Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Qupperneq 45
lífsstíll - heilsa 4523. mars 2018
ERU RafsígaREttUR
hættUlEgaR?
Á
nokkrum árum hafa hinar
svokölluðu rafrettur orðið
gríðarlega áberandi í sam
félaginu. Saga gufureyk
inga er aldagömul en rafrettur
komu fyrst á markaðinn árið 2003
og voru þróaðar af kínverska lyfja
fræðingnum Hon Lik. Þetta gerði
hann til að hjálpa sjálfum sér að
hætta að reykja.
Með rafrettum losnar maður
við krabbameinsvaldandi tjöru
og eiturefni úr sígarettureyknum.
En rafrettur hafa einnig náð út
breiðslu út fyrir raðir reykinga
fólks, sérstaklega til ungs fólks og
unglinga enda fást þær með alls
kyns girnilegum bragðefnum og
í flottum umbúðum. Er ástæða
til að hafa áhyggjur af þessari
sprengingu í notkun rafrettna?
Margar rannsóknir benda til
þess að rafrettunotkun sé ekki nær
eins skaðleg heilsu manna eins
og sígarettureykingar. Enn vantar
þó langtímarannsóknir til að sýna
fram á langtímaáhrif þeirra.
Valda rafsígarettur
krabbameini?
Nikótín sem slíkt er ekki beint
krabbameinsvaldandi en það get
ur örvað vöxt krabbameinsfruma
sem eru til staðar auk þess sem
það hefur áhrif á hjarta, heila,
taugakerfið og öndunarfæri.
Nikótín er einnig mjög ávana
bindandi og það efni sem ger
ir reykingafólki svo erfitt að hætta
reykingum. Þó nikótíninnihald
rafrettna sé mun lægra en í sígar
ettum þá geta rafrettureykingar
leitt ungt fólk út í sígarettureyk
ingar með áunninni nikótínþörf.
Nikótínvökvi getur verið ban
vænn, sé hans neytt á annan hátt
en leiðbeiningar segja til um, og er
því hættulegur, sérstaklega börn
um ef þau komast í hann.
Rafrettur, hvort sem þær inni
halda nikótín eða ekki, innihalda
allar gufureyk og nú liggja fyrir vís
bendingar um að í þeim séu efni
sem séu slæm fyrir heilsu okkar.
Rafrettugufur innihalda ýmis
efni, bæði málmefni og nikótín, þó
að sá styrkleiki sé umtalsvert lægri
en í sígarettureyk. Þessi efni geta
haft áhrif á heilsu og líðan þeirra
sem eru í kringum rafrettureyk og
geta verið krabbameinsvaldandi.
Díasetýl er efni sem finnst bæði
í rafrettuvökva og sígarettureyk
og er talið geta valdið óaftur
kræfum bráðum lungnasjúkdómi,
bronchiolitis obliterans. Gufan er
einnig ertandi fyrir lungun sem er
vont fyrir fólk með viðkvæm lungu
og ungt fólk sem er enn að taka út
sinn líkamsþroska.
Rafrettur virðast vera góður
kostur fyrir þá sem vilja hætta að
reykja en ef þú reykir ekki fyrir er
ekki skynsamlegt að byrja rafrett
ureykingar þar sem rannsókn
ir benda til skaðsemi þeirra fyrir
heilsu okkar og auknar líkur eru á
því að þau sem nota rafrettur fari
síðar að reykja sígarettur. n
Grein þessi birtist upprunalega
á vefnum Doktor.is og er höfundur
hennar Guðrún Ólafsdóttir hjúkr-
unarfræðingur.