Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Side 38
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ Scintilla Hospitality er íslenskt textílhönnunarfyrirtæki sem sérhannar og framleiðir vörur fyrir hótel, gistiheimili, líkamsrækt- arstöðvar og heilsulindir. Má þar nefna rúmfatnað, handklæði, sloppa, teppi og púða. Falleg hönnun, gæði, ending og framúrskarandi þjónusta eru helstu áherslur fyrirtækisins á þessu sviði ásamt því að bjóða upp á lífrænan textíl. Scintilla selur einnig hefðbundin rúmföt með satínröndum og kostar settið 2.390 kr. án vsk. Sængurfatnaður á hótelum þarf að vera endingargóður og þarf að þola mikið álag. Scintilla Hospitality býður upp á úrval af sængurfatn- aði með áherslu á fallega íslenska hönnun, gæði og endingu. Scintilla Hospitality getur tekið að sér að framleiða sérstaklega fyrir viðskiptavini t.d. handklæði með vörumerki viðskiptavinar ofnu eða saumuðu í vöruna án þess að það verði kostnaðarsamt. Hönnuðir Scintilla Hospitality geta hannað og framleitt vörur sem samræmast stíl viðskiptavinar- ins og undirstrika sérstöðu hans. „Okkar sérstaða á þessum mark- aði er sú að við erum hönnunar- fyrirtæki og við hönnum allar vörurnar okkar sjálf. Við erum ekki heildsalar að flytja inn fjölda- framleidda staðl- aða vöru. Við leggjum áherslu á hönnun og fagurfræði auk þess sem við hugs- um um gæði, endingu og siðferði við framleiðslu. Við bjóðum okkar við- skiptavinum upp á að sérhanna fyrir þá þeim að kostnaðarlausu gegn því að þeir kaupi vörurnar af okkur. Ís- lenskur hóteliðnað- ur er kominn á þann stað núna að hver og einn aðili þarf að skerpa á sinni sér- stöðu og hugsa um gæði. Það má hafa í huga að það er hægt að uppfæra herbergi fyrir lítinn pening með því einu að hafa falleg og vönduð rúmföt,“ segir Linda Björg Árnadóttir hjá Scintilla Hospitality. Í fyrirtækinu er 30 ára reynsla af hönnun og framleiðslu á textíl. Meðal viðskiptavina eru ION Hotel á Þing- völlum, Bláa lónið, Laugar og Hótel Kefalvík. „Við getum sérframleitt vörur fyrir minni aðila í litlu magni sem auðvelt er síðan að endurpanta. Við getum veitt ráðgjöf varðandi hönnun og stíl og framleitt vörur með sérhönnuðum munstrum, lit eða merki viðskipta- vinarins.“ Scintilla Hospitalilty er til húsa að Skipholti 25 í Reykjavík en mun flytja innan skamms á Laugaveg 40. Þar eru skrifstofa, sýningarrými og lítil verslun sem er opin virka daga frá kl. 10 til 18. Nánari upplýsingar eru veitt- ar í síma 562-2659 auk þess sem senda má fyrirspurnir á netfangið s@scintillalimited.com. Sérhannaðar gæðavörur fyrir hótel og gististaði ScINtILLa HOSpItaLIty, SKIpHOLtI 25:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.