Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 38
Íslensk hönnun 23. mars 2018KYNNINGARBLAÐ
Scintilla Hospitality er íslenskt textílhönnunarfyrirtæki sem sérhannar og framleiðir vörur
fyrir hótel, gistiheimili, líkamsrækt-
arstöðvar og heilsulindir. Má þar
nefna rúmfatnað, handklæði, sloppa,
teppi og púða. Falleg hönnun, gæði,
ending og framúrskarandi þjónusta
eru helstu áherslur fyrirtækisins á
þessu sviði ásamt því að bjóða upp
á lífrænan textíl. Scintilla selur einnig
hefðbundin rúmföt með satínröndum
og kostar settið 2.390 kr. án vsk.
Sængurfatnaður á hótelum þarf
að vera endingargóður og þarf að
þola mikið álag. Scintilla Hospitality
býður upp á úrval af sængurfatn-
aði með áherslu á fallega íslenska
hönnun, gæði og endingu.
Scintilla Hospitality getur tekið
að sér að framleiða sérstaklega
fyrir viðskiptavini t.d. handklæði
með vörumerki viðskiptavinar ofnu
eða saumuðu í vöruna án þess að
það verði kostnaðarsamt. Hönnuðir
Scintilla Hospitality geta hannað og
framleitt vörur
sem samræmast
stíl viðskiptavinar-
ins og undirstrika
sérstöðu hans.
„Okkar sérstaða
á þessum mark-
aði er sú að við
erum hönnunar-
fyrirtæki og við
hönnum allar
vörurnar okkar
sjálf. Við erum
ekki heildsalar að
flytja inn fjölda-
framleidda staðl-
aða vöru. Við
leggjum áherslu
á hönnun og
fagurfræði auk þess sem við hugs-
um um gæði, endingu og siðferði við
framleiðslu. Við bjóðum okkar við-
skiptavinum upp á að sérhanna fyrir
þá þeim að kostnaðarlausu gegn því
að þeir kaupi vörurnar af okkur. Ís-
lenskur hóteliðnað-
ur er kominn á þann
stað núna að hver
og einn aðili þarf að
skerpa á sinni sér-
stöðu og hugsa um
gæði. Það má hafa
í huga að það er
hægt að uppfæra herbergi fyrir lítinn
pening með því einu að hafa falleg
og vönduð rúmföt,“ segir Linda Björg
Árnadóttir hjá Scintilla Hospitality.
Í fyrirtækinu er 30 ára reynsla af
hönnun og framleiðslu á textíl. Meðal
viðskiptavina eru ION Hotel á Þing-
völlum, Bláa lónið, Laugar og Hótel
Kefalvík.
„Við getum sérframleitt vörur fyrir
minni aðila í litlu magni sem auðvelt
er síðan að endurpanta. Við getum
veitt ráðgjöf varðandi hönnun og stíl
og framleitt vörur með sérhönnuðum
munstrum, lit eða merki viðskipta-
vinarins.“
Scintilla Hospitalilty er til húsa að
Skipholti 25 í Reykjavík en mun flytja
innan skamms á Laugaveg 40. Þar
eru skrifstofa, sýningarrými og lítil
verslun sem er opin virka daga frá kl.
10 til 18. Nánari upplýsingar eru veitt-
ar í síma 562-2659 auk þess sem
senda má fyrirspurnir á netfangið
s@scintillalimited.com.
Sérhannaðar gæðavörur
fyrir hótel og gististaði
ScINtILLa HOSpItaLIty, SKIpHOLtI 25: