vinnu hjá okkur.“ 24Iceland komið í útrás Úrin hans Valla hafa slegið í gegn hér heima og því lá beinast við að koma þeim inn á önnur markaðssvæði og Valli er byrjaður á því. „Ég er búinn að stofna fyrirtæki sem heitir 24USA og við erum komin með þau úr í Bandaríkjunum, ég vissi að markaðs- hópurinn væri stór þar en hann er sko viðbjóðslega stór. En það er fyrirtæki þar úti sem ætlar að vinna með okkur og annað hér heima sem ætlar að hjálpa okkur aðeins, en þetta er svo stórt að mað- ur ræður varla við það,“ segir Valli. „Úrin eru alveg eins og 24Iceland, nema bara með 24USA og við erum að tala við fjölda bloggara og snapp- ara og annaðhvort gerist eitthvað eða ekki. Þetta er í hægri vinnslu og ég hef alltaf verið þannig í lífinu að ég læt reyna á allar hugmyndir sem ég fæ, stundum virka þær, stundum ekki. Ég hef stofnað fyrirtæki og unnið vinnu sem ég hef dauðséð eftir.“ Í fyrra keypti Valli síð- an nýtt fyrirtæki, MaGa, sem hann rekur samhliða 24Iceland. „MaGa-úrin keypti ég af manni í Bret- landi, en þau eru framleidd í sömu verksmiðju og Daniel Well- ington-úrin. Þetta er allt mjög stórt og umfangsmikið og núna í desem- ber, þá kom ný lína af MaGa. Ég elska hauskúpudæmi og eins skartið frá þeim og get bara ekki beðið eftir að vinna meira með þetta merki,“ segir Valli ánægður. Í þessari viku færði Valli síðan enn út kvíarnar því nú er fatnaður merkt- ur 24Iceland kominn í sölu, um er að ræða hettupeysur merktar 24Iceland og með mynd af Íslandi. Peysurnar koma í fjórum litum: svörtum, gráum, hvítum og bleikum. Þann 5. apríl næstkomandi flytur 24Iceland á Laugaveg 51, og einnig opnar Massan, ný spennandi verslun með innanhúss- og heimilisvörum, þar á sama stað. Það er ljóst að framtíðin er björt hjá Valla sem segir móður sína, sem hefur verið kaupmað- ur í 40 ár, og dóttur sína helstu áhrifavalda í lífi sínu. „Allt sem ég geri hefur gengið betur eftir að Sigurrós Nadía fæddist.“ Fylgjast má með 24Iceland á heimasíðunni 24iceland.is, Face- book: 24-Iceland, Snapchat: Iceland24 og Instagram: 24Iceland. Fylgjast má með Valla sjálfum á Snapchat: vallisverris. Verslun 24Iceland er að Krókhálsi 6 og er opin alla virka frá kl. 11–15, en 5. apríl næstkomandi lokar verslunin að Krókhálsi og ný verslun opnar að Laugavegi 51. Ný spennandi verslun með innanhúss- og heimilisvörum 24IcELAND oG MASSAN: Valli ásamt dótturinni Sigurósu Nadíu. M yn d : Ó li M a gg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.