Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 50
50 23. mars 2018lífsstíll - bleikt
„Hann rændi
mig æskunni“
Elma Sól var fórnarlamb ofbeldis:
Vinsælast í
vikunni á Bleikt
Hóf að
hreyfa sig
almennilega
fyrir 4 vikum
Bylgja Guðjónsdóttir hafði ekki
hreyft sig að ráði í tæp þrjú
ár vegna taugaáfalls sem hún
fékk. Í kjölfar taugaáfallsins
varð hún
mikið and-
lega veik
og tók að
þyngjast
verulega.
Það sem
bætti ekki
úr skák fyr-
ir Bylgju
var að vegna greiningar hennar
á kvíða og þunglyndi á hún það
til að fá svokallað vægt „body
dysmorphia“ sem er brengluð
sýn manneskju á líkama sinn
eða hluta af honum.
„Ég hafði enga stjórn á
lífi mínu á þessum tíma og
vegna hreyfingarleysis hrönn-
uðust á mig kílóin. Ég hef
aldrei nokkurn tímann verið
jafn þung og ég var á þessum
tíma eða allt þar til ég tók
þessa U-beygju.“
Í dag stundar Bylgja cross-
fit þrisvar sinnum í viku, fer í
ræktina þrisvar sinnum í viku
og hjólar 10–20 kílómetra
þrisvar í viku.
„Það ótrúlega við þetta allt
saman er að ég byrjaði allt í
einu að funkera, andleg heilsa
mín hefur ekki verið jafn stöð-
ug í að verða tvö ár og ég trúi
varla muninum á mér. Ekki
misskilja mig, ég á mína slæmu
daga en ég er allt í einu byrjuð
að höndla þá mun betur.“
Katrín deilir
reynslu sinni
af fegurðar-
samkeppnum
Katrínu dreymdi um að taka
þátt í fegurðarsamkeppni allt
frá því að hún var ung stúlka.
Árið 2015 fékk Katrín loksins
tækifæri
til þess að
taka þátt en
þá var búið
að afnema
hæðartak-
mörkun í
keppnun-
um.
„Þar sem ég er aðeins 155
sentimetrar á hæð var ég alltaf
langt undir meðalhæð og hélt ég
fengi aldrei tækifæri til þess að
taka þátt. Ég hafði ekki hugmynd
um hvað ég var að fara út í og voru
sumar stelpurnar alltaf svo fínar á
meðan ég var bara í gallabuxum
og bol með ógreitt hárið.“
Katrín segir að það sem hafi
komið henni hvað mest á óvart
var hversu mikið af niðrandi
athugasemdum var skrifað um
keppendurna á netinu.
„Persónulega myndi ég
aldrei tala illa um aðra mann-
eskju þrátt fyrir að ég sé
kannski ekki sammála því sem
hún er að gera, en svona erum
við misjöfn.“
Meira um málið á Bleikt.is
Hráefni
n 2–3 kjúklingabringur
n 3 hvítlauksrif, söxuð
n Hálf krukka sólþurrkaðir tómatar
n Hálfur pakki sveppir, skornir í bita
n Hálfur laukur, grófsneiddur
n 1 dós kókosmjólk
n 1 bolli pasta, ég notaði penne-pasta
n 1 dl kjúklingasoð (hálfur teningur af
kjúklingakrafti og 1 dl soðið vatn)
n ca. 15 blöð af ferskri basilíku, skorin smátt
n Sletta af kókosolíu
n Salt og pipar eftir smekk
Kjúklingapasta með sólþurrkuðum tómötum og basilíku
Hildur Hilmarsdóttir,
bloggari á síðunni
Mamiita, deilir upp-
skrift að hollari útgáfu
af pasta í rjómasósu.
Fyrir þá sem ekki borða
kjöt eða kjötvörur er
einfalt mál að sleppa
kjúklingi og kjúklinga-
soði og nota í staðinn
sojakjöt eða jafnvel
láta pastað duga.