Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 39
Íslensk hönnun 23. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ég var mikið að vinna með ilmkjarnaolíur sem nuddari en það höfðu aldrei verið búnar
til íslenskar ilmkjarnaolíur og mig
langaði til að gera það,“ segir Hraun-
dís Guðmundsdóttir en hún rekur hið
merka framleiðslufyrirtæki í ilmolíum,
Hraundísi, að Rauðsgili í Borgarfirði.
Hraundís gekk lengi með þann
draum að framleiða íslenskar ilm-
kjarnaolíur á jörðinni Rauðsgili þar
sem hún býr. Hraundís lærði fyrst
ilmolíufræði á Íslandi en hélt síðan
til náms í Arizona í Bandaríkjunum,
hjá fyrirtækinu Phebee Aromatic í
Sedona. Þar lærði hún að eima og
búa til ilmkjarnaolíur en olíurnar
eru eimaðar úr mismunandi jurtum.
Fyrstu íslensku ilmkjarnaolíurnar
komu síðan á markað sumarið 2015.
„Ég er mikið í barrtrjánum, íslensku
skógunum, en þá eima ég barrið.
Stundum eru eimuð blóm, stundum
fræ. Þetta er mjög mismunandi eftir
því hvernig olíur er verið að búa til.
Stundum er það rótin og stundum
stöngullinn. Ef við síðan tökum æti-
hvönnina sem dæmi, þá eimar maður
fræin, laufblöðin og rótina allt sér og
fær þá þrjár tegundir af ilmkjarnaolíu,
hverja með sína lykt og sína virkni,“
segir Hraundís.
Ilmkjarnaolíur hafa mjög mismun-
andi virkni og vísindalega þekkingu
þarf til að greina hana: „Ég sendi
ilmkjarnaolíurnar mínar til Frakklands
til efnagreiningar og þannig fæ ég
langan lista yfir hvað er í þeim og
þannig get ég lesið í virkni hverrar og
einnar,“ segir Hraundís.
„Ilmkjarnaolíur er hægt að nota
til að hjálpa til við að taka á ýmsum
kvillum eins og bólgum í vöðvum,
húðsveppum, þeir geta verið vörn
gegn skordýrum, þunglyndi og mörgu
fleiru fleira. Þær eru líka frábærar til
að þrífa heimilið á náttúrulegan hátt
og setja í þvottavélina og ryksuguna.
Ilmkjarnaolíur eru mikið notaðar í
snyrtivörur, sjampó, andlitskrem og
þess háttar. Snyrtivörurnar sem ég
bý til geri ég úr ilmkjarnaolíunum mín-
um. Til dæmis er sjampóið úr íslensk-
um skógarilmi,“ segir Hraundís enn
fremur, en hún selur bæði ilmkjarna-
olíur og snyrtivörur unnar úr olíunum.
„Sjampóið er búið til úr náttúrulegum
efnum og íslenska hreina vatninu okk-
ar en sjampó er um 70% vatn. Síðan
er það líka úr íslenskum skógarilmi.“
Meðal margra vörutegunda er
ilmkjarnaolían Sitkagreni sem er
einstaklega verkjastillandi olía. Hún er
einnig bólgueyðandi og kælandi, góð
gegn kvefi og flensu. Stafafuruolían
er bakteríu- og sveppadrepandi. Góð
gegn kvefi og öndunarsjúkdómum.
Hún virkar vel á alla vöðvaverki og er
góð fyrir húð. Þá er hún mjög góð til
að bera á magann með burðarolíu
við magapest.
Þá má nefna skeggolíur, verkja-
olíuna Eldhraun, baðsalt og margt
fleira. Vöruúrvalið er mikið og fer sí-
vaxandi. „Ég er alltaf að gera tilraunir
og prófa mig áfram. Ég er ein í þessu
ennþá en er samt mikið að nýta fjöl-
skyldumeðlimi,“ segir Hraundís.
Allt land á Rauðsgili er vottað líf-
rænt og fljótlega verða allar vörurnar
sem þar eru framleiddar með lífræna
vottun.
Þess má geta að Hraundís var
valin handverksmaður ársins á Hand-
verkshátíðinni í Hrafnagili í fyrra-
sumar fyrir brautryðjandastarf sitt
við þróun ilmkjarnaolíanna.
Vörurnar eru seldar í gegnum
vefverslun á hraundis.is en eru
einnig til sölu hjá Frú Laugu við
Laugalæk í Reykjavík, í Landnáms-
setrinu og sveitamarkaðnum Ljóma-
lind í Borgarfirði, í Húsi handanna
á Egilsstöðum, hjá Hitt og þetta
handverk á Blönduósi og hjá Sonju
Vestmannaeyjum.
Hraundís:
Ilmkjarnaolíur
úr íslenskum jurtum