Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2018, Blaðsíða 70
18 fólk 23. mars 2018 M aður vikunnar er að öðrum ólöstuðum pistlahöfundurinn og fyrrverandi blaða- maðurinn Bragi Páll Sigurðs- son. Bragi Páll heimsótti lands- fund Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi og skrifaði tvo eitraða pistla um upplifun sína. Var honum fagnað sem hetju hjá andstæðingum flokksins en Sjálfstæðismenn urðu brjálaðir og kölluðu Braga Pál öllum ill- um nöfnum. Meðal annars kall- aði Páll Magnússon alþingis- maður Braga Pál og Stundina, sem birti pistlana, „endaþarm íslenskrar blaðamennsku“. Svo skemmtilega vill til að Páll deilir vinnustað með föður Braga Páls. Það er Sig- urður Páll Jónsson, alþingis- maður fyrir hönd Miðflokksins í Norðvestur kjördæmi. Sigurður Páll var áður varaþingmað- ur Framsóknarflokksins, síð- an 2013. Bragi Páll er róttækur vinstri maður og því er óhætt að fullyrða að feðgarnir séu á önd- verðum meiði í pólitík. „Hún var alltaf svo happy þetta helvíti“ Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu vilja heita annað en Edda? Þegar ég var lítil fannst mér nafnið Elísabet svo undurfallegt. Hverjum líkist þú mest? Ég er blanda af föðurömmu og móðurfólkinu mínu. Ég þótti samt mjög lík Evu, móðursystur minni, sem var svolítið seinheppin alltaf og mikill húmoristi. Hvað halda margir um þig sem er alls ekki satt? Að ég lifi eingöngu á hollustu- fæði. Ég er versti nammisukkari og draslæta sem ég þekki (en bara seinnipart dags). Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir? Ég er ekkert betri en aðrir en skora mjög hátt í bjartsýni. Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum sem er ekki kennt þar núna? Styrkleika- þjálfun (ég held á nýju íslensku styrk- leikakortunum á myndinni) og kærleiksrík mannleg samskipti. Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin- um þínum? Hér sé stuð! Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinninn sé til. Hvernig svarar þú? Ég svara sann- leikanum samkvæmt að hann sé sannar- lega til og elski að gefa börnum gjafir. Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið? Það brennur eftir Egil Ólafsson. Fallegasta lag í heimi. Hvað ætti ævisagan þín að heita? Hún var alltaf svo happy þetta helvíti. Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? Miracle on 34th Street (gömlu myndina). Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? America's Funniest Home Videos. Hvert er versta hrós sem þú hefur feng- ið? Þú lítur miklu betur út svona búttuð. Heilsarðu frægum Íslendingum úti á götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu- lega? Já. Hverju laugstu síðast? Að það væru fimm mínútur í að ég sækti fjölskyldumeðlim, þegar ég vissi að það væru að minnsta kosti tíu mínútur, ef ekki 15 mínútur! Um hvað geta allir í heiminum verið sam- mála? Að án gjafa jarðar værum við ekki til. Hreint vatn og hreint loft eru grunnur þess að við lifum, þess vegna er óskiljanlegt að við skulum keppast við að drepa okkur með endalausri viðbjóðslegri mengun! Hvað í hegðun hins kynsins ruglar þig mest? Engilhegðun hins kynsins ruglar mig. En sumt finnst mér óendanlega fyndið. Ég ætla ekki að nefna neitt dæmi hér. Hvaða áhugamál myndirðu ekki sætta þig við að maki þinn stundaði? Að safna veraldlegum auði, peningaást. Á hvern öskraðirðu síðast? Ég öskraði af gleði þegar ég sá nýju styrkleikakortin mín nýkomin úr prentun. Hver er fyndnasta „pick-up“-línan sem þú hefur heyrt? Geturðu lánað mér 5.000 kall, svo ég geti boðið þér í glas. Um hvað varstu alveg viss þangað til þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér? Að allar manneskjur væru góðar í eðli sínu. Ég er þó sannfærð um að 90% eru með fallegt hjarta þótt það sé stundum vel falið. Hvað er fram undan um helgina? Fjórar leiksýningar á söngleiknum Slá í gegn, sem hefur gjörsamlega slegið í gegn, og tvö námskeið þar sem unnið er með nýju styrkleikakortin, því sú vinna gerir fólk svo hamingjusamt og hamingjuaukning eykur lífsgæði og gerir heiminn betri. Lítt þekkt ættartengsl Sigurður Páll Jónsson Bragi Páll Sigurðsson T ónlistarkonan Inga María Hjartardóttir er búsett í Los Angeles í Bandaríkjunum. Lag hennar Good in Good- bye keppir í úrslitum söngkeppn- innar International Songwriter of the Year og þegar viðtalið var tekið var lag hennar efst í keppninni. Vinningslagið er valið með þátt- töku dómnefndar, sem í eru með- al annarra Tom Waits og Lorde. Einnig eru sérstök verðlaun sem almenningur kýs áfram með vef- kosningu, sem allir geta tekið þátt í. Inga María er 24 ára, fædd og uppalin á Akranesi, kemur úr tón- elskri fjölskyldu, afi hennar spilaði á kontrabassa og píanó og margir voru í kirkjukór. „Það var aldrei neitt annað en tónlist sem kom til greina.“ Árið 2013 flutti hún til Banda- ríkjanna og hóf nám í Berklee College of Music í Boston. Nám- ið kláraði hún á þremur og hálfu ári og flutti síðan til Los Angeles í janúar 2017. „Mér líkar mjög vel hérna. Það er yfirleitt alltaf mjög gott veður, nema núna er grenj- andi rigning,“ segir Inga. „Boston er lítil borg miðað við bandaríska borg, um 600 þúsund íbúar, það var gott að byrja þar. Los Angeles er töluvert stærri. Keppnin er árleg keppni sem stefnir að því að hitta listamann sem hefur ekki verið uppgötvað- ur ennþá, ég skráði mig í desem- ber í fyrra og fékk tölvupóst um að ég væri komin í úrslit. Það er dóm- nefnd sem velur í úrslit, en um 16 þúsund framlög bárust. Keppn- in er tvískipt: dómnefnd, sem er skipuð fólki sem hefur náð frama í bransanum, og svo netkosning, sem allir geta tekið þátt í. Ég tel að það sé því að þakka að ég er íslensk að ég er efst í kosn- ingunni, fólk vill halda með „the underdog“, en þetta er líka stað- festing á því að maður er að gera rétt, þetta minnir mig á af hverju ég er að þessu. Bara að vera í keppninni þýðir að dómnefndin er að hlusta á lagið mitt. Ég er ekki búin að kynna mér hver fyrstu verðlaunin eru, þetta gerðist allt svo hratt.“ Í dag, föstudag, verða topp 25 lögin kynnt, en 250 framlög voru í keppninni þegar viðtalið var tekið fyrr í vikunni. „Það væri frá- bært að vera í toppbarátt- unni, en maður á enn tækifæri, þar sem vefkosningin heldur áfram. Úrslit verða síðan tilkynnt 6. apríl næstkomandi.“ Á meðal fyrri vinningshafa má nefna Gotye, Bastille, The Band Perry og Passenger og í dómnefnd í ár eru meðal annarra Lorde, Tom Waits, Bastille, Don Omar, Hard- well og Kaskade. „Þetta er stærra en ég átti von á.“ Keppir í flokki listamanna sem gefa út á eigin vegum Inga María keppir í flokki sem heit- ir Unpublished, sem inniheldur listamenn sem eru ekki á vegum útgáfufyrirtækis heldur gefa tón- list út á eigin vegum. Inga María var búin að gefa út tvö lög áður, en þetta er fyrsta popplagið sem hún gefur út og er lagið í stíl við það sem hún hyggst gera í framtíðinni. „Framundan er að gefa út EP- plötu, með fimm lögum og mark- miðið er að hún komi út á þessu ári. Það ræðst af fjármagni en ég vil ekki gefa neitt út nema ég sé mjög ánægð með það,“ segir Inga María sem var að sækja um vegabréfsáritun fyrir listamenn sem heimilar henni að vinna í tónlistariðnaðinum í Banda- ríkjunum næstu þrjú árin. Inga María bjó í tvö ár í Svíþjóð og lærði þar að spila á hljóðfæri, en hún spilar á píanó, gítar, bassa og smá- vegis á trommur. „Það eru líka all- ir í tónlistarskóla þegar þeir eru litl- ir, læra á blokkflautu og ég spilaði á þverflautu alla mína barnæsku. Það var planið að fara aftur til Svíþjóð- ar, en eftir að ég komst inn í Berklee kom aldrei neitt annað til greina.“ Inga María semur bæði lag og texta, ég er að reyna að koma mér í að semja meira með öðrum en ég er svo frek að mér finnst bara best að semja ein. Ég hef samið eitt lag á íslensku, en allt annað er á ensku, kannski vegna þess að ég hlustaði svo mikið á Spice Girls sem stelpa, enskukunnáttan kom þaðan.“ Gallharður Eurovision-aðdá- andi og stefnir á þátttöku Hefur þú sent inn eða velt fyrir þér að taka þátt í Eurovision? „Ég væri klárlega til í það í fram- tíðinni, ég var beðin um að taka þátt í Voice í fyrra, ég er klárlega með augað á Eurovision í náinni framtíð, ég er gallharður aðdá- andi.“ Hún sér fyrir sér að verða áfram í Bandaríkjunum, enda óljóst hvaða tækifæri eru handan við hornið. „Ég er búin að koma mér vel fyrir hér, er með stórt tengslanet úr skólanum, við fluttumst mörg saman til Los Angeles eftir útskrift og það eru það mörg tækifæri hér úti að ég vil ekki sleppa tækifærinu strax, þó að ég sé alltaf með heim- þrá, þá safna ég bara frekar og flýg oftar heim. Ég er líka nýbúin að kynnast fjölda Íslendinga hérna. Það var örlítill léttir að finna þenn- an hóp. Þau skilja kaldhæðnina og brandara og það er gaman að hitta þau. Ég er að vinna fyrir tónlistar- myndahöfund, Mark Isham, sem samdi meðal annars tónlistina fyrir Crash, svo er ég að semja og spila tónlist á kvöldin og um helgar. Ég tók Music Business Management sem aðalfag í skólanum, starfsheiti mitt hjá Isham er Music Product- ion Coordinator, ég sé um samfé- lagsmiðlana hans, útgáfur á plöt- um, markaðssetningu og allt þar á milli,“ segir Inga María, en tilviljun olli því að hún sótti um starfið. „Ég sótti um í einhverju gríni, þetta var á erfiðum tíma, ég var að hætta með kærastanum og allt frekar ömurlegt, við hætt- um saman á laugardegi, ég fór í starfsviðtal á sunnudagsmorgni og fékk símtal seinni partinn um að ég hefði fengið vinnuna. Allt í einu fór allt frá núlli upp í hundrað, það var mikill léttir, sumarið var erfitt með lítinn pening og í óvissu um framtíðina. Ég er búin að læra heilmikið með frábæru fólki. Það má kjósa einu sinni á dag í netkosningunni og ég vil hvetja fólk til að kjósa.“ n Inga tekur þátt í söng- keppni í Bandaríkjunum Lorde og Tom Waits á meðal dómara Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Gleðigjafinn og gamanleikkonan Edda Björgvinsdóttir hefur glatt huga og hláturtaugar landsmanna í áraraðir. Nýlega heillaði hún heimsbyggðina með hlutverki sínu í kvikmyndinni Undir trénu, sem hún uppskar Edduverðlaunin fyrir. Edda leikur í Slá í gegn í Þjóðleikhúsinu og í vikunni komu styrkleikakortin út. Edda gaf sér einnig tíma til að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur DV. Alþingismaðurinn og eiturpenninn hin hLiðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.